Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2013 | 11:15

Afmæliskylfingur dagsins: Katie Bakken – 6. janúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Katie Bakken. Katie er fædd 6. janúar 1979 og er því 34 ára í dag. Best er að kynnast afmæliskylfingnum með því að sjá myndskeið um hana SMELLIÐ HÉR:  eða fara inn á heimasíðu hennar SMELLIÐ HÉR:  Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Cary Middlecoff, f. 6. janúar 1921 – d. 1. september 1998);  Nancy Lopez 6. janúar 1957 (56 ára);  Paul William Azinger   6. janúar 1960 (53 ára) …. og ….. Herdís Björg Rafnsdóttir (51 árs) Nökkvi Freyr Mikaelsson (17 ára) Golf 1 óskar öllum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2013 | 22:22

Golfgrín á laugardegi

1. Einn gamall og lúinn svona af því að þetta er næstsíðasti dagur jóla: 2. Happafroskurinn Maður einn tekur sér frí úr vinnu og ákveður að fara í golf. Hann er á 2. holu þegar hann sér frosk sitja næst við flötina. Hann er ekkert meira að hugsa um froskinn, þegar hann allt í einu heyrir froskinn segja: „Notaðu 9-járn.“ Maðurinn lítur í kringum sig og sér engan og reynir aftur. „Notaðu 9-járn.“ Hann lítur á froskinn og ákveður að nota 9-járnið til þess að sýna fram á að froskurinn hafi rangt fyrir sér. Búmm!!!! Hann fær fugl…. og er í sjokki. Hann segir við froskinn: „Vá! Þetta var ótrúlegt! Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2013 | 20:00

Golfútbúnaður: Áhugamaður hannaði „golfsveifluæfingabol“

Ray Rapcavage er fasteignasölumaður í Rumford New Jersey í Bandaríkjunum sem fékk hugmynd. Ray er með 3 í forgjöf og var að æfa wedge-höggin sín í garðinum og sjankaði 3 högg í röð. Það var þá sem hann fékk hugmyndina. Hann gramsaði í fatakörfunni sinni og fann alltof stóran bol sem hann dró yfir höfuð sitt með eina ermina fyrir framan sig og hina fyrir aftan. Síðan tróð hann báðum handleggjum í gegnum fremri ermina og var þá tilbúinn að slá. „Ég var eins og vél. Þetta var frábært,“ segir hann. Og þetta var upphafið að „golfsveifluæfingabolnum“ (ens.: Golf Swing Shirt) en sjá má allt nánar um bolinn hér: (www.golfswingshirt.com), Golfsveifluæfingabolurinn er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2013 | 19:45

PGA: Leik enn frestað á Tournament of Champions – Fowler hætti við æfingu

Nú hefir leik  enn verið frestað á Tournament of Championship í Hawaii, en veður er litlu betra en í gær. Í morgun var mótinu frestað um 2 tíma vegna þess að aðstæður voru ekkert skárri en í gær. Nú á að reyna að hefja leik að nýju kl. 20:30 að íslenskum tíma. Rickie Fowler fór t.a.m. út á æfingasvæðið snemma í morgun en um 20 mínútum seinna var hann kominn inn. Planið var að spila 36 holur í dag til þess að halda dagskrá og ljúka mótinu á mánudag.  Nú eru mótsstjórnendur að reyna að finna út hvað verði gert í framhaldinu.


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2013 | 19:15

GK: Axel og Signý fengu sérstaka viðurkenningu fyrir árangur og frammistöðu í golfinu 2012 og tilnefnd til titilsins Íþróttamaður Hafnarfjarðar

Það var mikið fjölmenni var á 30. Íþróttahátíð Hafnarfjarðar í Íþróttahúsinu við Strandgötu, 28. desember s.l. þar sem fram fór krýning á íþróttamanni Hafnarfirði.  Þetta var í fimmta skiptið sem “Íþróttakona og Íþróttakarl Hafnarfjarðar” voru valin, en í tuttugu og fimm ár þar áður var valinn “Íþróttamaður Hafnarfjarðar”. Það voru þau Atli Guðnason knattspyrnumaður úr FH og Hrafnhildur Lúthersdóttir sundkona úr SH, sem voru krýnd Íþróttamenn Hafnarfjarðar 2012. Tuttugu og einn afreksmaður fékk sérstaka viðurkenningu fyrir árangur og frammistöðu í sínum íþróttagreinum á þessu ári : Atli Guðnason FH Knattspyrna Óðinn Björn Þorsteinsson FH Frjálsaríþróttir Stefán Rafn Sigurmannsson Haukar Handknattleikur Marija Gedroit Haukar Handknattleikur Axel Bóasson GK Keilir Golf Signý Arnórsdóttir GK Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2013 | 19:00

