Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2012 | 06:40
Evróputúrinn: Rory McIlroy svo til búinn að tryggja sér efsta sæti peningalistans

Rory McIlroy er svo til búinn að tryggja sér efsta sæti peningalista Evróptúrsins þar sem 5 helstu keppinautar hans hafa ákveðið að taka ekki þátt í 2 af þeim 3 mótum, sem eftir eru á árinu. (Sjá peningalistann með því að SMELLA HÉR: ) Þessir fimm eru Peter Hanson (nr. 2 á peningalistanum) og ensku kylfingarnir Justin Rose (þriðja sæti) og Ian Poulter (fjórða sæti) ásamt nýliðanum Branden Grace (fimmta sæti) og Ernie Els (sjötta sæti) – en þeir hafa ákveðið að taka ekki þátt í Barclays Singapore Open og mótinu í vikunni þar á eftir UBS Hong Kong Open. Hanson er í 2. sæti og er €764,776 á eftir McIlroy Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2012 | 19:30
Rory horfði á Caroline sína tapa í Búlgaríu

Caroline Wozniacki, kæresta Rory McIlroy tapaði í kvöld fyrir Nadiu Petrovu frá Rússlandi 6-2 og 6-1, að Rory áhorfandi. Rory keppti ekki á WGC-HSBC Champions til þess að geta stutt Caroline, en hún spilaði meidd í Tour of Champions í tennisnum. Læknir varð m.a. að gera að meiðslum á vinstri kálfa hjá henni undir leiknum. Caroline byrjaði 2012 í 1. sæti en hefir átt fremur slakt tímabil, fyrir utan að hún sigraði Korean Open í september og tók síðan Kremlin Cup í október. Þetta er í fyrsta sinn sem Tournament of Champions í tennisnum er haldið í Búlgaríu – en Búlgaría virðist vera „heitur“ staður undir mótshald í allskyns íþróttagreinum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2012 | 18:15
GKJ: Hlíðavöllur slapp ekki við óveðrið

Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ slapp ekki við óveðrið frekar en margir aðrir klúbbar og í reynd landsmenn allir. Þakplötur fuku af hluta gömlu vélaskemmunnar við golfskálann, skjólveggur við æfingasvæði brotnaði að mestu niður, sky diskur við golfskála hvarf. Völlurinn slapp að mestu við fyrstu athugun en reyndar flettist ein lengja af þökum upp á nýjum meistaraflokks teig á 8. holu og ruslafata fauk niðu í gil af einhverjum teignum. Hægt er að skoða myndir frá tjóninu á Hliðavelli með því að SMELLA HÉR: Heimild: GKJ
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2012 | 18:00
18 atriði sem eru jákvæð við golf (4. hluti af 6)

Hér verður fram haldið með 3 atriði í viðbót sem David Owen, sem skrifar fyrir Golf Digest telur jákvæð við golfleikinn. Nú verður nokkurt hlé á þessum greinaþætti hér á Golf 1 og er ástæðan einfaldlega sú að Owen er ekki búinn að birta næstu 6 atriði sem hann telur jákvæð við golfið. Við hér á Golf 1 værum ekki í vandræðum með að bæta öðrum 6 við eða setja fram a.m.k. 72 atriði sem eru jákvæð við golfið (heila 4 hringja keppni 🙂 ) … en við bíðum samt spennt hér hvað Owen hefir fram að færa. Hér fara svo síðustu 3 atriðin, sem Owen hefir birt og telur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2012 | 16:30
Guan Tian-lang verður sá yngsti til að taka þátt í Masters – aðeins 14 ára

Hinn 14 ára Guan Tian-lang tryggði sér sigur á Asia-Pacific Amateur Championship, en þeim sigri fylgdi sá frábæri bónus að fá að taka þátt í The Masters risamótinu í Augusta, Georgiu, á næsta ári. Guan er nýorðinn 14 ára, er fæddur 25. október 1998 og verður því 14 ára og 2 árum yngri en Matteo Manassero var þegar hann spilaði 2010 í mótinu og setur þ.a.l. nýtt aldursmet. „Ég er svo spenntur,“ sagði Guan. Ég er virkilega ánægður með að vera yngstur á the Master og ég hlakka til að spila þar. Ég veit ekki hvað mun gerast þar, en ég veit að mig langar til að standa mig vel,“ sagði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2012 | 16:15
Afmæliskylfingur dagsins: Aðalheiður Laufey Aðalsteinsdóttir – 4. nóvember 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Aðalheiður L. Aðalsteinsdóttir. Aðalheiður fæddist 4. nóvember 1964. Hún er frá Húsavík og mikill kylfingur. Aðalheiður er gift og á 3 börn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Aðalheiður L Aðalsteinsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Seve Benson, 4. nóvember 1986 (26 ára) …. og …… Snyrti Og Nuddstofan Paradís (32 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2012 | 15:30
Nýju stúlkurnar á LET 2012 (29. grein af 34): Elin Emanuelsson

