Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2013 | 10:30

PGA: Dustin Johnson sigraði á fyrsta móti ársins 2013 á Hawaii

Það er Dustin Johnson, sem er sigurvegari Tournament of Champions 2013, þessu niðurrignda og vindfeykta fyrsta móti PGA mótaraðarinnar á árinu, en 3 hringir voru leiknir 7. og 8. janúar 2013, alls 54 holur, en mótið var stytt vegna veðurhamsins. Johnson var með 3 högga forystu fyrir lokahringinn, sem hann lét aldrei af hendi.  Hann spilaði samtals á 16 undir pari, 203 höggum (69 66 68). Spurning hvað hafi orðið til þess að hann sigraði? Var það að hann var búinn að dansa svo mikið Gangnam Style með Jesper Parnevik SJÁ HÉR:  eða er það nýja ástin í lífi hans, Paulina Gretzky, sem hefir þessi jákvæðu áhrif? Í 2. sæti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2013 | 21:30

Dustin Johnson sást með Paulinu Gretzky á Hawaii

Það er ekki nema von að Dustin Johnson sé að spila vel á Tournament of Champions! Hann hefir varið tíma á Maui með Paulinu Gretzky, dóttur hokkí-leikmannsins fræga Wayne Gretzky, skv. áreiðanlegum heimildum Sports Illustrated skríbentsins Alan Shipnuck. Johnson sást leika sér í golfi með Gretzky á Plantation vellinum í Kapalua og honum var slétt sama þótt hvasst væri eða að það rigndi eins og hellt væri úr fötu! Ef það lítur út fyrir að Johnson sé að finna sig vel á Plantation vellinum, þá er það vegna þess að hann hefir varið svo miklum aukatíma á honum!!! Hann varð að hita upp nýju járnin sín og dræver og hann Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2013 | 20:45

Retief Goosen snýr aftur til keppni eftir uppskurð í baki

Retief Goosen mun spila á fyrsta móti sínu í næstum 5 mánuði á Volvo Golf Champions í Suður-Afríku eftir að hafa gengist undir bakuppskurð. Tvöfaldur sigurvegari Opna bandaríska (Goosen), sem keppti síðast í ágúst 2012, varð að taka sér langt frí frá golfleik til þess að láta lagfæra brjósklos.  Hann byrjar aftur 6 vikum fyrr en áætlað var. Í viðtali við fréttafulltrúa European Tour sagði Goosen: „Ég er mjög spenntur fyrir nýja árinu. Augljóslega hafa síðastliðinn 3 ár verið slæm.“ „Á síðasta ári reyndi ég svolítið af öllu…. sprautur, var mikið hjá sjúkraþjálfara, allt hugsanlegt en ekkert var virkilega að virka. Að síðustu átti ég einskis annars valkosti en að fara Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2013 | 12:45

GVS: Ragnar Davíð Riordan Íþróttamaður Voga 2012

Val á íþróttamanni Voga 2012 fór fram á þrettándanum og var það kylfingurinn Ragnar Davíð Riordan sem hreppti titilinn. Ragnar byrjaði árið á að vinna skálamótið í Grindavík þar sem að hann spilaði á einu höggi undir pari. Þar vann hann marga kylfinga sem að eru með mun lægri forgjöf en hann. Ragnar vann svo Bikarkeppni GVS í sumar. Hann var svo í öðru sæti í meistaramótinu þegar að hann þurfti að draga sig úr keppni vegna vinnu. Í águst lenti hann í þriðja sæti í höggleik í opna Subway mótinu hjá golfklúbbnum Keili. Þar lagði hann að velli meðal annars 2 fyrrum Íslandsmeistara í golfi þá Ólaf Björn Loftsson og Kristján Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Nikki Garrett – 8. janúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er ástralski kylfingurinn Nikki Maree Garrett.  Nikki er fædd 8. janúar 1984 og því 29 ára í dag. Nikki gerðist atvinnumaður í golfi seint á árinu 2005 og var komin á Evrópumótaröðina (ens. Ladies European Tour, skammst. LET) árið 2006. Hún vann ekki mót á nýliðaári sínu en var 4 sinnum meðal 10 efstu í mótum LET og lauk 1. ári sínu í 12. sæti á peningalista mótaraðainnar það ár, þ.e. með  €99,445 í verðlaunfé. Hún hlaut,Ryder Cup Wales Rookie of the Year, þ.e. var valin nýliði ársins 2006. Árið 2007 sigraði hún tvisvar sinnum í röð á LET þ.e. á Tenerife Ladies Open and the Open de España Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2013 | 10:30

