Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Carlos Del Moral (4. grein af 28)

Spánverjinn Carlos del Moral er einn af 5 kylfingum sem rétt sluppu inn á Evrópumótaröðina í gegnum lokaúrtökumót Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 24.-29. nóvember s.l. Hann er ekki „nýr strákur“ á Evróputúrnum heldur einn af þeim, sem varð að fara aftur í Q-school til þess að halda keppnisrétti sínum. Það er annað en var upp á teningnum 2010 en þá náði Carlos del Moral þeim glæsilega árangri að verða í 2. sæti á Q-school Evrópumótaraðarinnar, en lokaúrtökumótið fór líka fram á PGA Golf Catalunya vellinum í Girona, á Spáni í desemberbyrjun, 4.-10. desember 2010. Hann er því öllum hnútum kunnur á PGA Golf Catalunya golfstaðnum. Carlos del Moral fæddist Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 16:00

NÝTT: Nýju stúlkurnar á LPGA: Christina Kim; Jordan Hardy; Ashley Simon; Mitsuki Katahira og Brianna Do (1. grein af 27)

Hér á næstu dögum verða þær 48 stúlkur kynntar sem hlutu keppnisrétt á LPGA mótaröðinni fyrir keppnistímabilið 2013.  Hafður verður sá háttur á að fyrst verða þær kynntar, sem hlutu takmarkaðan spilarétt  þ.e. frá þeirri sem varð í 48. sætinu, Christinu Kim, til þeirra þriggja óheppnu af 7 sem deildu 17. sætinu  og urðu að láta í minni pokann varðandi það að hljóta fullan keppnisrétt á LPGA. Síðan verða efstu 20 sem hlutu fullan keppnisrétt á LPGA kynntar í sérstakri grein um hverja og eina. Byrjað á þeim 4 heppnu í 17. sæti og endað á þeim tviemur, sem deildu 1. sætinu Moriyu Jutanugarn og Rebeccu Lee Bentham og hlutu þ.a.l. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 14:00

Hvað er svona fyndið?

PUMA íþróttavörufyrirtækið stendur þessa dagana fyrir skemmtilegum leik. Lesendur eru beðnir að líta á myndina og geta sér til um hvað sé svona fyndið og leggja kylfingunum Ian Poulter og Adam Scott orð í munn. Hægt er að vinna sér inn vetrargolfföt ef tekst að fá þá hjá PUMA til að hlægja.  Komast má á PUMA síðuna með leiknum með því að SMELLA HÉR:  Nokkrar fyndnar tillögur hafa þegar borist, t.d.: „Hvað er þetta Rory? Enginn klósettpappír. Við höfðum ekkert að gera með það… í alvöru!“ Sent af: eamxs88, á Bretlandi. „Ég gef þér klukkutíma eða svo – ég var að taka frídropp þarna“ Sent af: Alimoor, á Bretlandi. „Hvar er pútterinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 12:30

GR: Aðalfundur kl. 20:00 í kvöld í Golfskálanum Grafarholti

Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur, fjölmennasta golfklúbbs landsins, verður haldinn í kvöld, miðvikudaginn 5. desember kl. 20:00. Fundarstaður: Golfskálinn Grafarholti Dagskrá: Í upphafi aðalfundar skal kjósa sérstakan fundarstjóra og ritara eftir tilnefningu. 1. Skýrsla formanns. 2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins. 3. Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar. 4. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna um lagabreytingar ef einhverjar eru. 5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga. 6. Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár. 7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn. 8. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara. 9. Önnur málefni ef einhver eru. Allir félagar í GR eru hvattir til að mæta. Heimild: Heimasíða Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía Elsa Jónsdóttir – 5. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Stefanía Elsa Jónsdóttir. Stefanía Elsa er fædd 5. desember 1996 og því 16 ára í dag. Hún er afrekskylfingur Golfklúbbs Akureyrar. Í fyrra hlaut Stefanía Elsa m.a. heiðursnafnbótina Fyrirmyndarkylfingur GA. Nú í sumar keppti Stefanía Elsa í telpnaflokki 15-16 ára á Unglingamótaröð Arion banka með góðum árangri. Þannig varð Stefanía Elsa í 6. sæti á fyrsta móti mótaraðarinnar uppi á Skaga  hún varð í verðlaunasæti þ.e. 3. sætinu á 3. mótinu í Korpunni og í 10. sætinu á Íslandsmótinu í höggleik. Stefanía Elsa varð í 2. sæti í Meistaraflokki á Meistaramóti GA 2012, sem er glæsilegur árangur 15 ára telpu! Eins er eftirminnileg framganga Stefaníu Elsu í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 09:00

