Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2012 | 10:30

Tinna og Cheyenne Woods taka þátt í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna

Cheyenne Woods, 22 ára frænka nr. 2 á heimslistanum, Tiger Woods og fyrrum liðsfélagi Ólafíu Þórunnar „okkar“ Kristinsdóttur í Wake Forest hefir tilkynnt að hún ætli sér í úrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í von um að hljóta kortið sitt fyrir 2013 keppnistímabilið.  Í sömu hugleiðingum er Tinna Jóhannsdóttir í Golfklúbbnum Keili, Hafnarfirði en hún ætlar öðru sinni að reyna að hljóta kortið eftirsóknarverða á Evrópumótaröð kvenna. Úrtökumótið nefnist the LET’s Lalla Aïcha Tour School 2013 og fer fram í tveimur stigum; fyrra stigi 6.-9. desember og lokastigið 13.-17. desember 2012.  Leikið er í Al Maaden Golf and Amelkis Golf Club í Marrakech, Marokkó. Þetta er í fyrsta sinn sem Cheyenne Woods tekur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2012 | 09:50

Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla lauk leik í 25. sæti og Ragna Björk og The St. Leo Lions urðu í 6. sæti í liðakeppninni í Flórída

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og the Royals, golflið The Queens University of Charlotte og Ragna Björk Ólafsdóttir, klúbbmeistari GKG 2012 og í golfliði St. Leo Lions hafa báðar lokið leik á the Flagler Fall Slam í St. Augustine, í Flórida. Mótið var tveggja daga og stóð   22.-23. október var lokahringurinn spilaður í gær.  Spilaði var í  Marsh Creek Country Club. (Smellið á undirstrikuðu orðin til þess að komast á heimasíðu klúbbsins).Þáttakendur voru 91 frá 18 háskólum. Íris Katla lék samtals á 15 yfir pari, 159 höggum (78 81) og varð í 25. sæti í einstaklingskeppninni, sem hún deilir með nokkrum öðrum. Íris Katla var á 2. besta skorinu í liði sínu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2012 | 08:00

Rory drepur á dreif sögusögnum um $ 250 milljóna samning við Nike

Rory McIlroy kom sér undan spurningu er snerti vaxandi vangaveltur um að hann væri að fara að undirrita marg-milljón dollara samning við Nike, í viðtali við AFP í Lake Malaren Golf Club í gær. Nú fyrr í vikunni birtust fréttir af því í The Irish Times að Rory væri að fara að undirrita 250 milljón dollara samning (þ.e. upp á u.þ.b. 31 milljarð íslenskra króna) til 10 ára við íþróttavöruframleiðandann Nike. Samningur McIlroy við Titleist rennur út í árslok 2012. Varðandi samninginn hugsanlega hafði Rory eftirfarandi að segja:„Þessar sögusagnir hafa verið á sveimi árum saman og virðast alltaf koma upp á þessum tíma árs.“ „Ég ætla að láta Conor (Ridge, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2012 | 07:30

Ólafur Björn hefur leik í dag á úrtökumóti fyrir PGA Tour

Ólafur Björn Loftsson, afrekskylfingur í NK hefur í dag leik í úrtökumóti fyrir PGA mótaröðina.  Mótið fer fram í Florence, Suður-Karólínu og keppt er í Florence Country Club (komast má á heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR:) Ólafur Björn fer út kl. 9:40 að staðartíma (kl. 13:40 að íslenskum tíma) og aðeins 1 er með honum í holli Justin Smith frá St. Paul, Minnesota; en flest önnur holl eru 3 manna. Golf 1 óskar Ólafi Birni góðs gengis! Fylgjast má með stöðunni hjá Ólafi Birni í Florence með því að  SMELLA HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2012 | 07:00

Harrington með 2 högga forystu á Grand Slam

Pádraig Harrington er að gera eins mikið og hann getur úr tækifæri sínu til að spila á PGA Grand Slam of Golf, en hann komst í mótið á síðustu stundu, í stað Ernie Els, sem er að jafna sig eftir ökklatognun. Sigurvegarinn í þessari 4 manna Grand Slam keppni hlýtur £375.000. (u.þ.b. 75 milljónir íslenskra króna) og bara fyrir það eitt að taka þátt hlýtur sá sem tapar £125,000 (25 milljónir íslenskra króna). Pádraig Harrington var á 5 undir pari, 66 höggum, eftir fyrri hring, í Southampton, Bermúda, þar sem mótið fer fram.  Hann er með tveggja högga forystu á sigurvegara the Masters í ár, Bubba Watson. Webb Simpson sigurvegari Opna bandaríska var líkt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 20:30

