Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 10:30

Enn um Jesper Parnevik og „Gangnam Style“ tónlistarmyndband hans

Golf 1 sýndi fyrir skemmstu tónlistarmyndband með sænska PGA kylfingnum Jesper Parnevik þar sem hann tekur „Gangnam Style“ lag kóreanska rapparans PSY  SJÁ HÉR:  Nánar tiltekið birti Golf 1 frétt af myndbandinu fimmtudaginn fyrir viku, 25. október 2012,  en sama dag kom Jesper Parnevik fram í golfþætti Golf Channel Morning Drive til þess að ræða um myndbandið. Jesper sagði á Morning Drive að upphaflega hefði myndbandið bara átt að koma fyrir augu nokkurra vina fjölskyldunnar. Brenda vinkona hans hefði átt 40 ára afmæli og hann hefði ákveðið að smala saman nokkrum vinum og fjölskyldumeðlimum til þess að búa til vídeó-ið.  Jesper sagði að eiginkona hans, Mia (sem einnig kemur fram í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Sunna í 14. sæti eftir fyrri dag Palmetto Intercollegiate

Sunna Víðisdóttir, GR og golflið Elon háskóla hófu keppni í gær á Palmetto Intercollegiate mótinu í Suður-Karólínu. Mótið fer fram dagana 28. og 29. október í Oak Point golfklúbbnum á Kiawah eyju og verður lokahringurinn því spilaður í kvöld. Þátttakendur eru um 90 frá 17 háskólum. Í gær var Sunna á samtals 3 yfir pari, 147 höggum (75 72) og er sem stendur í 14. sæti – Ekki tókst að ljúka keppni í gær vegna myrkurs og eiga margar eftir að klára hringi sína og gæti því sætistala Sunnu eftir 1 dag raskast aðeins. Sunna er á 2. besta skori í liði sínu og telur það því. Golflið Elon, lið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 08:00

Hvað er kylfusveinninn að segja?

Það má ekki vera með læti á golfvellinum. Starf kylfusveinsins felst m.a. í því að kanna legu bolta og í því og öðrum tilvikum getur kylfusveinninn verið í nokkurri fjarlægð frá kylfingnum sínum og þá þarf að tjá sig með táknmáli. Flestir kylfingar á stærstu mótaröðunum hafa sitt sérstaka táknmál við kylfusveininn sinn … en sumt er almennt. Þeir hjá Golf Digest hafa tekið saman það helsta í táknmáli kylfusveina í máli og myndum. Til þess að sjá myndaseríu af táknmáli kylfusveina SMELLIÐ HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 23:58

Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra á 73 höggum eftir 1. dag Alamo Invitational

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL  og golflið Texas State hófu nú í dag keppni the Alamo Invitational á Briggs Ranch golfvellinum í San Antonio, Texas. Þetta er þriggja daga mót, stendur frá 28.-30. október og þátttakendur eru 78 frá 15 háskólum. Valdís Þóra lék á 1 yfir pari, 73 höggum á 1. degi.  Skorkortið var nokkuð skrautlegt en á því gaf að finna 4 fugla,10 pör, 3 skolla og 1 skramba.  Valdís deilir 25. sætinu sem stendur ásamt 5 öðrum kylfingum. Texas State lið Valdísar Þóru er sem stendur í 11. sæti í liðakeppninni. Golf 1 óskar Valdísi Þóru góðs gengis á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. hring Alamo Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 21:30

Bandaríska háskólagolfið: Axel lauk keppni í 2. sæti á Bridgestone Golf Collegiate!!!

Axel Bóasson, GK, stóð sig stórkostlega á Bridgestone Golf Collegiate mótinu og náði sínum besta árangri í bandaríska háskólagolfinu í dag, 2. sætinu, en mótið fór fram í Grandover Resort & Conference Center í  Greensboro, Norður-Karólínu. Hann var á samtals 8 undir pari, 208 höggum (69 67 72) og á besta skori golfliðs Mississippi State. Þetta er einstaklega flottur árangur hjá Axel!!! Haraldur Franklín Magnús, GR, lauk leik jafn Jordan Sweet frá Maryland háskóla í 43. sæti, var á samtals 12 yfir pari, 228 höggum (74 75 79). Mississippi State vann liðakeppnina varð í 1. og efsta sæti af þeim 13 háskólaliðum sem þátt tóku!!! Næsta mót sem The Bulldogs, golflið þeirra Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 21:24