GA: Barátta við klakann á Jaðarsvelli

Veturinn hefur verið býsna áhugaverður það sem af er, þar sem snjókoma og hláka hafa skipst á. Fyrir jólin var svo komið að mikill klaki hafði safnast saman á vellinum og þar með talið flötunum. Vallarstjóri taldi eftir skoðun á flötum að mjög stutt væri í að skemmdir mundu myndast undir klakanum. Hann hefur þess vegna unnið að því að undanförnu að ryðja flatirnar, gata klakann og sandbera til að hraða bráðnun og minnka líkur á skemmdum. Um mikla vinnu er að ræða, eins og sést á meðfylgjandi mynd þar sem vélar eru við vinnu á og við 18 flöt. Miðað við veðurspánna er vonast til að klakinn bráðni að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Miguel Ángel Jiménez – 5. janúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er spænski kylfingurinn fótbrotni Miguel Ángel Jiménez.  Hann komst í fréttirnar nú um áramótin eftir að fótbrotna í skíðaslysi í Ölpunum og mun verða frá keppni næstu 5 mánuði. Jiménez er fæddur 5. janúar 1964 í Malaga á Spáni og er því 49 ára í dag.  Hann hefir verið kvæntur Monserrat Ramirez frá árinu 1991 eða í 22 ár og eiga þau tvo stráka, Miguel Ángel fæddan 1995 og Victor fæddan 1999. Jimenéz hefur verið uppnefndur “vélvirkinn” (The Mechanic), vegna ástríðu hans að gera við fremur en keyra rándýra bíla, sérstaklega rauða Ferrari bílinn, sem hann á. Jimenéz gerðist atvinnumaður 1983 en spilaði fyrst á Evróputúrnum árið 1988 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2013 | 10:45

Golfútbúnaður: Nýi Adizero golfskórinn frá Adidas

Að vera í golfskóm sem eru stöðugir og þægilegir er sérstaklega mikilvægt fyrir kylfinga sem ganga allt að 5-6 km per golfhring.  Eitt af því sem framleiðendur golfskóa hafa verið að stefna að undanfarin ár er að hann létta skó. Adidas hefir verið leiðandi í nýjungum og tæknilega framúrskarandi skóm til þess að kylfingar á hæsta stigi leiksins nái sem bestri frammistöðu.  Skórnir frá Adidas líta ekki aðeins vel út heldur eru þeir góðir, s.s. flestir sem átt hafa Adidas skó geta borið vitni um. S.l. fimmtudag kynnti Adidas nýjustu golfskóar línu sína Adizero Tour golfskóinn sem er sérlega léttur 300 gramma skór og þar með um 38% léttari en Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2013 | 07:45

PGA: Fyrsti hringur Tournament of Champions á Kapalua felldur niður sökum veðurs

Vindhviðurnar á Plantation golfvellinum voru það sterkar og rigningin lamdi keppendur í Kapalua, Hawaii í gær þannig að ákveðið var að fella niður 1. hring á Tournament of Champions (skammst. TOC). Þetta var ágætis ákvörðun fyrir keppendur eins og Scott Stallings sem var kominn 7 yfir eftir aðeins 4 holur. En hvað með sigurvegara Opna bandaríska, Webb Simpson, sem eins og Golf 1 greindi frá í gærkvöldi var sá eini ásamt Svíanum Jonas Blixt sem búinn var að spila undir pari. „Þetta er ömurleg ákvörðun fyrir mig,“ sagði hann. Webb Simpson var á 3 undir pari eftir 7 holur þegar ákvörðun var tekin um að fella leik 1. hrings niður. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2013 | 23:37

PGA: Webb Simpson í forystu snemma dags á Tournament of Champions

Það er bandaríski kylfingurinn Webb Simpson, sem tekið hefir forystu snemma dags á Tournament of Champions (skammst. TOC), fyrsta móti ársins á PGA mótaröðinni, þar sem aðeins sigurvegarar síðasta árs hafa þátttökurétt. Spilað er á Plantation golfvellinum í Kapalua á Hawaii. Þegar Simpson hefir leikið 7 holur er hann kominn á 3 undir par. Ýmsir góðir eru ekki einu sinni farnir út, þ.á.m. Bubba Watson og Dustin Johnson, sem og Steve Stricker, sem á titil að verja og fer út með Brandt Snedeker. Til þess að sjá stöðuna á TOC eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: