Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 20:55

Rory gekk frá kaupum á húsi í Flórída í dag

Nú fyrir skemmstu gekk nr. 1, Rory McIlroy frá kaupum á nýju húsi sínu í Palm Beach Gardens í Flórída. Skv. þeim í Golf Digest Magazine fékk Rory slotið á $9,5 milljónir dollara.  Fréttir höfðu áður verið á reiki hvert verðið væri á eigninni en ásett verð var upphaflega 10,9 milljónir og fljótlega fór að fregnast að Rory hefði fengið höllina á $10 milljónir. Nú hefir Rory fengið 14% afslátt, þ.e. greiðir ekki „nema“ $ 9,5 milljónir. Spurningin er hvers vegna?  E.t.v. staðgreiddi hann? ….. ja, eða fyrirsjáanlegt er að gangverð húsa í nágrenninu rjúki upp…. þetta eru aftur á móti vangaveltur! Hér er linkur inn á ítarlegri grein Golf Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 20:45

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Matthew Southgate – (21. grein af 28)

Næst verða þeir strákar kynntir sem deildu 7. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni, dagana 24.-29. nóvember s.l.  Það voru þeir Daniel Gaunt frá Ástralíu og Englendingurinn Matthew Southgate. Byrjað verður að kynna Matthew Southgate stuttlega hér. Matthew Southgate fæddist 3. október 1988 og er því 24 ára. Fyrir aðeins 3 árum vann Southgate á snókerstað, en spilar nú golf meðal þeirra bestu í Evrópu eftir að hafa orðið nr. 27 í Q-school 2011, þrátt fyrir meiðsli í öxlum og baki og í 7. sætinu í ár!!! Hápunktur góðs áhugamannaferils Matthew Southgate var sigur hans á St Andrews Links Trophy, árið 2010. Matthew Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 20:30

GSG: Halldór Aspar og Þorsteinn Geirharðsson sigruðu í Jólavetrarmóti Nettó

Það voru 57 kylfingar skráðir í Jólavetrarmót Nettó og 51 sem lauk keppni í gær við bestu skilyrði. Leikfyrirkomulag var höggleikur og punktakeppni með forgjöf. Leiknar voru 12 holur og sá sem sigraði í punktakeppninni var „heimamaðurinn“ Halldór Aspar, hlaut 26 pkt. alls. Þorsteinn Geirharðsson vann höggleikinn kom inn á 1 yfir pari, þ.e. 49 höggum eftir holurnar tólf og heimamaðurinn Ásgeir Eiríksson var einu höggi á eftir á 2 yfir pari, 50 höggum og annar heimamaður Þór Ríkharðsson á 3 yfir pari, 51 höggi. Úrslitin í heild voru eftirfarandi: Punktakeppni með forgjöf:  Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls Hola F9 S9 Alls H1 1 Halldór Aspar GSG Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 20:15

Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Stephanie Sherlock – (18. grein af 27)

Í kvöld verður kynnt  sú sem varð ein í 10. sæti á lokaúrtökumóti Q-school á Daytona Beach dagana 28. nóvember – 2. desember 2012. Það er kanadíski kylfingurinn Stephanie Sherlock sem verður kynnt: tephanie fæddist 21. júní 1987 í Augsburg, Þýskalandi og er dóttir David og Angelu Sherlock. Hún er því 25 ára og kanadísk að uppruna. Stephanie á eina systur Melanie. Stephanie byrjaði að spila golf 10 ára og segir föður sinn hafa verið mesta áhrifavald sinn þar að lútandi. Meðal áhugamála hennar eru tónlist, kvikmyndir og að verja tíma með fjölskyldu og vinum. Árið 2007 sigraði Stephanie í Royale Cup National Women’s Amateur Championship í Kanada. Á námsárum sínum í University Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 20:05

GKJ: Kristján Þór Einarsson og Vilhjálmur Hafsteinsson sigruðu á 9. vetrarmóti GKJ

Níunda vetrarmót GKJ fór fram í gær í ágætu veðri og færið var mýkra en í síðustu mótum og gátu kylfingar miðað á pinna án þess að eiga það á hættu að boltinn færi hingað og þangað.  Það voru líka 48 félagar og gestir sem tóku þátt og  er skemmst frá því að segja að Kristján Þór Einarsson, sem kominn er aftur í klúbbinn, sigraði á 56 höggum. Í Punktakeppninni sigraði Vilhjálmur Hafsteinsson á 30 punktum.  Verðlaun voru konfektkassar frá Nóa Síríus í tilefni jólanna.  Helstu úrslit urðu annars þessi: Höggleikur: 1. Kristján Þór Einarsson, GKJ, 56 högg 2. Theodór Emil Karlsson, GKJ,  60 högg 3. Lárus Sigvaldason, 61 högg Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 20:00

