Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2012 | 13:00
GSG: Einar S. Guðmundsson og Þór Ríkharðsson sigruðu í 4. Nettó-mótinu

Í gær fór fram í ágætis Sandgerðis-stillu, 4. mótið á Nettó mótaröðinni. Þátttakendur voru um 60 og virtust allir skemmta sér hið besta á góðum Kirkjubólsvelli. Leikformið var punktakeppni með forgjöf og veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin og höggleikur án forgjafar og veitt ein verðlaun þar, allt matarúttektir í matvöruversluninni Nettó. Úrslit urðu þau að í punktakeppninni sigraði Einar S. Guðmundsson, GSG, á 39 punktum; í öðru sæti varð Erlingur Jónsson, GSG á 38 punktum og í 3. sæti varð Þór Ríkharðsson, GSG á 38 punktum, sem ekki tók verðlaun í punktakeppninni þar sem hann var á besta skori dagsins og tók því 1. verðlaun fyrir sigur í höggleik Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2012 | 10:45
Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og Ragna Björk hefja leik á Flagler Fall Slam í Flórída í dag

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og the Royals, golflið The Queens University of Charlotte og Ragna Björk Ólafsdóttir, klúbbmeistari GKG 2012 og í golfliði St. Leo Lions hefja báðar í dag leik á the Flagler Fall Slam í St. Augustine, í Flórida. Mótið er tveggja daga og stendur því 22.-23. október. Spilaði er í Marsh Creek Country Club. (Smellið á bláletruðu stafina til þess að komast á heimasíðu klúbbsins). Það eru háskólalið eftirfarandi 17 háskóla sem keppa: Queens University of Charlotte, Saint Leo, Carson-Newman, Flagler, Columbus State, Seminole State, Barry University, Lander, Armstrong Atlantic, Thomas University, Anderson, Catawba, Mount Olive, North Georgia, Eckerd, Tusculum, og West Georgia. Golf 1 óskar Írisi Kötlu og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2012 | 09:00
Hver er kylfingurinn: Tommy Gainey?

Tommy Gainey líka þekktur sem „Tveggja hanska“ Gainey vann fyrsta sigur sinn á PGA Tour í gær, þ.e. á The McGladrey Classic mótinu eftir glæsihring upp á 60 högg, sem jafnframt er vallarmet á Seaside golfvellinum á Sea Island í Georgíu-ríki. Viðurnefnið „Tveggja hanska Gainey“ fékk hann vegna þess að hann er alltaf með hanska á báðum höndum. Fyrir sigurinn hlýtur Gainey $ 720.000 (sem er u.þ.b. 100 milljónir íslenskra króna). Tommy Gainey fæddist 13. ágúst 1975 í Darlington, Suður-Karólínu og er því 37 ára. Hann gerðist atvinnumaður 1998 og er því búinn að vera að sem slíkur í 14 ár áður en hann vann fyrsta sigur sinn á PGA Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 21:30
PGA: Tommy Gainey sigraði á The McGladrey Classic – var á 60 höggum!!!

Það var Tommy Gainey, sem stal sigrinum á The McGladrey Classic á Seaside golfvellinum á Sea, Island Georgiu fyrir skömmu. Hann átti ótrúlega flottan lokahring upp á 60 högg – fékk örn, 8 fugla og 9 pör. Samtals spilaði Gainey á 16 undir pari, 264 höggum (69 67 68 60). Þetta er fyrsti sigur Gainey á PGA Tour. Aðeins 1 höggi á eftir varð landi Gainey, Bandaríkjamaðurinn David Toms og í 3. sæti varð Jim Furyk enn einu höggi á eftir. Fjórða sætinu deildu síðan Brendon de Jonge frá Zimbabwe, DJ Trahan og Davis Love III, á samtals 12 undir pari, hver. Til þess að sjá lokastöðuna á McGladrey Classic Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 21:00
Viðtalið: Ingvar Hreinsson – GKS

Viðtalið í kvöld er við formann Golfklúbbs Siglufjarðar; Ingvar Hreinsson. Hann var fyrir misskilning hafður afmæliskylfingur hér á Golf 1, 14. október s.l. en þann dag átti Ingvar brúðkaupsafmæli en ekki afmæli! Hann fékk óvenjumargar hamingjuóskir á brúðkaupsafmælisdaginn og biðst Golf 1 afsökunar, jafnframt því sem Ingvar verður svo sannarlega afmæliskylfingur hér á Golf 1 á réttum afmælisdegi sínum 28. september 2013. En hér fer viðtalið við formann Golfklúbbs Siglufjarðar: Fullt nafn: Ingvar Kristinn Hreinsson. Klúbbur: Golfklúbbur Siglufjarðar (GKS). Hvar og hvenær fæddistu? Siglufirði, 28. september 1961. Hvar ertu alinn upp? Á Siglufirði. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég er giftur, á fjögur börn og 3 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 19:25
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst lauk leik á US Collegiate Championship á 68 glæsihöggum!!!

