Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2013 | 18:00
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Karlin Beck – (20. grein af 27)

Karlin Beck deildi 8. sætinu í lokaúrtökumóti LPGA á Daytona Beach í Flórída, sem fram fór 28. nóvember – 2. desember á síðasta ári, 2012 ásamt Lauru Diaz, sem þegar hefir verið kynnt. Karlin Michelle Beck fæddist 6. ágúst 1987 og er því 25 ára. Hún byrjaði að spila golf 12 ára og segir afa sinn þá manneskju sem hafi haft mest áhrif á golfferil sinn. Foreldrar Karlin eru Steve og Kathy Beck og hún á eina systur, Kinley. Meðal áhugamála Beck eru tennis, kvikmyndir, hérar og hún segir sjálf að hún sé fréttafíkill. Karlin spilaði í 4 ár með golfliði Auburn University og útskrifaðist sem endurskoðandi þaðan, 2010. Til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2013 | 14:30
Thorbjørn Olesen gengur til liðs við Nike

Thorbjørn Olesen er einn af þeim sem mun nota Nike VR_S Covert dræver þegar hann hefur keppnistímabilið í ár, eftir að vera nýbúinn að undirrita samning við Nike Golf í dag. Fyrsta mótið sem hann spilar á er Volvo Champions í Suður-Afríku, sem hefst nú á fimmtudaginn. Nike Golf tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði samið við Danann til margra ára. Thorbjørn mun m.a. auglýsa kylfur, bolta, skó, hanska og alla aukahluti s.s. golfskygni frá Nike. Í poka Olesens munu líka verða Nike VR Pro Blades, VR Pro wedge-ar, VR Pro Limited Edition brautartré, VR_S blendingar og Method 001 pútter-inn. Eins mun Olesen nota 20XI boltann og nýju Nike Lunar Control II Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2013 | 13:00
Evróputúrinn: Branden Grace tilbúinn að verja titil sinn á Volvo Golf Champions

Branden Grace mun freista þess að hefja árið á sama hátt og í fyrra þegar hann vann Volvo Golf Champions. Mótið hefst í Durban Country Club í Durban, Suður-Afríku n.k. fimmtudag 10. janúar og stendur til sunnudagsins 13. janúar. Í mótinu er verðlaunaféð € 2.000.000 (um 330 milljónir íslenskra króna). Í fyrra vann Grace átrúnaðargoð sín frá því hann var smástrákur í golfi, þ.e. þá Ernie Els og Retief Goosen í bráðabana með fugli á 1. holu s.s. mörgum er eflaust í fersku minni. Nýliðinn Grace átti frábært ár, 2012, varð í 6. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar. Varðandi það sem framundan er, titilvörnina á Durban golfvellinum sagði hann m.a.: „Ég Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingar dagsins: Natalie Gulbis og Atli Þór Gunnarsson – 7. janúar 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru bandaríski kynbombukylfingurinn Natalie Gulbis og Atli Þór Gunnarsson. Þau eru bæði fædd sama dag 7. janúar 1983 og eiga því 30 stórafmæli í dag! Atli Þór er félagi í Golfklúbbnum Keili og Natalie spilar á LPGA. Gulbis er ein af þeim sem vakið hefir jafnmikla athygli á sér fyrir fyrirsætustörf sem golfleik og má sjá eina grein Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR: Komast má facebook síðu Atla Þórs til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Atli Þór Gunnarsson Reyndar er þetta mikil stjörnufæðingardagur í golfinu því margir aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag, m.a.: Emanuele Canonica, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2013 | 10:30
Golfútbúnaður: Odyssey Metal-X Arm Lock pútterinn

Odyssey Metal-X Arm Lock pútterinn er svarið við banni USGA (bandaríska golfsambandsins) og R&A (Royal & Ancient) við því að styðja púttera við líkamann þ.e. maga og bringu. Hins vegar virðist bannið ekki taka til útlima eins og handleggja og því er hér kominn pútter sem hægt er að styðja við handlegginn. Hægt verður að fá Odyssey Metal-X Arm Lock pútterinn í tveimur gerðum: Metal-X #7 og Metal-X DART. Skv. framleiðandanum hafa pútterarnir verið hannaðir og síðan farið í gegnum rannsóknir og tilraunir til þess að hámarka stöðugan árangur á púttflötinni, jafnframt því að kylfingarnar geta stutt pútterinn við handlegginn til þess að hafa meiri stjórn á pútternum í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2013 | 07:30
PGA: 10 merki þess að kylfingar séu að verða vitlausir á veðrinu á Hawaii

