Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2012 | 08:00
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór í 9. sæti á Red Wolf Fall Beach Classic mótinu eftir fyrri dag

Andri Þór Björnsson, GR og Geaux Colonels þ.e. golflið Nicholls State háskólans í Louisiana spiluðu í gær fyrstu tvo hringina á Red Wolf Fall Beach Classic mótinu. Mótið fer fram á golfvelli í Peninsula golfklúbbnum í Gulf Shores, Alabama. Þátttakendur eru 70 frá 13 háskólum. Þetta er 3 hringja mót, 2 hringir voru spilaðir í gær og lokahringurinn verður spilaður í kvöld. Andri Þór lék fyrstu tvo hringina á samtals 147 höggum (79 68) átti afleitan fyrri hring en þeim mun betri seinni hring! Hann deilir sem stendur 9. sætinu í mótinu, sem er frábær árangur!!! Andri Þór er á langbesta skorinu í golfliði Nicholls State, sem er í 8. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2012 | 06:30
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og golflið ETSU í 3. sæti á Hawaii eftir 1. dag

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, og golflið East Tennessee State spiluðu 1. hring á Warrior Wave Intercollegiate mótinu í gær, en það fer fram á golfvelli Makai golfklúbbsins á golfstað St. Regis Princeville, í Princeville, á Hawaii. Mótið fer fram dagana 5.-7. nóvember og er 1 hringur spilaður á hverjum degi. Alls eru þátttakendur 80 frá 16 háskólum. Það er 10 tíma, tímamismunur milli Íslands og Hawaii; Guðmundur Ágúst fór út kl. 7:57 að staðartíma í gær, sem samsvaraði 17:57 að íslenskum tíma. Í kvöld fer Guðmundur út kl 7:39 að staðartíma af 1. teig, þ.e. kl. 17:39 að íslenskum tíma og má frá þeim tímapunkti fylgjast með gengi Guðmundar Ágústs hér Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2012 | 19:30
Hvern haldið þið að Tiger kjósi í bandarísku forsetakosningunum?

Tiger Woods hefir mestallan feril sinn verið skráður sem óháður (independent) skv. bandarískum kosningaskrám. Þ.e. opinberlega styður hann hvorugan risaflokkanna í Bandaríkjunum, demókrata eða repúblíkana…. og það sparar honum alskyns leiðindi því hann þarf að umgangast menn beggja trúarbragða. En það að Tiger er skráður þýðir að hann kýs. Hvern haldið þið að hann kjósi? Mann sem ELSKAR golfleikinn eða mann sem hefir aldrei haldið á kylfu í hendinni? (Sbr. skemmtilega grein Golf Digest, sem ber það skemmtilega heiti: „What do Mitt Romney, Lady Gaga and Snoop Dog have in common?“ ……. þ.e. „Hvað eiga Mitt Romney, Lady Gaga og Snoop Dog sameiginlegt?“ SMELLIÐ HÉR: ) Mann sem hann hefir margoft Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2012 | 16:00
Ian Poulter kominn í 15. sætið á heimslistanum

Með sigri sínum á WGC-HSBC Champions er Ian Poulter kominn í 15. sætið á heimslistanum; stekkur upp um 11 sæti á heimslistanum úr 26. sætinu, sem hann var í, í síðustu viku. Staða efstu 6 á heimslistanum er að óbreytt: Rory er í 1. sæti; Tiger er í 2.sæti; Luke Donald er í 3. sæti; Lee Westwood er í 4. sæti; Justin Rose er í 5. sæti og Adam Scott í 6. sæti. Breytingin kemur síðan í 7. sæti en þangað er kominn Jason Dufner úr 10. sæti eftir gott gengi í Asíu að undanförnu, en einkum vegna 2. sætisins á HSBC Champions í gær. Webb Simpson dettur við það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2012 | 14:00
Nýju stúlkurnar á LET 2012 (30. grein af 34): Stephanie Kirchmayr