Elín Emanuelsson varð í 6. sæti á Q-school LET og er því búin að spila á LET í ár. Um Elínu hefir verið sagt að hún sameini snilli löndu sinnar Anniku á golfvellinum og fegurð nöfnu sinnar Nordegren. Elín fæddist í Nacka í Svíþjóð þann 10. október 1984 og er því nýorðin 28 ára. Hún byrjaði að spila golf með bróður sínum þegar hún var 9 ára. Samt var það alltaf handboltinn sem heillaði hana meira og hún spilaði í 11 ár handbolta. Hún var m.a. sænskur meistari sem unglingur með liði sínu 2000 og 2001 og síðan í 1. deild 2003. Árin 2003-2007 var Elín í Texas Christian University þar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2012 | 14:30
HSBC framlengdi styrk sinn við WGC-HSBC Champions mótið til næstu 3 ára og hækkaði verðlaunafé um $1,5 milljónir

HSBC bankinn tilkynnti á blaðamannafundi að loknu WGC-HSBC Champions mótinu að bankinn myndi styrkja mótið næstu 3 árin og að verðlaunafé fyrir árið 2013 yrði hækkað um $ 1,5 milljónir. Þar með er verðlaunapotturinn orðinn $ 8,5 milljónir. Eins mun WGC-HSBC Champions mótið verða að fullu viðurkennt sem viðburður á PGA Tour og sigurvegari mótsins mun m.a. framvegis fá 3 ára undanþágu til þess að spila á PGA Tour. (Hrikalega ergilegt eflaust fyrir Poulter, sem ekki fær sjálfkrafa 3 ára framlengingu á keppnisrétti sínum á PGA Tour með sigrinum í morgun!!! …. þar sem breytingarnar koma ekki til framkvæmda fyrr en 2013.) Þessar breytingar færa heimsmótið í Mission Hills, í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2012 | 12:15
LET: Cassandra Kirkland vann 1. sigur sinn á LET á Sanya Ladies Open

Franska stúlkan Cassandra Kirkland vann fyrsta sigur sinn á LET á Sanya Ladies Open á Yalong Bay golfvellinum í Kína nú fyrr í morgun. Þessi 28 ára kylfingur frá París (Kirkland) hafði eftirfarandi að segja að loknum 1. sigri sínum á LET: „Þetta kom á óvart vegna þess að ég hef strögglað svo mikið á þessu ári og ég var ekki með 6-járnið mitt þannig að ég bjóst ekki við neinu í þessari viku og var ekki að setja sjálfa mig undir neina pressu. Ég var ekki stressuð þarna úti þannig að það var virkilega gott.“ Með sigrinum lauk hún eyðimerkurgöngu sigurleysis en Kirkland er búin að spila á LET Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2012 | 12:00
WGC: Ian Poulter sigraði á HSBC Champions – hápunktar og högg 4. dags

Árið 2012 virðist vera ár enska kylfingsins Ian Poulter – hetju liðs Evrópu í Ryder Cup og nú sigurvegara á heimsmótinu í Mission Hills í Kína. Ian Poulter sigraði samtals á 21 undir pari, 267 höggum (69 68 65 65). Poulter átti 2 högg á þá 4 sem deildu 2. sætinu þá Jason Dufner, Scott Piercy, Ernie Els og Phil Mickelson, sem allir spiluðu á 19 undir pari, 269 höggum. Louis Oosthuizen og Lee Westwood sem leiddu fyrir lokahringinn urðu að láta sér lynda að deila 6. sætinu, en báðir áttu „afleita“ lokahringi sem ekki dugðu til sigurs, báðir voru á parinu, 72 höggum, sem ekki dugir þegar aðrir fara Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

