Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 08:00
Evróputúrinn: Kaymer telur sig eiga tækifæri að verja titil sinn á WGC-HSBC Champions

Þýski kylfingurinn Martin Kaymer á titil að verja á HSBC heimsmótinu í golfi sem hefst á morgun í Mission Hills golfklúbbnum í Kína. Kaymer var í sérklassa á mótinu þegar hann sigraði í fyrra, með lokahring upp á 63 högg, 9 fugla og átti 3 högg á þá sem næstir komu. Kaymer er nostalgískur þegar kemur að 2011: „Síðasta ár var gott,“ sagði hann. „Ég sigraði í Abu Dhabi fyrr á árinu, sem er enn annað mótið sem HSBC styrkir, en þá var ég ferkar flatur og bara að bíða eftir sigrinum. Ég átt frábæra seinni 9 á sunnudeginum, aðeins 29 högg þannig að ég á góðar minningar. Augljóslega er þetta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 07:00
Solheim Cup 2015 fer fram í Þýskalandi

Í gær var tilkynnt í London að Solheim Cup 2015 myndi næst fara fram í Þýskalandi, nánar tiltekið á golfvelli St. Leon-Rot golfklúbbsins, sem er mörgum Íslendingum að góðu kunnur. Komast má á heimasíðu golfklúbbsins með því að SMELLA HÉR: Segja má að Solheim Cup sé samsvarandi keppni hjá kvenkylfingum og Ryder Cup er hjá körlum. Keppnin milli Evrópu og Bandaríkjanna fer fram annað hvert ár til skiptis í heimsálfunum. Síðast 2011 sigraði lið Evrópu í Killeen Castle á Írlandi og næsta keppni verður haldin 3. – 18. ágúst 2013 í Colorado golfklúbbnum í Parker, Colorado. Tveimur árum síðar þ.e. 2015 verður keppnin aftur haldin í Evrópu og þá verður litli Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 23:30
Bandaríska háskólagolfið: Hrafn og golflið Faulkner í 2. sæti eftir 1. hring á MGCCC Fall Invitational
Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og golflið Faulkner háskóla léku fyrsta hring á MGCCC Holiday Inn Fall Invitational í Gulfport, Mississippi í dag. Mótið er tveggja daga frá 29.-30. október og taka þátt 57 í 10 háskólaliðum. Hrafn átti ekki góðan 1. hring miðað við gengið í haust; var á 12 yfir pari, 84 höggum á hring þar sem hann fékk aðeins 1 fugl, 6 pör, 9 skolla og 2 skramba. Hann var þó á 4. besta skori í liði Faulkner og telur skor hans því. Lið Faulkner háskóla er í 2. sæti eftir 1. keppnisdag. Lokahringurinn verður leikinn á morgun. Golf 1 óskar Hrafni góðs gengis á morgun! Til þess Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 23:00
Bandaríska háskólagolfið: Sunna lauk keppni í 9. sæti á Palmetto Intercollegiate á Kiawah Island
Sunna Víðisdóttir, GR og golflið Elon luku keppni í kvöld á Palmetto Intercollegiate mótinu, sem fram fór í Oak Point golfklúbbnum á Kiawah Island í Suður-Karólínu, dagana 28. og 29. október . Þátttakendur voru um 90 frá 17 háskólum. Í gær var Sunna á samtals 4 yfir pari, 220 höggum (75 72 73) og lauk keppni meðal topp-10, þ.e. í 9. sætinu í einstaklingskeppninni. Hún var á 2. besta skorinu í liði sínu og taldi það því. Golflið Elon, lið Sunnu, lauk keppni í 4. sæti í liðakeppninni. Þetta er síðasta mótið á haustönn hjá Sunnu og hefst keppni við aðra skóla ekki aftur fyrr en eftir áramót, 2013. Til að sjá úrsltin Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 20:50
Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State í 11. sæti eftir 2. dag Alamo Inv.

