Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2013 | 12:55
Evróputúrinn: Jamie Donaldson stóð uppi sem sigurvegari í Abu Dhabi – Myndskeið

Þvílíkt drama á lokaholunum í Abu Dhabi. Það leit út eins og Wales-verjinn Jamie Donaldson, ætti sigurinn vísan á Abu Dhabi HSBC Golf Championship…. en svo fékk hann skramba á 18. holu og allt galopnaðist aftur. Þess mætti geta að í 3 fyrstu hringjum sínum var hann tvívegis búinn að fá fugl á holuna og spurning hvort taugarnar hafi eitthvað gefið sig á 18. eða hann hafi bara verið svona óheppinn? Donaldson spilaði á samtals 14 undir pari, 204 höggum (67 70 69 68). Hann átti glæsihring í dag, þar sem flest féll með honum og hann skilaði skorkorti upp á 1 skramba (á 18. holu), 4 fugla og 13 pör….. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2013 | 11:00
Annika Sörenstam: „Að verða móðir er jafngott og að vinna risamót!“
Fyrir fimm árum ákvað Annika Sörenstam, einn af bestu kvenkylfingum allra tíma að hætta keppnisgolfi. Þegar einar dyr lokast opnast fjölda-margar aðrar líkt og er um svo margt annað í lífinu og svo hefir það svo sannarlega verið hjá Anniku. Annika fann fyrir engri öfund þegar fyrrum andstæðingar hennar tíuðu upp í risamótum síðasta árs. Hún fylgist aðeins með öðru auganu með, sérstaklega Yani Tseng, sem m.a. keypti gamla húsið hennar af henni í Flórída. En keppnisskapið hefir vikið fyrir móðurtilfinningum fyrir löngu síðan og Annika, sem sigrað hefir í 10 kvenrisamótum er sátt því henni finnst að hún hafi náð því besta út úr sér og hafa orðið eins Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2013 | 09:59
Evróputúrinn: Útsending á netinu beint frá Abu Dhabi HSBC Golf Championship hófst kl. 09:00

Í dag fer fram lokahringurinn á Abu Dhabi HSBC Golf Championship. Nr. 1 og nr. 2 á heimslistanum spila ekki um helgina og það sama er að segja um fleiri hetjur golfíþróttarinnar, menn á borð við: José Maria Olázabal, Kristoffer Broberg, Jeev Milkha Singh, Monty og Molinari bræður. Allir farnir heim. Hinir sem eftir eru berjast um efsta sætið í dag og á morgun og fremstur allra eftir þrjá hringi er Justin Rose með skor upp á samtals 204 högg (67 69 68). Til þess að sjá beina útsendingu frá Abu Dhabi HSBC Golf Championship á netinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2013 | 09:45
GSG: Janúarmóti nr. 2 aflýst í Sandgerði

Í tilkynningu frá Golfklúbbi Sandgerðis segir eftirfarandi: „Vegna veðurs verðum við því miður að aflýsa mótinu sem vera átti í dag. Veðrið kl 07:00 austan 15-23 metrar og rigning,og samkv veðurspá á bara eftir að bæta í vind. Við reynum aftur um næstu helgi.“
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2013 | 03:30
PGA: Scott Stallings leiðir fyrir lokahringinn á Humana Challenge – hápunktar og högg 3. dags

Það er Scott Stallings, sem leiðir fyrir lokahringinn á Humana Challenge mótinu, sem fram fer á PGA West í La Quinta, Kaliforníu. Stallings er samtals búinn að spila á 22 undir pari, 194 höggum (66 65 63). Það var aðallega hringurinn í gærkvöldi upp á 63 högg, sem kom Stallings í sigurvænlega stöðu, en það er sjaldan sem sjást svo glæsileg skorkort. Stallings skilaði „hreinu“ skorkorti; fékk 2 erni, 5 fugla og 11 pör. Hann hefir nokkuð sannfærandi 5 högga forystu á næstu 5 kylfinga sem deila 2. sætinu á samtals 17 undir pari, 199 höggum þ.e. Roberto Castro, Stewart Cink, Charles Howell III, John Rollins og Charley Hoffman. Eftir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2013 | 15:00
Afmæliskylfingur dagsins: Adele Peterson – 19. janúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Adele Peterson. Adele fæddist 19. janúar 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Adele var nýliði á LPGA 1986 en þangað komst hún eftir útskrift sem markaðsfræðingur frá University of Tulsa og eftir að hafa spilað í 4 ár í bandaríska háskólagolfinu. Hún spilaði á túrnum sem Adele Lukken en tók upp nafn eiginmanns síns Paul Peterson, eftir að þau giftust 1989. Adele og Paul eignuðust dætur sínar Paige (11. mars 1992) og Lucia Lea (23. ágúst 1994). Adele segir þjálfarann Mike McGetrick, íþróttasálfræðinginn Fran Pirozollo og yfirþjálfara University of Tulsa Dale McNamara hafa haft mest áhrif á golfferil sinn. Meðal áhugamála afmæliskylfingsins eru veiðar, m.a. stangveiði, hjólreiðar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2013 | 14:00
Hver er kylfingurinn: James Hahn?