GS: Einar Long og Helgi Róbert Þórisson sigruðu á 3. móti í Haustmótaröð GS og Bílahótels

Í dag fór fram í fyrirtaks Leirulogni 3. mót í Haustmótaröð GS og Bílahótels. Þátttakendur voru 101 og luku 99 keppni. Leikformið var höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf. Á besta skorinu í dag varð Einar Long, GHG, en hann var á 73 höggum líkt og Grímur Þórisson, GÓ, en Einar var betri á seinni 9 sem hann spilaði á 33 höggum meðan Grímur var á 37 höggum. Í punktakeppninni vann Helgi Róbert Þórisson, GKG, var á 41 glæsipunkti líkt og klúbbfélagi hans Bergsveinn Þórarinsson, sem var með færri punkta á seinni 9, 18 meðan Helgi Róbert var á 24. Nándarverðlaun: 9, hola – Ingvar Jónsson 74 cm 16. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 20:45

GSG: Annel og Brynjar Steinn sigruðu í dag á 5. móti Nettó-mótaraðarinnar

Í dag fór fram 5. mót Nettó-mótaraðarinnar á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Þátttakendur voru 44 og luku 41 keppni. Leikformið var punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar. Veitt voru verðlaun fyrir efsta sætið í höggleiknum og 3 efstu sætinu í punktakeppninni. Verðlaun voru í formi veglegrar úttektar hjá Nettó matvöruversluninni. Á besta skorinu í dag voru Annel Jón Þorkelsson, GSG, en hann spilaði á 72 höggum.  Reyndar spiluðu klúbbfélagar hans Brynjar Steinn Jónsson og Þór Ríkharðsson líka á 72 höggum,  en Annel var á betra skori á seinni 9, 37 höggum meðan Brynjar Steinn og Þór voru á 38 höggum. Í punktakeppninni varð Brynjar Steinn Jónsson, GSG í efsta sæti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Pétur Freyr Pétursson – 28. október 2012

Það er Pétur Freyr Pétursson sem er afmæliskylfingur dagsins. Pétur Freyr er fæddur 28. október 1990 og á því 22 ára afmæli í dag. Hann er afrekskylfingur í Golfklúbbi Reykjavíkur og spilar golf með golfliði Nicholls State University í Thibodaux, Louisiana, þ.e. í bandaríska háskólagolfinu.  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:l Pétur Freyr Pétursson Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Na Yeon Choi, 28. október 1987 (25 ára) ….. og …… Klaus Richter (46 ára) Anna Margrét Kristjánsdóttir (22 ára) Guðmundur Steingrímsson (40 ára stórafmæli!!!) Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri GK (37 ára) Gudmundina Ragnarsdottir, GO (54 ára) Maren Rós (31 árs) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 15:00

Bandaríska háskólagolfið: Hrafn Guðlaugsson hefur leik á morgun í Mississippi

Hrafn Guðlaugsson, GSE og golflið Faulkner hákólaans hefja leik á morgun á MGCCC Holiday Inn Fall Invitational í Gulfport, Mississippi. Mótið er tveggja daga frá 29.-30. október og þátt taka lið 10 háskóla. Golf 1 óskar Hrafni góðs gengis! Til þess að fylgjast með gengi Hrafns á mótinu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 14:00

Bandaríska háskólagolfið: Fellibylurinn Sandy olli því að 2 hringir Landfall Classic voru felldir niður – Ólafía Þórunn lauk keppni í 24. sæti

Þann 26. október þ.e. á föstudaginn hófst í Country Club of Landfall í Wilmington, Norður-Karólíu Landfall Classic mótið. Í mótinu tóku þátt Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest.  Þátttakendur voru 90 frá 17 háskólum. Upphaflega var áætlað að um 3 daga mót yrði að ræða og að lokahringurinn yrði spilaður í dag. Fellibylurinn Sandy kom þó í veg fyrir það og var báðum seinni hringjum mótsins aflýst og úrslit eftir 1. hring látin standa. Þau voru eftirfarandi: Ólafía Þórunn spilaði á 2 yfir pari, 74 höggum og lauk keppni  í 24. sæti. Hún var á 2. besta skori í liði sínu Wake Forest, en Wake Lesa meira