Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2012 | 11:00
Evróputúrinn: Birgir Leifur hefur keppni á 2. stigi úrtökumóts í Murcia í dag

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er einmitt þegar þessar línur eru ritaðar að hefja keppni á 2. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina, í Murcia, Spáni, í dag. Birgir Leifur komst á 2. stig úrtökumótsins eftir frábæra frammistöðu á 1. stigi úrtökumótsins á Circolo golfvellinum í Bogogno á Ítalíu, þar sem hann varð í 23. sæti í lok september s.l.; en 28 efstu í því móti komust áfram á stigið sem hefst í dag. Lokaskor Birgis Leifs á Ítalíu voru 2 undir pari, 286 högg (71 74 69 72). Á 2. stiginu er keppt á El Valle golfvellinum í Murcia á Spáni, sem er mörgum íslenskum kylfingnum að góðu kunnur. Golf Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2012 | 10:00
Rory segir gagnrýni á sig fyrir að taka ekki þátt í WGC HSBC Champions mótinu réttmæta

Nr. 1 í heimi, Rory McIlroy hefir varið ákvörðun sína að sleppa því að spila á móti s.l. viku, WGC HSBC Champions í Kína, í síðustu viku. Rory spilar aftur í Asíu í þessari viku nánar tiltekið á Singapore Open eftir að hafa tekið sér viku frí til þess að hvetja kærestu sína, Caroline Wozniacki í Tournament of Champions í Búlgaríu; hann sagði að vikufríið hefði verið nauðsynlegt þrátt fyrir að golfáhangendur kynnu að hafa verið vonsviknir. „Mér finnst gagnrýnin sanngjörn …. þetta er heimsmót, eitt af þeim stærri. Það var erfitt að missa af því, sérstaklega þegar maður gat bara fylgst með fyrir framan sjónvarpið,“ sagði Rory við fréttamenn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2012 | 08:45
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór og Nicholls State luku leik í 10. sæti á Red Wolf Fall Beach Classic mótinu

Andri Þór Björnsson, GR og Geaux Colonels þ.e. golflið Nicholls State háskólans í Louisiana luku leik í gær á Red Wolf Fall Beach Classic mótinu. Mótið fór fram á golfvelli í Peninsula golfklúbbnum í Gulf Shores, Alabama. Þátttakendur voru 70 frá 13 háskólum. Andri Þór spilaði á samtals 229 höggum (79 68 82) Hann lauk leik jafn öðrum í 32. sæti og var á besta skorinu í golfliði Nicholls State, sem varð í 10. sæti í liðakeppninni. Næsta mót Geaux Colonels, golfliðs Nicholls State er ekki fyrr en 4. febrúar 2013, þ.e. Rice Intercollegiate í Westwood golfklúbbnum, í Houston, Texas. Til þess að sjá úrslitin á Red Wolf Fall Beach Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2012 | 07:30
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst í 17. sæti eftir 2. dag í Hawaii

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, og golflið East Tennessee State spiluðu 2. hring á Warrior Wave Intercollegiate mótinu í gær, en það fer fram á golfvelli Makai golfklúbbsins á golfstað St. Regis Princeville, í Princeville, á Hawaii. Mótið fer fram dagana 5.-7. nóvember og lýkur í dag. Þátttakendur eru 80 frá 16 háskólum. Það er 10 tíma, tímamismunur milli Íslands og Hawaii og í gær fór Guðmundur út kl 7:39 að staðartíma af 1. teig, þ.e. kl. 17:39 að íslenskum tíma. Guðmundur Ágúst er búinn að spila á samtals sléttu pari, 144 höggum (74 70) átti glæsihring í gær upp á 2 undir pari, 70 högg, hring þar sem hann fékk 3 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2012 | 20:00
NGA: Alexander og Þórður Rafn báðir á 73 eftir 1. dag í Shingle Creek

Í dag fer fram 3. mótið á NGA Pro Tour – Bridgestone Winter Series. Nú er spilað á Shingle Creek golfvellinum, í Orlandó, Flórída. Þetta er stórt mót með 106 þátttakendum og meðal þeirra sem þátt taka eru sem fyrr GR-ingarnir Þórður Rafn Gissurarson og Alexander Aron Gylfason. Báðir áttu ágætis hringi í dag upp á 1 yfir pari, 73 högg. Þórður Rafn fékk 3 fugla, 11 pör og 4 skolla alveg eins og Alexander. Skorin sem komin eru upp eru mjög lág og sem stendur er James Vargas, frá Miami, í efsta sæti á 7 undir pari, 65 högg. Það eru 60 efstu og þeir sem jafnir eru í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2012 | 15:00
Nýju stúlkurnar á LET 2012 (31. grein af 34): Marjet Van der Graaff

