Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2012 | 08:00

Oakley fer í mál við Rory og Nike

Golffata- og aukabúnaðarframleiðandinn Oakley hefir kært Rory McIlroy og Nike, fyrir samningsbrot vegna þess að Rory skrifaði nú nýlega undir samning við Nike upp á 250 milljónir bandaríkjadala. Bandaríska fréttastofanESPN.com upplýsti í gærkvöldi að Oakley, sem er með starfsstöðvar í Kaliforníu og framleiðir aðallega golffatnað og gleraugu hafi höfðað mál í alríkisdómstólnum í Santa Ana, Kaliforníu á mánudaginn þar sem m.a. kemur fram að þegar fyrirtækið hafi reynt að nýta sér forgangsréttarákvæði sitt til samninga til þess að mæta tilboði Nike hafi McIlroy og umboðsmaður hans Conor Ridge hjá Horizon Sports Mangement hunsað beiðnina og þar með brotið samning milli Oakley og Rory. Á ESPN kom m.a. eftirfarandi fram: „Lykillinn að lausn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2012 | 07:00

Pizzagerðarmaðurinn Popovic leiðir fyrir lokahring Australian PGA

Það er ástralski kylfingurinn Daníel Popovic, sem er einn í forystu fyrir lokahring Australian PGA. Popovic hefir 2 högga forystu á þann sem næstur kemur, landa sinn Anthony Brown. Popovic er búinn að leika á samtals 13 undir pari, 203 höggum (64 70 69). Það er ekki svo langt síðan að Popovic var að búa til pizzur hjá Pompeo’s í Doncaster East í Melbourne, Ástralíu. „Ég hef búið til pizzur í 5 ár og ég vann sem umferðarlögga í nokkra mánuði til þess að ná saman peningunum til þess að komast á Q-school Evrópumótaraðarinnar 2010,“ sagði Popovic. Mamma Popovic, Mila grét eftir að sonur hennar náði að spila á 64 á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2012 | 21:00

Hver er kylfingurinn: Ben Hogan? (9/9) 14. grein af 24 um „The Match“

Hér verður fram haldið kynningu á einni af 4 aðalsöguhetjum í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever.” Ben Hogan var annar af 2 atvinnumönnunum (hinn var Byron Nelson) sem kepptu við tvo áhugamenn í fjórleik (þ.e. Ken Venturi og Harvie Ward sem þegar hafa verið kynntir til sögunnar) vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik. Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2012 | 20:30

Skíðakappi sprengdi næstum augað úr konu sinni í golfleik

Þeir sem fjárfest hafa í Golf á Íslandi, 800 bls. tveggja binda glæsilegu ritverki þeirra Steinars J. Lúðvíkssonar og Gullveigar Sæmundsdóttur, sem út kom í tilefni 70 ára afmælis GSÍ hafa lesið í 1. kafla upprifjun á grein frá árinu 1931, sem birtist í Alþýðublaðinu: „Þar sagði frá fegurstu stúlkunni í bænum Methuen í Bandaríkjunum, sem hét J. Evart Hill og átti mikinn fjölda af aðdáendum og biðlum. Dag einn fór hún í golfleik með einum af áköfustu biðlum sínum.   Segir svo í grein Alþýðublaðsins frá því fyrir 80 árum: „Allt í einu sló hann kúluna í 20 m fjarlægð frá stúlkunni, en kúlan settist í annað auga hennar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2012 | 18:55

Evrópa leiðir í Royal Trophy

Lið Evrópu og Asíu hófu í dag keppni um Royal Trophy  í Brunei. Eftir daginn leiðir lið Evrópu með 3 1/2 vinning gegn 1/2 vinningi liðs Asíu. Stjörnur dagsins voru sænski kylfingurinn Henrik Stenson og Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castaño, sem voru 8 undir pari og unnu Ryo Ishikawa frá Japan og Bae Sang-moon frá Suður-Kóreu 5 & 4. Ítölsku bræðurnir Edoardo og Francesco Molinari unnu leik sinn gegn  Ashun Wu frá Kína og Yoshinori Fujimoto frá Japan 2 & 1, og Þjóðverjinn Marcel Siem og Belginn Nicolas Colsaerts báru sigurorð af Indverjanum Jeev Milkha Singh og Kiradech Aphibarnrat  frá Thailandi á lokaflötinni. Svo virtist sem um algert burst væri að ræða þar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2012 | 18:30

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Chris Lloyd (12. grein af 28)