NGA: Þórður Rafn lék best af Íslendingunum í Metro West

Þórður Rafn Gissurarson, GR, lék best af Íslendingunum þremur sem hófu leik á NGA Pro Tour – Bridgestone Winter Series á fyrsta móti vetrarins í Metro West Golf Club, í Flórída. Þórður Rafn lék 1. hring á 4 yfir pari 76 höggum og deilir sem stendur 49. sæti með 5 öðrum kylfingum. Næstbest lék Alexander Aron Gylfason, GR, en hann var á 8 yfir pari, 80 höggum og er í 72. sæti ásamt 2 öðrum kylfingum og lestina rekur Nökkvi Gunnarsson, NK, Íslandsmeistari 35+ 2012, en hann er neðstur í 78. sæti eftir að hafa komið í hús á 11 yfir pari, 83 höggum. Á facebook síðu sinni sagði Nökkvi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 17:00

18 atriði sem eru jákvæð við golf (3. hluti af 6)

Hér á eftir verður haldið áfram með lista David Owen en þar nefnir hann 18 atriði, sem hann finnur golf til ágætis. 7)  Golf er íþrótt jafnaðarmennskunnar (vegna forgjafarreglnanna) en jafnframt íþrótt einstaklingshyggjunnar.  Það er alveg klárt að þegar einhver vinnur mót þá er hann sigurvegari og sigurinn vannst vegna einstaklingsframtaks hans. Verðlaunin eru umbuninn vegna þess að einstaklingurinn stóð sig vel. Golfið er þó jafnframt þannig vegna forgjafarkerfisins að allir geta spilað við alla, sé áhugi fyrir hendi.  Ef Rory McIlroy finndi af einhverjum ástæðum enga til að spila við sig gætum við spilað saman og það orðið spennandi keppni að því gefnu að hann gæfi mér svona 30-35 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 15:00

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (26. grein af 34): Maria Beautell

María Beautell er sú síðasta af 7 kylfingum sem urðu í 9. sæti í Q-school Evrópumótaraðar kvenna, sem verður kynnt hér. María fæddist í St. Cruz de Tenerife 13. mars 1981 og er því 31 árs. Foreldrar hennar eru Carlos Beautell og Rosa Maria Largo frá Tenerife á Spáni. Sem áhugamaður varð María spænsku meistari í golfi 1998 og átti sæti í spænska kvennalandsliðinu í golfi.  Hún tók sem áhugamaður m.a. þátt í British Girls Championship. Á árunum 1999-2002 var María í sama háskóla í Bandaríkjunum og Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir og spilaði með golfliði Wake Forest. María gerðist atvinnumaður í golfi 1. apríl 2004 (alveg satt 🙂  Hún komst strax Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Óðinn Þór Ríkharðsson – 23. október 2012

Það er Óðinn Þór Ríkharðsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Óðinn Þór er fæddur 23. október 1997 og er því 15 ára í dag!!! Óðinn Þór er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG).  Hann spilaði með góðum árangri á Unglingamótaröð Arion banka og Eimskipsmótaröðinni í sumar; aðeins 14 ára og oft yngstur manna í mótum þeirra bestu. Í fyrsta mótinu á Unglingamótaröðinni upp á Skaga, varð Óðinn Þór í 25. sæti, en hann keppti í drengjaflokki (15-16 ára drengja); í 2. mótinu á Þverárvelli varð Óðinn Þór í 2. sæti; á 3. mótinu í Korpunni varð Óðinn Þór í 3. sæti; á 4. mótinu Íslandsmótinu í höggleik varð Óðinn Þór í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 12:00

Webb Simpson á móti banni á löngum pútterum

Webb Simpson er annar af tveimur risamótssmeisturum þessa árs sem spilar á Bermúda á Grand Slam, sem hefst í dag. Rory McIlroy og Ernie Els komast ekki Rory vegna þess að hann er að spila í öðru móti – Els vegna þess að hann er með tognaðan ökkla. Padraig Harrington og Keegan Bradley keppa í þeirra stað. Simpson sagði í viðtali í gær á Bermúda að hann hefði engar áhyggjur af hugsanlegri reglubreytingu sem myndi banna langa púttera… hann væri byrjaður að æfa með hefðbundnum pútter. Hann sagði þó að það þýddi ekki að hann væri sammála breytingum sem hugsanlega yrðu gerðar og sagði að stærri dræverar hefðu haft mun Lesa meira