Afmæliskylfingar dagsins: Pétur Andri Ólafsson, Guðmundur Freyr Hansson og Eyrún Birgisdóttir – 23. desember 2012

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír Pétur Andri Ólafsson, Guðmundur Freyr Hansson og Eyrún Birgisdóttir. Pétur Andri er fæddur 23. desember 1992 og er því 20 ára í dag. Guðmundur Freyr Hansson, GHD, er fæddur 23. desember 1962 og á 50 ára stórafmæli í dag. Eyrún Birgisdóttir er fædd 23. desember 1952 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með afmælin hér að neðan: Eyrún Birgisdóttir (60 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Guðmundur Freyr Hansson (50 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Pétur Andri Ólafsson (20 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 07:00

Fannar Ingi sigraði á US Kids – Holiday Classic mótinu í Flórída!!!

Fannar Ingi Steingrímsson, 14 ára úr GHG sigraði glæsilega í US Kids Holiday Classic mótinu á Palmer golfvellinum í Palm Beach Gardens í Flórída, í gærkvöldi. Spilaðir voru 2 hringir og lék Fannar Ingi á samtals 157 höggum (80 77) Fannar Ingi átti 3 högg á þann sem næstur kom, „heimamanninn“ Doug Smith frá Winter Park í Flórída. Í 3. sæti, 6 höggum á eftir Fannari Inga var Guillermo Casares, frá Mexíkó; en væntanlega eigum við eftir að sjá alla 3 ofarlega á skortöflum einhverrar stóru mótaraðanna í framtíðinni! Þess mætti geta að Fannar Ingi er klúbbmeistari GHG 2012 og var nú nýverið valinn kylfingur ársins á aðalfundi GHG. Fannar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 06:30

Sérstakur gleðidagur Thomas Brock – fékk að verja deginum með Paul Lawrie – Myndskeið

Thomas Brock hefir æft golf frá því hann var 13 ára.  Í fyrra, 2011, var hann fyrir því áfalli að fá krabbamein í fótlegginn og ákvað að betra væri að taka fótinn af fyrir neðan hné til að varna því að krabbameinið tæki sig upp. Thomas telur sig heppinn að fá að halda lífi. Innan nokkurra daga frá aðgerðinni var hann kominn einfættur út á golfvöll og spilaði á 73 höggum! Til þess að gleðja Thomas Brock, sem virkilega átti erfiða tíma að baki sér báðu foreldrar hans og félagar bresku sjónvarpsstöðna Sky Sports að standa fyrir einhverju sem myndi gera 1 dag í lífi hans sérstakan og eftirminnilegan í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 06:00

Draumahöggin urðu 2 hjá Sam Jones 76 ára … og bæði slegin á sama hring!!! Myndskeið

Flesta kylfinga dreymir um að slá einu sinni um ævina draumahöggið, fara holu í höggi. En fyrir Sam Jones, frá Nashville, Tennessee var ekki nóg að fara einu sinni holu í höggi. Jones, 76 ára, fór nefnilega tvisvar holu í höggi þegar hann var að spila með félögum sínum á Windtree golfvellinum í Mount Juliet, Tennessee., þann 6. desember s.l. „Fyrir áhugmann þá er þetta óheyrt,“ sagði Dan Felton, viðburðarstjóri á Windtree golfvellinum. Líkurnar á að fara tvisvar holu í höggi á sama hring eru 67 milljónir á móti 1. Alls hefir Sam Jones, að þessum tveimur ásum meðtöldum, tekist 5 sinnum á 31 ára ferli sínum að fara holu í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2012 | 20:45

„The Match“ – 22. grein af 24

„Kylfingarnir þ.e. atvinnumennirnir Ben Hogan og Byron Nelson kepptu í fjórbolta við áhugamennina Ken Venturi og Harvie Ward vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik. Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Þetta er í stuttu máli innihald bókarinnar „The Match“ Bókin er 250 síðna og dreifist á 20 kafla – í fjórum þessara kafla eru Ken, Harvie, Ben og Byron einmitt kynntir; e.t.v. ekki í svo löngu máli sem hér hefir verið gert á Lesa meira