Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Morten Örum Madsen (3. grein af 28)

Morten Örum Madsen er einn af 4 kylfingum, sem urðu í 16. sæti á lokaúrtökumóti  Q-school Evrópumótaraðarinnar sem fram fór á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni og marði hann því rétt að komast inn og hljóta kortið sitt fyrir keppnistímabilið 2013. Hann er jafnframt hinn Daninn sem að þessu sinni hlaut kortið sitt í gegnum Q-school en landi hans Lasse Jensen, sem varð í 24. sæti var kynntur til sögunnar í gær. Morten er fæddur í Silkeborg, Danmörku 9. apríl 1988 og varð því 24 ára á árinu. Morten gerðist atvinnumaður 2011 og er sem stendur nr. 456 á heimslistanum. Áhugamál Morten eru fótbolti, handbolti og líkamsrækt. Þetta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 17:30

GO: Aðalfundur í kvöld kl. 20:00

Aðalfundur Golfklúbbsins Odds er í kvöld kl. 20:00. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna!


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 14:45

PGA: Rory McIlroy kylfingur ársins – John Huh nýliði ársins

Talsmaður PGA Tour tilkynnti í dag að Rory McIlroy hefði verið valinn kylfingur ársins á PGA Tour. Jafnframt var John Huh útnefndur nýliði ársins. Sjá má kynningu Golf 1 á John Huh með því að SMELLA HÉR:  Rory, 23 ára, er sá yngsti til þess að hljóta titilinn kylfingur ársins frá því að Tiger hlaut titilinn 1998. Hann hlýtur fyrir það hin svonefndu Jack Nicklaus verlaun. Rory vann 4 sinnum á PGA Tour í ár  þ.e. á  The Honda Classic, PGA Championship, Deutsche Bank Championship og BMW Championship. Það voru félagarnir á Túrnum sem kusu þá Rory og Huh. Tim Finchem, framkvæmdastjóri PGA Tour sagði m.a. af þessu tilefni: „Fyrir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 12:15

Val landsliðsþjálfara í afrekshópa

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í golfi hefur valið í afreks-og boðhópa GSÍ (A og B), að baki valinu liggja viðmiðunarreglur afreksstefnu GSÍ.  Afrekshópur A er skipaður þeim kylfingum sem sýndu hvað bestan árangur í sínum flokkum á seinasta tímabili og í boðshópi (B) verða kylfingar sem ekki skipa Team Iceland eða A hóp en falla þó undir viðmiðunarreglu. Í kringum áramót verða svo 2-6 kylfingar valdir úr A hópi til að skipa Team Iceland hópinn. Að sögn Úlfars þá er hann ánægður með þann árangur sem náðist á árinu hér heima í mótaröðunum og einnig á mótum erlendis. Það sem stendur uppúr árangurslega í mótum erlendis er sigur Ragnars Más á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Valdís Þóra Jónsdóttir – 4. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2012 – Valdís Þóra Jónsdóttir.  Hún er fædd 4. desember 1989 og er því 23 ára í dag.  Valdís tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í höggleik á Hellu með lokapúttinu og samtals skori upp á 13 yfir pari, 293 höggum  (71 75 72 75) í lok júlí 2012.  Golf 1 tók viðtal við Valdísi Þóru fyrir lokadag mótsins sem rifja má upp með því að SMELLA HÉR:  Auk þess að vera Íslandsmeistari í höggleik er Valdís Þóra klúbbmeistari Golfklúbbsins Leynis í ár. Valdís Þóra er í afrekshóp GSÍ völdum af Úlfari Jónssyni, landsliðsþjálfara. Hún spilar golf með golfliði Texas State í bandaríska háskólagolfinu og er sem stendur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 10:30

GKG: 7,7 milljón króna hagnaður í rekstri klúbbsins

Um 75 félagar mættu á aðalfund GKG sem haldinn var fimmtudaginn 19. nóvember síðastliðinn. Fundurinn fór vel fram, umræður spunnust um ýmis málefni og almennt má segja að bjartsýni ráði ríkjum í herbúðum GKG. Klúbburinn skilaði 7,7 milljónum í hagnað, langtímaskuldir eru engar og hafa allar fjárfestingar síðustu ára verið staðgreiddar. Árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa, sveit GKG varð íslandsmeistari í 1. deild karla, Ragnar Már Garðarsson varð Íslandsmeistari í höggleik flokki 17-18 ára, Sveit GKG varð íslandsmeistari pilta 16-18 ára, Gunnhildur Kristjánsdóttir varð Íslandsmeistari í holukeppni stúlkna 15-16 ára, María Guðnadóttir varð Íslandsmeistari eldri kylfinga 50+  og Jónína Pálsdóttir varð Íslandsmeistari í 2. fl. kvenna 35+. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 09:00