Hollenski kylfingurinn Marjet Van der Graaff varð T-4 á Q-school LET nú fyrr á árinu og hefir því keppt keppnistímbilið 2012 á Evrópumótaröð kvenna. Marjet fæddist 22. júlí 1982 í Roosendaal en Nispen í Hollandi og varð því 30 ára á árinu. Hún er 1,68 m há með brúnt hár og græn augu. Hún byrjaði að spila golf 13 ára og er félagi í Broekpolder GC í Vlaardingen, heima í Hollandi. Hún var í háskóla heima í Hollandi í viðskiptafræði. Hún er í hollenska landsliðinu, sem jafnframt er aðalstyrktaraðili hennar á LET. Van der Graaf hefir verið á LET í 6 ár en nýliðatímabil hennar var 2007. Sem áhugamaður vann Marjet Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2012 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Juliana Murcia Ortiz – 6. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Juliana Murcia Ortiz, frá Kólombíu. Juliana er fædd 6. nóvember 1987 og því 25 ára í dag!!! Juliana er ein af nýju stúlkunum á LPGA keppnistímabilið 2012 og má sjá nýlega kynningu Golf 1 á afmæliskylfingnum með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mark Hume McCormack, (f. 6. nóvember 1930 – d. 16. maí 2003); John Francis Pott, 6. nóvember 1935 (77 ára); Halldór Bragason, f. 6. nóvember 1956 (56 ára); Scott Piercy, 6. nóvember 1978 (34 ára); Jennie Lee 6. nóvember 1986 (26 ára); Pétur Aron Sigurðsson, GL, f. 6. nóvember 1994 (18 ára)…. og ….. Gaflaraleikhúsið Hafnarfirði (22 ára) Juanderful Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2012 | 11:00
Graeme McDowell vísar á bug staðhæfingum Nick Faldo að Rory muni eiga í vandræðum með skiptin frá Titleist í Nike

Nánasti vinur Rory McIlroy í golfinu, G-Mac þ.e. Graeme McDowell, lýsti því að vinur sinn Rory myndi ekki eiga í nokkrum vandræðum með að skipta úr Titleist í Nike, s.s. sexfaldur risamótameistari Sir Nick Faldo hefir gefið undir fótinn. Graham McDowell sjálfur skipti 2010 frá Callaway í Cleveland/Srixon. Skiptin hjá McDowell tókust vel og ólíkt því sem Faldo heldur fram sér hann engin vandkvæði á skiptum Rory frá Titleist í Nike. „Sexfaldi risamótsmeistarinn (Sir Nick Faldo) ólst upp á tímabili þegar það var gríðarlegur munur á bestu samanborið við meðalgolfvöruframleiðendum og nú erum við að tala um golfvörufyrirtæki sem verja milljónum á milljónum ofan í R&D (þ.e. rannsóknir og þróun).“ „Það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2012 | 09:56
Golfútbúnaður: Nýi Nike VRS Covert Tour dræverinn

Nýi Nike VRS Covert Tour dræverinn var kynntur í gær …. sem listaverk. SMELLIÐ HÉR: Ein helsta nýjungin er að hægt er að breyta lofti dræversins úr 8,5° í 12° og eins kylfuandlitinu úr opnu í lokuðu. Jafnframt er holrúm fyrir aftan höggflötinn líkt og er í járnum. Ennfremur á hann að geta framkallað mikinn sveifluhraða, eins og allir góðir dræverar og hljóðið í honum þykir einstaklega þægilegt. Um nýja Nike VRS Covert Tour dræverinn sagði Tom Stites, yfirmaður hönnunarmála hjá Nike m.a.: „Við höfum endurhugsað hvað frammistaða þýðir.“ Michelle Wie, sem er á samningi hjá Nike á aðeins eitt orð um nýja dræverinn: „Djarfur.“ Til þess að sjá kynningarmyndskeið af Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2012 | 09:00
Jim Flick deyr – 82 ára að aldri

Jim Flick, sem var golfkennari í yfir 50 ár og var með marga fræga golfnemendur, menn á borð við Tom Lehman og Jack Nicklaus, dó í gær úr krabbameini í brisi, 82 ára að aldri. Hann horfði á gamla nemanda sinn Tom Lehman ná því að verða stigameistara á Champions öldungamótaröðinni 2. árið í röð s.l. sunnudag, en Lehman talaði við Flick sunnudaginn fyrir sigurinn á Charles Schwab Cup Championship í Desert Mountain. Flick kenndi golf í 23 löndum og stýrði m.a. námskeiðum í golskólum Golf Digest og ESPN. Hann var yfirgolfkennari í Desert Mountain í Scottsdale, Arizona, í 20 ár og skrifaði 5 golfbækur. Nicklaus leitaði m.a. til Flick 1990 eftir Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

