Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 12:30
PGA: Nick Watney er sigurvegari CIMB Classic – Tiger lauk leik í 4. sæti – hápunktar og högg 4. dags

Það var Nick Watney sem stóð uppi, e.t.v. nokkuð óvænt, sem sigurvegari CIMB Classic á The Mines Resort & Golf Club í Kuala Lumpur, í Malasíu. Hann átti ótrúlegan lokahring upp á 61 högg!!!! …. þar sem hann fékk 11 fugla, 6 pör og 1 skolla á 18. holu, en sú 18. virðist reyndist kylfingunum í mótinu býsna erfið. Segja má með nokkrum sanni að Nick hafi verið að líta á 59 högg því ef hann hefði náð fugli í stað skolla á 18. hefði sú orðið raunin! Watney bætti vallarmet sem Boo Van Pelt setti í gær um 1 högg – (en Van Pelt fékk einmitt skramba á 18 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 12:00
LPGA: Suzann Pettersen sigraði á Sunrise LPGA Taíwan Championship

Það var norska frænka okkar, Suzann Pettersen, sem stóð uppi sem sigurvegari í Tayouan, Yang Mei, Taíwan á Sunrise LPGA Taíwan Championship mótinu. Þetta er 2. sigur hennar í röð á LPGA en hún sigraði aðeins fyrir viku síðan á Hanabank Championship í Incheon í Suður-Kóreu. Með þessu er hún 6. leikmaður LPGA á þessu 2012 keppnistímabili til þess að sigra í fleirum en 1 móti keppnistímabilsins og hún er aðeins ein af 3 kvenkylfingum LPGA til þess að sigra tvö mót í röð: hinum sem það tókst í ár eru Yani Tseng sem sigraði á RR Donnelley LPGA Founders Cup og síðan the Kia Classic viku eftir viku í mars nú Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 11:30
Evróputúrinn: Peter Hanson sigraði í Shanghai

Hinn 35 ára Peter Hanson frá Svíþjóð stóðst frábæra síðbúna atlögu frá Rory McIlroy og vann stærsta sigur sinn á ferlinum á BMW Masters í Shanghai, Kína nú fyrr í morgun. Hanson lék á samtals 21 undir pari, 267 höggum (66 64 70 67) en Rory var á samtals 20 undir pari 268 höggum (67 65 69 67). Fyrir sigurinn hlaut Hanson tékka upp á € 888,561 (u.þ.b. 146 milljónir íslenskra króna). Luke Donald og Ian Poulter, enn aðrir í Ryder Cup liði Evrópu urðu í 3. og 4. sæti; Luke Donald á samtals 17 undir pari og Poults á 16 undir pari. Hanson vann nr. 1 á heimslistanum með 1 höggi eftir að báðir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 11:00
LET: Carlota Ciganda sigraði í Kína

Hin 22 ára Carlota Ciganda frá Spáni, sem er nýliði á Evrópumótaröð kvenna, vann nú í morgun 2. titil sinn á LET á Suzhou Taihu Ladies Open í Suhou í Kína. Hún kom í hús í morgun á nýju vallarmeti 64 höggum í Suzhou Taihu International Golf Club; missti hvergi högg, spilaði skollalaust fékk 10 pör og 8 fugla en fuglana dreifði hún jafnt 4 á fyrri 9 og 4 á seinni 9. Samtals spilaði Carlota á 17 undir pari 199 höggum (65 70 64) og átti 7 högg á Caroline Masson, sem varð í 2. sæti. Sautján undir par er nýtt met í 54 holu mótinu, einu höggi betra Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 22:40
Bandaríska háskólagolfið: Axel í 1. sæti eftir 2. hring á Bridgestone – var á 67 glæsihöggum!!!