LPGA: Leiðrétting – Christina Kim hlaut takmarkaðan keppnisrétt á LPGA

Ranglega var sagt frá því hér í fyrradag á Golf1.is að Christina Kim hefði ekki komist í gegnum niðurskurð á lokaúrtökumóti LPGA.  Það er ekki rétt. Eftir 4 hringi var skorið niður og aðeins 76 efstu fengu að spila 5. og lokahring úrtökumótsins – Christina var T-54 og því meðal þeirra, sem léku lokahringinn. Þær 76 sem spiluðu lokahringinn voru síðan að keppast um að verða meðal 20 efstu, en þær skipa flokk 12 (ens. Category 12) og hljóta fullan keppnisrétt á LPGA.  Það eru NÁKVÆMLEGA 20 sem hljóta fullan keppnisrétt – hefðu nokkrar t.d. orðið  jafnar í 19. sæti, hefði skv. reglum LPGA þurft að fara fram umspil milli Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 08:00

PGA: Bestu högg ársins – nr. 2 vipp Tiger Woods á Memorial – nr. 1 trjáhögg Bubba Watson á the Masters – myndskeið

PGA Tour velur í lok ár hvers bestu höggin á  mótaröðinni á því ári sem er að líða.  Nú er aftur komið að þeim tíma ársins þar sem höggin góðu eru rifjuð upp. Annað besta högg ársins er vipp Tiger Woods á lokahring Memorial mótsins þ.e. 2. högg hans, vipp á par-3 16. holunni, sem fór úr erfiðri legu beint ofan í holu fyrir fugli. Frábært högg! Besta högg ársins hins vegar er aðhögg Bubba Watson á 2. holu umspils á The Masters þ.e. á par-4 10. holunni þar sem hann sló úr vonlausri legu í trjánum og  þurfti að móta boltaflugið og sveigja boltanum framhjá trjám og inn á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2012 | 21:00

Hættulegustu golfvellir heims (8. grein af 10)

Einn hættulegasti golfvöllur heims getur verið Ocean golfvöllurinn á Kiawah Island í Suður-Karólínu. Á þessum velli fór Ryder Cup 1991 fram og úrslit réðust ekki fyrr en með lokapúttinu. En blóð, sviti og tár fölnar í sambandi við það sem bíður óviðbúins kylfings, sem tekst á við völlinn. Völlurinn er svo miklu meira en bara erfiður.  Það sem takast verður á við er móðir náttúra. Völlurinn er byggður ofan á sandhóla á ysta hluta eyjunar og því miklir vindar, þannig að auðveldlega getur teygst úr venjulegu spili í  5 1/2-6 tíma hring. Fyrir utan hversu erfitt er að spila í hita og raka Suður-Karólínu, þá eru það öll skordýrin og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2012 | 20:45

LET: Michelle Wie og Lexi Thompson á úlfaldabaki í aðdraganda Omega Dubai Ladies Masters

Michelle Wie tvítaði  í gær: „With lexi on the camel! Poor Nadia…we must have been so heavy“ Lausleg þýðing: „Með Lexi á kameldýrinu! Aumingja Nadia (kameldýrið) …. við hljótum að hafa verið svo þungar.“ Tilefni þess að myndir voru teknar af þeim stöllum á kameldýri er að nú í vikunni hefst Omega Dubai Ladies Masters í Dubai, í Sameinuðu furstadæmunum og þar á Lexi titil að verja. Verndari mótsins er hennar hátign prinsessan Haya Bint Al Hussein, ein af eiginkonum Sheikh Mohammed Bin Rashid Al Maktoum, varaforseta og forsetisráðherra Sameinuðu furstadæmanna og stjórnanda Dubai. „Það má vel vera að ég hafi ekki unnið í ár, en leikur minn er að Lesa meira