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU spilaði nú um helgina í US Collegiate Championship í The Golf Club of Georgia, í Alpharetta í Georgíu- ríki. Mótið stóð dagana 19.-21. október og lýkur í dag. Þátttakendur voru 79 frá 15 háskólum. Guðmundur Ágúst lék á samtals 4 yfir pari, 220 höggum (80 72 68) og er sem stendur í 20. sæti í einstaklingskeppninni, en nokkrir eiga eftir að ljúka keppni, þannig að sætisröðin getur enn raskast. Það sem er hins vegar ljóst er að Guðmundur Ágúst er búinn að vinna sig upp um meira en 20. sæti en hann var í 51. sæti fyrir lokahringinn. Guðmundur Ágúst var á 2. besta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 16:45
Afmæliskylfingur dagsins: Hrafn Guðlaugsson – 21. október 2012
Það er Hrafn Guðlaugsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hrafn er fæddur 21. október 1990 og er því 22 ára í dag. Hann er klúbbmeistari Golfklúbbsins Setbergs (GSE) í Hafnarfirði 2012 og spilar sem stendur í bandaríska háskólagolfinu með Faulkner háskóla. Næsta mót sem Hrafn og félagar í Faulkner spila í er MGCCC Holiday Inn Fall Invitational í Gulfport, Mississippi, þann 28. október n.k. þ.e. nákvæmlega eftir viku. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hrafni til hamingju með afmælið hér að neðan: Hrafn Guðlaugsson (22 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Willy Anderson, f. 21. október 1879 – d. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 16:00
Bandaríska háskólagolfið: Ari og Theodór Emil hefja leik á Millsaps College Invitational

Theodór Emil Karlsson, klúbbmeistari GKJ 2012 og Ari Magnússon, GKG, sem báðir spila með golfliði The University of Arkansas at Monticello hefja í dag leik á Millsaps College Invitational. Mótið er 3 daga og stendur 21. – 23. október og fer fram í Madison, Mississippi, í sama golfklúbbi og Birgir Leifur varð svo glæsilega meðal 16 efstu og kom sér á næsta stig úrtökumóts fyrir PGA Tour; Lake Caroline. Golf 1 óskar þeim Theodór Emil og Ara góðs gengis í mótinu!
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 15:00
Er Sandra Gal „heitasti“ kvenkylfingurinn?

Nú nýlega valdi Golf Digest þýska, fyrrverandi W-7 módelið, Söndru Gal, sem spilar á LPGA (og varð m.a. í 5. sæti á LPGA KEB Hana Bank Championship í Suður-Kóreu í dag 🙂 ) heitasta kvenkylfinginn. Ýmsir golffréttamiðlar standa með reglulegu millibili fyrir samkeppni af þessu tagi og gildir þá einu hvort valinn er „heitasti“ kvenkylfingurinn eða kynþokkafyllsti karlkylfingurinn. Oft er það svo að lesendur fá að velja í atkvæðagreiðslu á netinu, en svo var ekki i þessu óformlega vali Golf Digest. Því hefir Edward nokkur Jnaro tekið sér stílvopn í hönd, óánægður með val Golf Digest og hvernig að kosningunni var staðið. Hann bendir a.m.k. á 5 kvenkylfinga sem að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 14:00
18 atriði sem eru jákvæð við golf (1. hluti af 6)

Maður að nafni David Owen hefir tekið saman lista um 18 atriði sem eru jákvæð varðandi golf. Listinn birtist í Golf Digest. Hér fer fyrsti hlutinn í lauslegri þýðingu: 1. Golf er bara leikur. Leikir gera ekkert til að leysa vanda heimsins, en þeir gera vandann ekki verri heldur. Það er meira en hægt er að segja um margt af því sem fólk ver tíma sínum í að gera. 2. Grundvöllur golfleiks er heiðarleikinn. Þetta er eina atvinnumannsíþróttin þar sem ætlast er til að leikmenn víti sjálfa sig … sem þeir gera oft líka. Þó eru líka til atvinnumenn sem reyna að sneiða hjá vítum á sjálfa sig eða reyna jafnvel Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

