Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2012 | 10:45
Golfútbúnaður: Hver er munurinn á „cast“ og „forged“ járnum? Kynning á Mizuno JPX-800 Pro forged járnum og álit Luke Donald á þeim – myndskeið

Fyrir þá sem gaman hafa af fréttum um golfútbúnað er þetta myndskeið áhugavert, þó það sé orðið 1 árs gamalt. Þar lýsir yfirmaður R&D hjá Mizuno hver munurinn á „cast“ og „forged“ járnum er. Nr. 2 á heimslistanum Luke Donald lýsir síðan hvað skipti hann mestu þegar hann velur sér járn. Merkilegt að það eru sömu hlutirnir og hjá okkur hinum – þ.e. meðal þess sem Luke horfir til er útlit og lögun kylfunnar og hvernig tilfinningin er þegar kylfan slær boltann. Hjá Luke er enginn titringur sem myndast þegar slegið er – höggið er mjúkt og það er það sem notendur Mizuno kylfa kunna svo vel að meta! Mizuno Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2012 | 10:00
GHG: Fannar Ingi Steingrímsson valinn kylfingur ársins

Aðalfundur GHG var haldinn miðvikudaginn 5. desember 2012. Erlingur Arthúrsson var endurkjörinn formaður til 2ja ára. Alfreð Maríusson, Steindór Gestsson og Sigrún Arndal voru einnig endurkjörin í aðalstjórn. Í varastjórn voru kosin til eins árs Þorsteinn Ingi Ómarsson, Össur Emil Friðgeirsson og Harpa Rós Björgvinsdóttir. Á fundinum var samþykkt nýtt aðalskipulag fyrir 18 holu völl í Gufudal sem hannað er af Hannesi Þorsteinssyni golfvallararkitekt. Veittar voru viðurkenningar á fundinum og var Fannar Ingi Steingrímsson valinn kylfingur ársins 2012 og Katrín Eik Össurardóttir fékk viðurkenningu fyrir mestar framfarir. Barna og unglinganefnd veitti Birni Ásgeiri Ásgeirssyni viðurkenningu sem efnilegasti kylfingurinn meðal yngri kylfinga GHG. Fundurinn samþykkti hækkun á félagsgjöldum sem verða eftirfarandi: Árgjald 19-66 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2012 | 09:45
Auðveld púttæfing – myndskeið

Nú þegar varla er hægt að spila golf utandyra hér á landi – allt á kafi í snjó, of hvasst eða vellir blautir og í óspilanlegu ástandi þá fara allir alvöru kylfingar á æfingasvæðið eða æfa stutta spilið og þá sérstaklega púttstrokuna innandyra. Hér er hugmynd að púttæfingu fyrir þá sem pútta of hart, þ.e. of fast þannig að jafnvel þó kúla sé í beinni stefnu á holu og hitti hana jafnvel þá skoppar boltinn upp úr vegna þess að of miklum krafti var beitt. Afar ergilegt! En svo eru „feimnu“ pútterarnir þeir sem ekki drífa að holu, skortir e.t.v. sjálfstraust. Stundum lendir bolti þeirra allt of langt frá holu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 22:00
Asíutúrinn: Schwartzel efstur á Thailand Golf Championship

Í dag hófst Thailand Golf Championship, sem er mót á Asíutúrnum. Efstur eftir 1. dag er Charl Schwartzel, en hann lék á glæsilegum 7 undir pari, 65 höggum. Aðeins 1 höggi á eftir er „heimamaðurinn“ Thitiphun Chuayprakong á 6 undir pari, 66 höggum. Í 3. sæti er svo Javi Colomo, sem spilar á Evrópumótaröðinni en því sæti deilir hann með indversk-sænska kylfingnum Daníel Chopra, en langt er síðan Chopra hefir verið svo ofarlega í móti. Báðir eru þeir á 5 undir pari, 67 höggum. Fimm kylfingar deila síðan 5. sætinu Masters sigurvegarinn Bubba Watson; tveir suður-kóreanskir kylfingar: Hyun-bin Park og Joong-kyung Mo; heimamaðurinn Kiradech Aphibarnrat og Japaninn Masanori Kobayashi. Lee Westwood og Ryo Ishikawa eru Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 20:45
Hver er kylfingurinn: Ben Hogan? (1/9) 6. grein af 24 um „The Match“