Axel Bóasson, GK, lék glæsilega á 2. hring Bridgestone Golf Collegiate mótsins, sem fram fer í Grandover Resort & Conference Center í Greensboro, Norður-Karólínu nú um helgina. Þátttakendur eru 72 frá 13 háskólum. Axel spilaði á 5 undir pari, 67 höggum; fékk 7 fugla, 9 pör og 2 skolla. Samtals er Axel búinn að spila á 8 undir pari, 136 höggum (69 67). Hann er í efsta sæti fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun og þ.a.l. einnig á besta skori í liði The Bulldogs, þ.e. golfliðs Mississippi State!!! Axel er með 2 högga forystu á þann sem næstur kemur Chris Robb frá Chattanooga háskólanum. Glæsilegur árangur hjá Axel!!! Haraldur Franklín, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 22:00
Ólafur Björn komst ekki á 2. stig PGA úrtökumótsins – spilaði lokahringinn á 71
Ólafur Björn Loftsson, NK, tók þátt í úrtökumóti fyrir PGA Tour í Florence, Suður-Karólínu. (Komast má á heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR:) Ólafur Björn spilaði samtals á 10 yfir pari, 290 höggum (74 71 74 71). Aðeins 17 efstu og þeir sem voru jafnir í 17. sætinu komust áfram á 2. stig úrtökumótsins. Því miður komst Ólafur Björn ekki á 2. stig úrtökumótsins en hann hafnaði í 55. sæti. Niðurskurður var miðaður við samtals 3 undir pari og Ólafur Björn því 13 höggum frá því að komast í gegnum niðurskurð. Í efsta sæti varð Jonathan Hodge frá Tennessee á samtals 9 undir pari. Ýmsir þekktir kylfingar tóku auk Ólafs Björns Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 18:38
Bandaríska háskólagolfið: Axel í 2. sæti eftir 1. hring á Bridgestone mótinu!!!

Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR, hafa nú lokið við að spila 1. hring á Bridgestone Golf Collegiate mótinu, sem fram fer í Greensboro Norður-Karólínu. Axel Bóasson spilaði á glæsilegum 3 undir pari, 67 höggum!!!!! …. og er í 2. sæti á mótinu af 72 keppendum. Axel fékk 7 fugla og 4 skolla á 1. hring. Hann var á besta skori í liði Mississippi State. Glæsilegt hjá Axel!!! Haraldur Franklín kom inn á 2 yfir pari, 74 höggum á 1. hring og er T-32 þ.e. jafn öðrum í 32. sæti og í 4.-5. sæti í liði Mississippi State sem er í 2. sæti í liðakeppninni. Annar hringurinn er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 16:30
GKG hafnaði í 6.-7. sæti á EM klúbbliða – Guðjón Henning spilaði best lokadaginn var á 70 höggum!

GKG lék á einu höggi undir pari í dag og endaði í 6.-7. sæti á EM klúbbliða sem haldið var á Minthis vellinum á Kýpur. Alls tóku 25 klúbblið þátt í mótinu. Samtals léku strákarnir á tveimur höggum undir pari og deildu 6. sætinu ásamt sigurvegurum í fyrra sem komu frá Frakklandi. Líkt og hér heima vinna klúbbar sér inn þátttökurétt eftir sveitakeppnir í sínu landi. Frakkar voru því með tvö lið í mótinu og sigraði lið Frakka frá Golf Club d’Ormesson á 27 höggum undir pari. Alfreð Brynjar stóð sig best okkar manna og lék mjög vel í mótinu, en hann var á 67-70-71, alls 5 höggum undir pari og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 16:15
Afmæliskylfingar dagsins: Anna Jódís og Björgvin Sigurbergsbörn – 27. október 2012
Afmæliskylfingar dagsins eru tvíburarnir frábæru úr Hafnarfirði; Björgvin Sigubergsson, margfaldur Íslandsmeistari í golfi og golfkennari afrekskylfinga hjá Keili til margra ára og Anna Jódís Sigurbergsdóttir, einn forgjafarlægsti kvenkylfingur landsins. Anna Jódís og Björgvin eru fædd 27. október 1969. Komast má á facebook síðu Björgvins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Björgvin Sigurbergsson (43 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Carol Semple, 27. október 1948 (64 ára); Patty Sheehan, 27. október 1956 (56 ára); Des Terblanche (frá Suður-Afríku) 27. október 1965 (47 ára) ….. og …… Sóley Gyða Jörundsdóttir (52 ára) Helena Árnadóttir (28 years old) Alana Parker Csoka Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 15:45
Bandaríska háskólagolfið: Axel og Haraldur Franklín hefja leik á Bridgestone Golf Collegiate í dag

Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR sem báðir spila með The Bulldogs, golfliði Mississippi State hefja leik í dag á Bridgestone Golf Collegiate, sem fram fer í Greensboro, Norður-Karólínu. Sjá má umfjöllun um mótið á facebook síðu Mississippi State með því að SMELLA HÉR: Spilað er á golfvelli Grandover Resort & Conference Center. Þátttakendur eru 72 frá 13 háskólum. Eftir 12 holur er Haraldur Franklín á 1 undir pari og í 9. sæti – Það sama er að segja um Axel hann er á 1 undir pari og í 9. sæti, en er bara búinn að spila 10 holur. Golf 1 óskar Axel og Haraldi Franklín góðs gengis Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

