Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 15:00

LET: Tinna og Cheyenne Woods á sama skori eftir 1. dag í Marokkó 74 höggum!!!

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Keili spilaði 1. hring sinn á Lalla Aïcha Tour School 2013 í dag, en mótið fer fram í Amelkis Golf Club & Al Maaden Golf Resort í Marrakech, Marokkó. Tinna og frænka Tiger Woods, Cheyenne, sem er í sama riðli og Tinna, B-riðlinum, léku báðar á 2 yfir pari, 74 höggum. Tinna fékk 3 fugla, 11 pör, 3 skolla og 1 skramba á hringnum í dag meðan Cheyenne fékk 2 fugla, 13 pör, 2 skolla og 1 skramba. Þær deila sem stendur 39. sætinu ásamt 7 öðrum kylfingum, en nokkrar eiga eftir að ljúka leik þannig að sætistölur gætu raskast. Golf 1 óskar þeim Tinnu og Cheyenne Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 14:00

Golfútbúnaður: Titleist 913 brautartrén – myndskeið

Titleist 913F brautartrén eru í grunninn byggð á forvera sínum hvað hönnun og tækni snertir þ.e. Titleist 910F  en því sem hefir verið breytt er að reynt hefir verið að hámarka árangur kylfunnar þannig að meiri lengd náist úr henni. Titleist 913F brautartrén halda sama útlitinu (ens.: Tour-preferred look) og tilfinningin er sú sama og þegar spilað er með eldri Titleist brautartrjám. Til staðar er enn SureFit hosel tæknin sem gerir ráð fyrir að hægt sé að aðlaga bæði loft og legu óháð hvort öðru. Verkfræðingar Titleist unnu að því  að létta kylfuna og færðu til þyngdir í henni. Þannig var þyngd færð úr kylfuhöfðinu og þyngdin þess í stað Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 11:40

Afmæliskylfingar dagsins: Arna Garðarsdóttir, Ásgeir Eiríksson og Guðmundur Pétursson – 6. desember 2012

Afmæliskylfingar dagsins eru 3, en þeir eiga allir stórafmæli í dag. Það eru þau Guðmundur Pétursson, sem fæddur er 6. desember 1972 og á því 40 ára merkisafmæli; Arna Garðarsdóttir, sem fædd er 6. desember 1962 og á því 50 ára stórafmæli og kylfingurinn góðkunni, Ásgeir Eiríksson, sem fagnar 65 ára stórafmæli í dag, fæddur 6. desember 1947. Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju hér að neðan: Guðmundur Pétursson (40 ára – Innilega til hamingju!!!) Arna Gardarsdottir (50 ára- Innilega til hamingju!!!) Ásgeir Eiríksson (65 ára – Innilega til hamingju) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Beth Allen, 6. desember 1981 (31 árs); Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 11:00

John Senden leiðir eftir 1. dag Australian Open

Ástralski kylfingurinn John Senden leiðir eftir 1. dag Opna ástralska á  6 undir pari, 66 höggum á rólegum morgni í The Lakes golfklúbbnum í Sydney. Senden fékk 8 fugla en líka 2 skolla. Englendingurinn Justin Rose er meðal 5 kylfinga, sem deila 2. sætinu og eru 2 höggum á eftir Senden. Hann byrjaði vel fékk fugla á 3 af fyrstu 4 holum sínum og er á sama skori, 4 undir pari, 68 höggum og áströlsku „heimamennirnir“ Kim Felton, Brendan Jones,  Richard Green og Gareth Paddison frá Nýja-Sjálandi. Adam Scott sem var að æfa sig með styttri pútter fyrr í vikunni notaði gamla kústskaftið sitt og er í 28. sæti ásamt 14 öðrum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 08:50

LET: Tinna hefur leik á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna í Marokkó í dag

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnumaður úr Golfklúbbnum Keili hefur í dag leik í lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna þ.e. Lalla Aïcha Tour School 2013. Spilað er á Amelkis Golf Club & Al Maaden Golf Resort í Marrakech í Marokkó. Mótið stendur dagana 6.-9. desember 2012 og skráðar til leiks eru 154 sem keppa í 2 riðlum A- og B-riðli og eru 77 í hvorum riðli. Tinna spilar í B-riðli og á rástíma kl. 8:50 (að íslenskum tíma, þ.e.a.s. akkúrat þegar þessi frétt birtist) og hefur leik á 10. teig. Hún er í ráshóp með danska kynskiptingnum Mianne Bagger og Nicole Becker frá Suður-Afríku. Cheyenne Woods, frænka Tiger, leikur einnig í B-riðli, líkt og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 08:00