Cameron Morfit golffréttamaður á hjá Golf Magazine setti saman skemmtilegan lista um 10 atriði sem bentu til að kylfingar PGA mótaraðarinnar væru að verða vitlausir á öllum veðurtöfunum á Hawaii: 10. Hann heyrði Slugger White tala við blakbolta 9. Top 10 signs we’re losing our marbles @HyundaiTOC1 : 9@IanJamesPoulter actually crying every time he sees rainbow. (Lausleg þýðing: Ian Poulter grætur í hvert sinn sem hann sér regnboga). 8. Top 10 signs we’re losing our marbles @HyundaiTOC1 : 8 Carl Pettersson spotted trying to make fire by rubbing coconuts together. (Lausleg þýðing: Það sást til Carl Pettersson þar sem hann var að reyna að fá fram eld með því að núa saman kókoshnetum) 7. Top 10 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2013 | 07:00
PGA: Enn frestar hvassviðri leik í Hawaii

Í gær hófst loks leikur á Hyundai Tournament of Champions, fyrsta móti ársins á PGA Tour í Hawaii, en aðeins 1 klst eftir að fyrstu leikmenn fóru út ákváðu mótshaldarar að aðstæður til golfleiks væru óhæfar. Enn er haldið við planið frá því á laugardaginn þ.e. enn á að spila 54 holur; breytingin er sú að 36 verða spilaðar í dag og ljúka á mótinu með 18 holu hring á þriðjudag. „Augljóslega verður veðrið að spila með,“ sagði Andy Pazder, yfirmaður mótaframkvæmda á PGA mótaröðinni. „Þetta verður alveg á mörkunum á morgun. Veðurfræðingar spá 25-30 mílu vindhviðum/klst, sem við getum rétt svo spilað í.“ Steve Stricker var í þann veginn að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2013 | 17:00
Frægir kylfingar: Sidney Poitier

Sidney Poitier fæddist í Miami, Flórída, 20. febrúar 1927 og er því 85 ára. Hann ólst hins vegar upp á Cat Island í karabíska hafinu. Poitier er frægastur fyrir að vera fyrsti blökkumaðurinn til þess að hljóta Óskarsverðlaun, en þau hlaut hann árið 1963. Sagt var að hann hafi alltaf verið með golfkylfu á tökustað og var sífellt að æfa gripið og sveifluna á milli tökuatriða. Meðal best þekktu hlutverka hans eru „The Defiant Ones“ frá árinu 1958, en fyrir hlutverk sitt í þeirri kvikmynd varð hann fyrstur blökkumanna til að hljóta tilnefningu til Óskarsverðlaunanna. Það var hins vegar fyrir hlutverk sitt í „Lillies of the Field“ sem hann hlaut Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2013 | 16:30
Rory hjálpar Caroline að komast yfir lofthræðslu í Sydney Tower Eye Skywalk – Myndskeið
Rory sleppti s.s. kunnugt er fyrsta mótinu á PGA Tour; hinu niðurrignda og veðurbarða Tournament of Champions í Kapalua á Hawaii; en nú hefir verið ákveðið að fyrsti hringur verði spilaður í dag og 2. hringurinn sömuleiðis. Búið er að stytta mótið í 54 holu mót og verður lokahringurinn spilaður á mánudag. Flestir vorkenna kylfusveinunum, sem verða að bera fyrir pokana fyrir kylfinga sína á einum mest hæðótta golfvelli á túrnum og það 36 holur í dag! Rory grætur það varla að vera ekki veðurtafinn í móti – en hefir þess í stað skemmt sér konunglega með kærestunni Caroline Wozniacki, í Ástralíu. Meðal þess sem þau skötuhjú tóku upp á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2013 | 14:00
GKJ: Þórhallur Kristvinsson og Helgi Gunnarsson sigruðu í fyrsta vetrarmóti ársins – Myndasería

Fyrsta mót ársins á Hlíðavelli og þó víða væri leitað og um leið 10. á vetrarmótaröðinni fór fram 5. janúar s.l. Veðrið var eins og á góðum vordegi. Vallaraðstæður voru góðar, blautt á köflum en ágætar og ótrúlegt að hann skuli vera alveg auður, miðað við að það var klaki yfir öllum vellinum fimmtudaginn s.l., 3. janúar. Það voru 31 félagar og gestir sem tóku þátt og nutu þess að spila golf eftir hlé frá því fyrir jól. Það er skemmst frá því að segja að Þórhallur Kristvinsson sigraði í höggleiknum á 59 höggum og Helgi Gunnarsson í punktakeppninni með 31 punkt. Annars urðu helstu úrslit þessi: Höggleikur: 1. Þórhallur Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