Næstir í röðinni af þeim sem kynntir verða hér eru þeir 4 eða réttara sagt 3 sem urðu í 16. sæti í lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór í Girona, á Spáni  24. -29. nóvember 2012. Einn af þeim sem varð í 16. sæti hefir þegar verið kynntur þ.e. Daninn Morten Örum Madsen sem náði þeim frábæra árangri að verða T-4 á 1. móti sínu á Evrópumótaröðinni 3 dögum eftir að hann lauk keppni í Q-school, þ.e. á Nelson Mandela Championship í Suður-Afríku. Hinir 3 sem urðu í 16. sæti í Q-school voru Chris Lloyd, Michael Jonzon og David Higgins. Búið er að kynna sænska kylfinginn Michael Jonzon og í kvöld verður Englendingurinn Chris Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2012 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Taylore Karle (9. grein af 27)

Taylore Karle fæddist 26. júní 1990 í Plano, Texas og er því 22 ára. Hún er dóttir  Richard og Tonnie Karle og á eldri bróður, Austyn, sem var eins og systir hans  4 ár í golfliði Pepperdine University. Taylore er frábær klassískur píanisti og meðal áhugamála hennar eru píanóið, að lesa og ljósmyndun. Uppáhaldsgolfvöllur hennar er North Berwick í Skotlandi. Uppáhaldsbækurnar eru biblían og  Twilight series. Uppáhaldskvikmyndirnar eru Cinderella Man og  Driven. Uppáhaldssjónvarpsþættirnir eru Seinfeld og True Blood. Uppáhaldstónlistarmenn eru: Sting, Colbie Caillat og Queen. Uppáhaldsíþrótt önnur en golf er hokkí. Það sem henni finnst best við golfið er að „það reynir á alla þætti þína eins og karakter og hegðun Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2012 | 17:30

Afmæliskylfingur dagsins: Ragnar Davíð Riordan – 14. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Ragnar Davíð Riordan. Ragnar Davíð er fæddur 14. desember 1982 og á því 30 ára stórafmæli í dag! Ragnar er í Golfklúbbi Vatnsleysustrandar (GVS). Hann á fast sæti í sveit GVS í sveitakeppni GSÍ. Meðal afreka Ragnar Davíðs á golfsviðinu mætti nefna að hann varð klúbbmeistari GVS 2010. Eins spilaði Ragnar Davíð á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar í ár og sigraði síðan í Skálamótinu á Húsatófta- velli 31. maí í sumar; var á 43 punktum. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Ragnar Davíð Riordan (30 ára) Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Guðjón G. Daníelsson (Klúbbmeistari Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2012 | 09:15

Tom Watson vill Tiger Woods í Ryder Cup lið Bandaríkjamanna 2014

Eitthvert verst geymda leyndarmál golfsins síðustu 3 daga var að Tom Watson myndi verða fyrirliði liðs Bandaríkjamanna í Ryder Cup 2014, sem síðan kom á daginn. Þegar Ryder Cup fer fram 2014 í Gleneagles, í Skotlandi verður hinn fimmfaldi risamótssigurvegari Watson 65 ára, elstur í golfsögu Bandaríkjanna til þess að gegna stöðu fyrirliða í Ryder Cup.  Hann hefir áður gegnt stöðu fyrirliða, síðast þegar Ryder Cup lið Bandaríkjanna vann útisigur, þ.e. á The Belfry  1993. „Ég hef beðið eftir þessu í næstum 20 ár,“ viðurkenndi Watson í gær. „Ég vildi alltaf verða fyrirliði aftur og ég er mjög þakklátur fyrir þetta tækifæri.“ Þá þegar eftir að tilkynnt var um val Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2012 | 08:30

Sólskinstúrinn: Charl Schwartzel 1 höggi á eftir Bourdy á Alfred Dunhill Championship – hápunktar 1. dags – myndskeið

Í gær hófst Alfred Dunhill Championship, sem fram fer dagana 13.-16. desember á Leopard Creek golfvellinum í Malelane, í Suður-Afríku. Mótið er samtarfsverkefni Evrópumótaraðarinnar og Sólskinstúrsins, suður-afríska. Það er Frakkinn Grégory Bourdy sem tók forystuna í gær; kom í hús á 6 undir pari, 66 glæsihöggum og skilaði „hreinu“ skorkorti með 6 fuglum og 12 pörum. Aðeins 1 höggi á eftir er Charl Schwartzel, sem átti líklega glæsilegasta högg gærdagsins, setti niður fyrir fugli beint úr glompu á 12. braut. Schwartzel kom í hús á 67 höggum og skilaði líka hreinu skorkorti, fékk bara 1 fuglinum minna en Bourdy. Schwartzel deilir 2. sætinu eftir 1.dag með landa sínum Darren Fichardt Lesa meira