Hér verður fram haldið kynningu á einni af 4 aðalsöguhetjum í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever.” Ben Hogan var annar af 2 atvinnumönnunum (hinn var Byron Nelson) sem kepptu við tvo áhugamenn í fjórleik (þ.e. Ken Venturi og Harvie Ward sem þegar hafa verið kynntir til sögunnar) vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik. Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Kynningin á Ben Hogan er nokkuð löng Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 18:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Alexander Levy (5. grein af 28)

Frakkinn Alexander Levy er einn af þeim 5 sem urðu í 24. sæti á lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni, sem fram fór 24.-29. nóvember í s.l. mánuði og tryggði sér þar með keppnisrétt 2013 á Evrópumótaröðinni, í fyrstu tilraun. Alexander Levy er fæddur 1. ágúst 1990 i Orange, Kaliforníu og því 22 ára. Hann fluttist aftur til Frakklands 1994 (4 ára) og býr í dag í Bandaul í Frakklandi og er í golfklúbbnum Golf PGA France du Vaudreuil. Levy er með tvöfalt ríkisfang þ.e. er bæði franskur og bandarískur. Levy er nr. 608 á heimslistanum í dag. Levy hefir m.a. keppt í landsliðum Frakka t.a.m. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 17:45
Sólskinstúrinn: Steve Surry og Andrew Georgiou deila 1. sæti á Nelson Mandela Championship

Í dag hófst í Suður-Afríku á Sólskinstúrnum, Nelson Mandela Championship. Þeir sem leiða eftir 1. dag eru Englendingurinn Steve Surry og Andrew Georgiou. Báðir spiluðu þeir á 6 undir pari, 66 höggum. Í 3. sæti eru bróðir Charl, Attie Schwartzel, Jacques Blaauw, Kevin Stone og Lindani Ndwandwe. Allir léku þeir á 5 undir pari, 67 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Nelson Mandela Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 17:30
LET: Shanshan Feng í 1.sæti þegar Omega Dubai Ladies Masters er hálfnað

Kínverski kylfingurinn Shanshan Feng er í 1. sæti þegar Omega Dubai Ladies Masters er hálfnað. Shanshan er búin að spila á samtals 13 undir pari, 131 höggi (66 65). Feng hefir 4 högga forskot á þá sem næst kemur ensku stúlkuna Felicity Johnson, sem nú nýverið hlaut fullan keppnisrétt á LPGA og við eigum eflaust eftir að sjá meira af! Johnson er samtals búin að spila á 135 höggum (68 67). Þriðja sætinu deila 4 hörkugóðar þ.á.m. þýski kylfingurinn Caroline Masson, sem líkt og Johnson er búin að tryggja sér fullan keppnisrétt á LPGA, keppnistímabilið 2013. Caroline deilir 3. sætinu með: Joönnu Klatten og Gwladys Nocera frá Frakklandi og Cindy Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 17:00
GR: Ragnhildur Kristinsdóttir hlaut Háttvísibikar GR 2012

Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Í ár er það Ragnhildur Kristinsdóttir sem hlýtur bikarinn, Ragnhildur er margfaldur íslandsmeistari á undanförnum árum í unglingaflokkum og sannað sig meðal þeirra bestu á Eimskipamótaröð fullorðinna þrátt fyrir ungan aldur. Ragnhildur er gríðarlega dugleg og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2012 | 16:00
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: PK Kongkraphan, Shasta Averyhardt, Stephanie Na, Inhong Lim og Haru Nomura (2. grein af 27)

Hér verða kynntar næstu 5 stúlkurnar af þeim 10 sem deildu 39. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA sem fram fór á Daytona Beach í Flórída, dagana 28. nóvember – 2. desember 2012. Þessar 5 sem kynntar eru hljóta takmarkaðan spilarétt á LPGA næsta keppnistímabil. Þær eru: 1. PK Kongkraphan Patcharajutar Kongkraphan fæddist í Khonkaen, Thaílandi. Hún byrjaði að spila golf 5 ára. Hún sigraði Asia Pacific Junior Golf Championship árið 2006 og varð í 2. sæti í Sea Games, árið 2007. Patcharajutar gerðist atvinnumaður í nóvember 2009. Hún hefir m.a. unnið 6 mót haldin á vegum China Ladies Professional Golf Association (CLPGA). Kongkraphan sigraði m.a. nú nýverið þ.e. 20. október 2012 í Ladies Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