Golfútbúnaður: Odyssey Versa pútterarnir

Ef miðið er rétt þá setjið þið fleiri pútt niður og ef þið setjið niður fleiri pútt þá eru líkur á því að þið séuð að miða rétt. Þess vegna er skynsamlegt að bæta mið kylfingsins og með þetta í huga hefir Odyssey komið fram með Versa línu sína af pútterum. Odyssey hefir gert ítarlegar rannsóknir á miði og á neikvæðum áhrifum slæms miðs. Að pútta um 1° utan púttlínu getur valdið því að 4 metra pútt fer forgörðum. Nýju Versa pútterarnir byggja á því sem á ensku er nefnt  High Contrast Alignment System (þ.e. kerfi þar sem mikil áhersla á andstöður og mið). Allir Versa pútterarnir koma í svörtu og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2013 | 10:00

Jumeirah Group endurnýjar ekki samninga við Rory McIlroy

Jumeirah Group hefir tilkynnt að styrktarsamningur þess til 5 ára við nr. 1 á heimslistanum í golfi, Rory McIlroy verði ekki endurnýjaður. Þetta hefir valdið því að sögusagnir um að Rory sé að fara að undirrita samning við Nike í næstu viku hafa fengið byr undir báða vængi. Jumeirah lúxus-hótelkeðjan, með starfsstöð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum undirritaði samning til 5 ára við McIlroy þegar hann var 18 ára og var eitt af fyrstu fyrirtækjunum til þess að styrkja hann. Tilkynningin staðfestir að McIlroy sé laus allra mála og geti heilshugar undirritað samning við Nike og talið er að hann hljóti  $20 milljónir fyrir á ári. Með þessu myndi Nike hafa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2013 | 09:30

Uppboðsgögn Augusta National frá 1935 til sölu

ÞIÐ HAFIÐ TIL 12.JANÚAR TIL ÞESS AÐ YFIRBJÓÐA tilboð manns sem kýs að IP tölvupóstfang sitt sé úr tölvu lögmannsstofu í Augusta, Georgíu. Það sem hér er verið að bjóða upp eru  uppboðsgögn (3 bls. bréf) frá 2. desember 1935 frá lögmönnum Augusta National til lánadrottna umbjóðenda sinna, þar sem tilkynnt er um uppboð á einum  frægasta golfvelli heims. Þegar Bobby Jones og Clifford Roberts ákváðu að byggja draumagolfvöll sinn árið 1931 þá gengu þeir í félag sem bar nafnið Fruitland Manor Corporation, til að eignast landið undir golfvöll Augusta National. Skv. bréfinu gátu þeir ekki staðið undir greiðslum í Heimskreppunni miklu (The Great Depression). Þess vegna, jafnvel eftir að Masters mótin Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2013 | 03:42

PGA: Dustin Johnson með 3 högga forystu eftir 2. hring á Tournament of Champions

Það er Dustin Johnson, sem er einn í forystu eftir 2. og fyrir lokahring þessa stytta Tournament of Champions (TOC) móts, sem fram fer dagana 7.-8. janúar á Plantation golfvellinum í Kapalua, Maui í Hawaii. Dustin er kominn með þó svolítið forskot á hina; er búinn að spila hringina tvo á samtals 11 undir pari, 135 höggum (69 66).  Hann spilaði 2. hringinn á 7 undir pari, fékk 1 glæsiörn á 18. braut; 6 fugla, 10 pör og 1 skolla. Í 2. sæti er Steve Stricker 3 höggum á eftir Johnson á 8 undir pari, 138 höggum (71 67) og í 3. sæti er Bubba Watson á samtals  7 undir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2013 | 23:00

PGA: Dustin Johnson, Mark Wilson og Nick Watney leiða eftir 1. hring Tournament of Champions

Það eru bandarísku kylfingarnir Dustin Johnson, Nick Watney og  Mark Wilson, sem leiða eftir 1. hring Tournament of Champions, sem loksins hófst í dag. Þessir 3 léku allir  á 4 undir pari, 69 höggum. Wilson fékk 4 fugla og 14 pör, Johnson 6 fugla, 10 pör og 2 skolla en Watney 1 glæsiörn á 18. holu; 4 fugla, 11 pör og 2 skolla. Fimm kylfingar deila 4. sætinu á 3 undir pari, 70 höggum: Rickie Fowler; Ben Curtis, Carl Pettersson, Bubba Watson og Brandt Snedeker. Annar hringurinn er þegar hafinn því nú á að keyra mótið áfram!  Niðurstöður 2. hrings liggja í fyrsta lagi fyrir kl. 3 í nótt. Til þess Lesa meira