PGA: Camilo Villegas komst ekki í gegnum lokaúrtökumót PGA – Kim yngstur til að komast í gegn

Dagana 28. nóvember – 3. desember fór fram lokaúrtökumót PGA Tour á PGA West golfvellinum í La Quinta, Kaliforníu. Að þessu sinni voru 165 kylfingar sem reyndu að komast í gegnum 6 hringja lokaúrtökumótið. Meðal þeirra sem komust í gegn voru hjartaþeginn Eric Compton, 32 ára og 17 ára kóreanskur strákur Si Woo Kim, sem er sá yngsti til að komast í gegn, en hlýtur ekki þátttökurétt á PGA Tour fyrr en á 18 ára afmæli sínu 28. júní 2013. Landi Kim, Dong hwan-Lee varð í 1. sæti á lokaúrtökumótinu en sá sem varð í 2. sæti er Englendingurinn Ross Fisher. Meðal annarra þekktra evrópskra kylfinga, sem komust í gegn er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 08:00

Florida Professional Golf Tour: Nökkvi lauk keppni í Riviera Open

Nökkvi Gunnarsson, NK, spilar á Florida Professional Golf Tour og tók nú um helgina þátt í Riviera Open. Mótið fór fram í Riviera Country Club, á Ormond Beach í Flórída, 1.-2. desember s.l. Þátttakendur voru 124 og þetta var gríðarlega sterkt mót. Þeir 37 sem efstir voru eftir 2. hring kepptu til fjár á 3. hring. Nökkvi lauk keppni á samtals 148 höggum (77 71) og varð í 100. sæti. Sigurvegari varð „heimamaðurinn“ JC Home en hann átti titil að verja og tókst að hafa betur í mótinu en PGA Tour keppan Matt Every, sem einnig tók þátt. Til þess að sjá úrslitin í mótinu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 07:00

NGA: Þórður Rafn á 76 og Alexander á 85 höggum eftir 1. dag í Shingle Creek

Þórður Rafn Gissurarson, GR og Alexander Gylfason, GR taka báðir þátt í 6. móti NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Series.  Að þessu sinni er aftur spilað í Shingle Creek, í Flórída þar sem 3. mótið fór líka fram á. Í gær kom Þórður Rafn inn á 76 höggum en Alexander á 85 höggum. Þórður Rafn fékk 3 fugla,10 pör, 4 skolla og 1 skramba; en Alexander 9 pör, 7 skolla og 2 skramba.  Þeir eru báðir neðarlega á skortöflunni Golf 1 óskar þeim Þórði Rafni og Alexander góðs gengis í dag! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. daginn í Shingle Creek SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 20:10

Hættulegustu golfvellir heims (9. grein af 10)

Einn hættulegasti golfvöllur í heimi er Skukuza golfvöllurinn við Kruger National Park í  Suður-Afríku. Hérna er tækifærið að fara á safari og blanda því saman við golfhring. Golfvöllurinn liggur í 45 mínútna fjarlægð frá Kruger National Park, sem er einn af stærsta svæði Suður-Afríku með villtum dýrum. Ljón, fílar, hlébarðar, villisvín, buffalóar og mörg önnur dýr eru algengir gestir á golfvellinum. Ef þið trúið þessu ekki ættuð þið að lesa sjálfsáhættuyfirlýsinguna, sem maður verður að skrifa undir áður en spilaður er hringur á vellinum. Vitið þið hvað á að gera þegar þið eruð á Skukuza og þið rekist á eitthvert villidýrið? Alls ekki hlaupa í burtu! Reynið að halda ró Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2012 | 20:00

Hver er kylfingurinn: Harvie Ward? (1/2) 4. grein af 24 um „The Match“

Bandaríski kylfingurinn Edward Harvie Ward Jr. fæddist 8. desember 1925 í Tarboro, Norður-Karólínu. Hann dó 4. september 2004. Ward er best þekktur fyrir framúrskarandi áhugamannaferil sinn í golfi, sem og fyrir að hafa tekið þátt í fjórleiknum fræga “The Match”, sem var veðmál auðkýfinganna Eddie Lowery og George Coleman. Bílasalinn Lowery veðjaði við Coleman um að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn hans áhugamennina Ken Venturi og Harvie Ward í fjórleik, þ.e. betri bolta. Coleman tók veðmálinu og fyrir hans hönd spiluðu tveir af bestu kylfingum þess tíma Ben Hogan og Byron Nelson. Hvernig leikurinn fór er hægt að lesa um hér á www.Golf-1.is þegar allar sögupersónur fjórleiksins hafa verið kynntar Lesa meira