Adam Scott heldur tryggð við kústskaftið

Adam Scott  er ákveðinn að halda sig við kústskaftið sitt, þ.e. langan pútter. Hann gerði nokkrar tilraunir með styttri púttera á þriðjudaginn (4. desember s.l.) og í helming á Pro-Am móti Australian Open sem hófst í nótt á Lakes golfvellinum í Ástralíu.. Scott er ákveðinn að nota kústskaftið sitt vel inn í næsta ár. „Ég pútta líklega með löngum pútter,“ sagði Scott um plön sín á Australian Open, „Ég hef varið tveimur síðustu árum í að læra að nota kústskaftið og það er það sem ég ætla að nota í þessari viku, að öllum líkindum“ Scott sagði að hann hefði verið að gera tilraunir með styttri pútter „bara mér til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 07:00

NGA: Íslensku strákarnir komust ekki í gegnum niðurskurð í Flórída

Þórður Rafn Gissurarson, GR og Alexander Gylfason, GR, komust ekki í gegnum niðurskurð á  6. móti NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Series  í Shingle Creek í gær. Þátttakendur í mótinu eru 126 og aðeins 35 efstu komust áfram og fá að leika í dag 3. hringinn til fjár. Ljósi punkturinn er að Alexander bætti sig um heil 9 högg milli hringja; spilaði fyrri daginn á 85 höggum en var á 76 höggum seinni daginn. Alexander lauk leik í 120. sæti á 17 yfir pari. Þórður Rafn deildi 116. sætinu, lék á samtals 11 yfir pari, 155 höggum (76 79). Næsta mót á  NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 20:00

Hættulegustu golfvellir heims (10. grein af 10)

Cape Kidnapper’s golfvöllurinn í Hawke’s Bay, á Nýja-Sjálandi er meðal hættulegustu golfvalla í heiminum …. þ.e.a.s. ef þið eruð lofthrædd. Golfvöllurinn er byggður ofan á klettum og útsýnið þaðan á Kyrrahafið er að sögn engu líkt. Á sex holum vallarins er gengið utan í klettunum eftir þröngu einstígi þar sem er 550 feta (183 metra) beint fall ofan í hafið. Það verður sérstaklega að herða upp hugann þegar 15. holan er spiluð sem nefnist „Sjóræningja-plankinn“ (ens. „Pirate’s Plank.“) Hér er gengið eftir golfbraut sem mjókkar stöðugt og endar á 60 feta víðri flöt, þar sem er frítt fall ofan í sjóinn.  Það er mjög mikilvægt vera ekkert að ganga mikið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 19:30

LET: Feng og Parker í 1. sæti í Dubai eftir 1. dag

Það eru Shanshan Feng og Florentyna Parker, sem deila forystunni eftir 1. dag Omega Dubai Ladies Masters, sem hófst í dag. Báðar spiluðu þær á 6 undir pari, 66 höggum. Í 3. sæti eru Klara Spilkova frá Tékklandi, Cindy Lacrosse frá Bandaríkjunum og Sahira Hassan, frá Wales, sem deila 3. sætinu, en þær léku allar á 5 undir pari, 67 höggum. Í 6. sæti eru síðan 8 kylfingar, sem allar léku á 4 undir pari, 68 höggum, en þ.á.m. er þýski kylfingurinn Caroline Masson, sem var að tryggja sér fullan keppnisrétt á LPGA á lokaúrtökumótinu í Daytona Beach nú fyrr í mánuðnum. Til þess að sjá stöðuna á Omega Dubai Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2012 | 19:00

Hver er kylfingurinn: Harvie Ward? (2/2) 5. grein af 24 um „The Match“

Nú verður fram haldið með 2. hluta af kynningunni á Harvie Ward. Árið 1957 missti Harvie Ward stöðu sína sem áhugamaður í golfi skv. umdeildri ákvörðun bandaríska golfsambandsins. Hann mátti ekki lengur vera áhugamaður vegna þess að hann hafði þegið peninga frá styrktaraðilum golfmóta. Ákvörðuninni var snúið árið 1958. Aðalstyrktaraðili Harvie var Eddie Lowery, sem á þeim tíma var í framkvæmdanefnd (ens.: Executive Committee) hafði á rangan máta krafist skattaafsláttar fyrir peninga sem hann lét Ward fá, en Harvie Ward var enn á þeim tíma starfsmaður í bílasölu Lowery í San Francisco. Ward vissi ekkert af hverju hann missti stöðuna sem áhugamaður, hafði sjálfur ekkert gert til þess að missa Lesa meira