James Hahn? Kannast einhver við kylfinginn Hahn? James Hahn leiðir þegar Humana Challenge er hálfnað með skor upp á 130 högg (63 67), en nafn hans er ekki mjög þekkt í golfheiminum ….. enn. James Hahn fæddist 2. nóvember 1981 í Seúl, Suður-Kóreu og er því 31 árs. Hann spilaði með University of California, Berkley í bandaríska háskólagolfinu og gerðist atvinnumaður í golfi eftir að hann útskrifaðist 2003. Eftir útskrift spilaði Hahn á Canadian Tour, Korean Tour og Gateway Tour, þar til hann komst á Nationwide Tour (nú Web.com Tour) árið 2010. Hahn varð í 29. sæti á peningalista þeirrar mótaraðar eftir að hafa 5 sinnum orðið meðal 10 efstu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2013 | 13:30
Evróputúrinn: Justin Rose leiðir með 2 höggum fyrir lokahringinn

Englendingurinn Justin Rose leiðir með 2 höggum fyrir lokahring Abu Dhabi HSBC Golf Championship. Rose er búinn að spila á samtals 12 undir pari, 204 höggum (67 69 68). Í dag spilaði Rose á 4 undir pari; fékk 7 fugla, 8 pör og 3 skolla. Hann sagði eftir hringinn góða í dag, ánægður með stöðuna sem hann er í: „Ég kom hingað án nokkurra væntinga – ég kom til að sjá hver staðan á leiknum hjá mér er.“ Og svo bætti hann við: „Sá sem sigrar í þessari viku getur sagt að hann hafi unnið nr. 1 og nr. 2 á heimslistanum. Hann getur sagt að hann hafi borið sigurorð Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2013 | 08:00
GKG: Eva María Gestsdóttir, Viktor Markússon, Elísabet Ágústsdóttir, Magnús Friðrik Helgason, Kristófer Orri Þórðarson og Særós Eva Óskarsdóttir sigruðu á 1. púttmóti barna- og unglinga í GKG

Fyrsta mótið af níu í púttmótaröð barna og unglinga í GKG fór fram í Kórnum, laugardaginn 12. janúar þ.e. fyrir viku. Alls mættu 40 krakkar og tóku hring. Þátttaka var ókeypis og hvetur GKG alla til að mæta í næstu mót. Mótin fara fram á tveggja vikna fresti og verður því næsta mótið 26. janúar þ.e. eftir viku. Hér fyrir neðan má sjá árangur þeirra er náðu lægsta skorinu í hverjum flokki, en heildarúrslit má sjá með því að SMELLA HÉR: 12 ára og yngri stelpur Eva María Gestsdóttir 30 12 ára og yngri strákar Viktor Markússon 28 13 – 15 ára stúlkur Elísabet Ágústsdóttir 28 13 – 15 ára Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2013 | 02:00
PGA: Roberto Castro og Jamie Hahn í forystu þegar Humana Challenge er hálfnað – hápunktar og högg 2. dags

Það eru Bandaríkjamennirnir Roberto Castro og Jamie Hahn, sem eru efstir þegar Humana Challenge, sem fram fer í PGA West, La Quinta í Kaliforníu, er hálfnað. Báðir eru þeir búnir að spila á samtals 14 undir pari, 130 höggum (63 67). Aðeins 1 höggi á eftir þeim eru Darron Stiles, Scott Stallings og Richard H. Lee. 9 kylfingar deila síðan 6. sætinu á 13 undir pari, 131 höggi, hver þ.á.m. Ástralarnir Greg Chalmers og Aron Baddeley ásamt þriðja forystumanni gærdagsins Jason Kokrak. Á 11 undir pari, hver, eru síðan 7 aðrir kylfingar, sem deila 15. sætinu, en þeirra á meðal er nýliðinn Russell Henley. Þekktari nöfnin sjást eftir því sem Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