Nú á bara eftir að kynna þær stúlkur sem urðu í fimm efstu sætunum á Q-school LET á La Manga 2012. Tvær stúlkur urðu jafnar í 4. sæti þær Stephanie Kirchmayr frá Þýskalandi sem kynnt verður í dag og Marjet Van Der Graaff frá Hollandi. Byrjað verður að kynna Stephanie í dag. Stephanie fæddist 24. janúar 1985 í Þýskalandi og er því 27 ára. Hún er fremur hávaxin 1,82 metra á hæð með brúnt hár og blá augu. Hún byrjaði að spila golf 8 ára og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á að hún byrjaði í golfi. Hún býr í Nürnberg í Bayern. Hún er með tvöfalt aðalfag Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2012 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Einar Haukur Óskarsson – 5. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Einar Haukur Óskarsson. Einar Haukur er fæddur 5. nóvember 1982 og á því 30 ára stórafmæli í dag!!! Einar Haukur byrjaði að spila golf 12 ára gamall. Hann lærði golfvallarfræði í Elmwood College og var vallarstjóri GOB, en flutti sig yfir í Golfklúbbinn Keili á þessu ári. Meðal afreka hans í golfinu er að sigra á 3. stigamóti íslensku mótaraðarinnar 2009. Eins fékk Einar Haukur silfrið á Íslandsmeistaramótinu eftirminnilega í holukeppni 2009, eftir æsilegan úrslitaleik við Kristján Þór Einarsson, GK, (þá GKJ). Meðal helstu afreka Einars Hauks í ár, 2012, er að sigra á 6. og síðasta móti Eimskipsmótaraðarinnar, Símamótinu, í Grafarholtinu. Á fyrsta móti Eimskipsmótaraðarinnar, Örninn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2012 | 11:00
Hver er kylfingurinn: Cassandra Kirkland?

Franski kylfingurinn Cassandra Kirkland vann í gær fyrsta sigur sinn á LET, þegar hún sigraði á Sanya Ladies Open í Sanya í Kína. Þetta er sjötta árið sem hún spilar á LET og því langþráður sigur hjá henni sem hún vann í gær. Cassandra Elaine Kirkland fæddist 13. október 1984 í París og því nýorðin 28 ára. Hún veit það eflaust ekki en hún á sama afmælisdag og spænski kylfingurinn Gonzalo Fernández-Castaño, sem er 4 árum eldri en hún. Cassandra byrjaði að spila golf 7 ára og er í þeim fræga franska klúbbi Club Saint Nom La Breteche. Meðal áhugamála Cassöndru eru íþróttir almennt, lestur góðra bóka, tónlist, að ferðast, eldamennska, að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2012 | 10:00
Champions Tour: Tom Lehman fyrstur til að verða stigameistari 2 ár í röð – myndskeið

Bandaríski kylfingurinn Tom Lehman, 53 ára, varð í gær stigameistari Champions Tour, sem er mótaröð atvinnukylfinga í Bandaríkjunum, sem eru 50 ára og eldri, þ.e. öldungamótaröðin. Stigameistaratitillinn var í höfn eftir að Lehman tryggði sér sigur á Charles Schwaab Championship, lokamóti Champions mótaraðarinnar, en spilað var á Conchise golfvelli, Desert Mountain golfklúbbsins í Scottsdale, Arizona. Sigur Lehman var sannfærandi en hann spilaði á –22 undir pari, 258 höggum (68-63-62-65) og átti 6 högg á þann sem næstur kom Jay Haas. Þetta er 2. sigur Lehman á Champions mótaröðinni á árinu en hann varði titil sinn á Regions Tradition mótinu, 10. júní s.l. Eftir sigurinn í mótinu sagði Lehman: „Það er oft í heiminum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2012 | 09:25
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst hefur leik á Hawaii í dag

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, og golflið East Tennessee State eru nú komin til Hawaii, þar sem ætlunin er að keppa á Warrior Wave Intercollegiate. Gestgjafi mótsins er University of Hawaii. Spilað er á golfvelli Makai golfklúbbsins á golfstað St. Regis Princeville, í Princeville, Hawaii. Mótið fer fram dagana 5.-7. nóvember og er 1 hringur spilaður á hverjum degi. Alls eru þátttakendur 80 frá 16 háskólum. Guðmundi Ágúst gekk svo vel í síðasta móti í bandaríska háskólagolfinu að sérstaklega er fjallað um það á heimasíðu ETSU, SMELLIÐ HÉR: Golf 1 óskar Guðmundi Ágúst góðs gengis á Hawaii í dag!!! Fylgjast má með stöðunni á Warrior Wave Intercollegiate og gengi Guðmundar Ágústs með Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2012 | 08:00
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór hefur leik á Red Wolf Fall Beach Classic mótinu

Andri Þór Björnsson, GR og Geaux Colonels þ.e. golflið Nicholls State háskólans í Louisiana spila í dag á Red Wolf Fall Beach Classic mótinu. Mótið fer fram á golfvelli í Peninsula golfklúbbnum í Gulf Shores, Alabama. Þetta er 3 hringja mót, 2 hringir spilaðir í dag og 1 á morgun og lið 13 háskóla sem keppa. Þessi lið eru eftirfarandi: Nicholls State, Arkansas State, Arkansas-Little Rock, New Orleans, Murray State, Illinois State, Rice, Southern Eastern Louisiana, Stephen F. Austin, Tennessee-Martin, Texan Pan American, Troy og Vanderbilt. Golf 1 óskar Andra Þór góðs gengis í dag!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