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og golflið Texas State léku í dag 2. hring á the Alamo Invitational á Briggs Ranch golfvellinum í San Antonio, Texas. Þetta er þriggja daga mót, stendur frá 28.-30. október og þátttakendur eru 78 frá 15 háskólum. Valdís Þóra er búin að spila á samtals 9 yfir pari, 153 höggum (73 80) og átt fremur dapran hring í dag, en á skorkorti hennar voru 3 fuglar, 9 pör, 3 skollar og 3 skrambar! Við þetta lækkaði Valdís Þóra úr 25. sætinu sem hún var í, í gær, í 49. sætið. Texas State lið Valdísar Þóru er sem stendur enn í 11. sæti í liðakeppninni. Golf 1 óskar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 20:30
Sergio Garcia eygir nýja sigra eftir augnaðgerð

Sergio Garcia er allur að koma til eftir augnaðgerð sem hann undirgekkst fyrir aðeins mánuði síðan og sér nú betur en nokkru sinni. Garcia hefir ekkert getað spilað frá Ryder bikars keppninni en hann fór í augnaðgerð til að leiðrétta sjónskekkju. Um aðgerðina sagði Garcia í fréttatilkynningu í dag: „Ég fór í aðgerðina og allt gekk vel.“ „Ég mun spila í 3 mótum í lok árs. Ég vona að ég geti spilað vel, lokið leik með stæl og komið mér í form fyrir næsta ár.“ Það fyrsta af mótunum sem Garcia minntist á hefst 22. nóvember þegar Garcia fer til Dúbaí til að spila í European Tour Championship. Þar á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 17:00
25 efstu á peningalista Web.com hlutu kortin sín á PGA Tour fyrir 2013

Tuttugu og fimm kylfingar af Web.com Tour fengu kortin sín á PGA TOUR afhent í gær á Web.com Tour Championship á TPC Craig Ranch nálægt Dallas. Casey Wittenberg varð efstur í ár á peningalista Web.com Tour með $433,453 í verðlaunafé. Wittenberg er 27 ára frá Memphis, Tennessee og hlýtur fullan keppnisrétt á PGA Tour 2013 og þar að auki boð um að spila á THE PLAYERS Championship í maí. Justin Bolli tók næststærsta stökk í sögu mótaraðarinnar þegar hann fór úr 44. sætinu í það 9. á síðustu metrunum og tryggði sér þar með keppnisrétt á PGA Tour. Aðeins Matt Every hefir komist lengra á einu móti þegar hann fór úr 49. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: James Alexander Barclay – 29. október 2012
James Alexander Barclay fæddist 29. október 1923 í Glasgow og hefði orðið 89 ára í dag en hann lést 3. desember á s.l. ári, 88 ára að aldri. Barclay var rannsóknarmaður og forstjóri í kanadíska olíubransanum, en einnig kylfingur og höfundur 626 bls. golfbókar, sem nefnist: Golf in Canada – A history, sem er yfirgripsmesta verk, um golf sem gefið hefir verið út í Kanada. Barclay hóf feril sinn með því að spila með járnum með valhnotu (hickory) sköftum í Skotlandi. Hann útskrifaðist í efnafræði frá Glasgow háskóla og vann stærstan part ævinnar í olíubransanum og náði hæst að verða varaforstjóri olíufyrirtækis. Hann fluttist til Kanada 1968, en settist í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 11:00
Rory vann Tiger í 360 milljóna hring þeirra í Kína

Rory McIlroy og Tiger fengu um 3 milljónir bandaríkjadala (360 milljónir íslenskra króna) fyrir að spila sýningahring á Lake Jinsha International golfvellinum í Kína í dag. Þar af fékk Tiger 2 milljónir en Rory 1 milljón. Það var ákveðið fyrirfram. Það var hins vegar Rory sem bar sigurorð af Tiger á hringnum með 1 höggi. Það var búinn að vera mikill spenningur meðal golfáhangenda í Zhengzhou í Kína, enda ekki á hverjum degi sem nr. 1 og nr. 2 á heimslistanum mætast í einvígi sem þessu. Rory hafði betur var á 5 undir pari, 67 höggum en Tiger á 68 höggum. Þeir léku báðir um helgina; Rory í Shanghaí þar sem hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 10:45
Peter Hanson er kominn í 17. sætið á heimslistanum!

Eftir sigurinn í gær á BMW Masters í Shanghaí er Svíinn Peter Hanson kominn í 17. sætið á heimslistanum og er það besti árangur, sem hann hefir náð á heimslistanum. Hanson fór upp um 8 sæti úr 25. sætinu í 17. sætið. Hann myndi hafa farið enn ofar ef Nick Watney hefði ekki sigrað á CIMB Classic í Malasíu og farið úr 22. sætinu í 16. sætið. Staða efstu 10 á heimslistanum er annars þessi: 1 Rory McIlroy 2 Tiger Woods, 3 Luke Donald, 4 Lee Westwood, 5 Justin Rose, 6 Adam Scott, 7 Webb Simpson, 8 Bubba Watson, 9 Brandt Snedeker og 10 Jason Dufner. Til þess að sjá Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

