Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 22. 2013 | 07:30
Lydia Ko tekur þátt í Australían Open

Áhugamaður nr. 1 í heiminum, hin 15 ára Lydía Ko, tekur þátt í the Women´s Australian Open ásamt tæpum helmingi af þeim atvinnumönnum sem eru á topp-10 á Rolex-heimslista kvenna. Breska golfdrottningin Laura Davies mun reyna að næla sér í 3. Australian Open titilinn meðan hin 17 ára bandaríska Lexi Thompson mun reyna að vinna sér inn 2. titil sinn á LPGA, í þessu móti sem er samstarfsverkefni LPGA, LET og ALPG og hefst í Canberra, á Valentínusardaginn, 14. febrúar n.k. Jessica Korda sem á titil að verja og er dóttir Petr Korda sem vann the Australian Open árið 1998 (í tennis) er ekki sú eina með fræga íþróttamenn í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 22. 2013 | 07:00
Flytur Phil Mickelson frá Kaliforníu vegna óánægju með hækkun skatta?

Phil Mickelson sagði s.l. sunnudag, 20. janúar 2013 að hann væri ekki ánægður með hækkun skatta bæði á sambandsríkja og ríkjastigi. Mickelson lýsti óánægju sinni með skattahækkanirnar eftir Humana Challenge mótið. „Það munu verða nokkrar drastískar breytingar hjá mér vegna þess að ég er í þeim flokki sem verður verst úti bæði hvað varðar sambandsríkja (ens. federal) skattinn og ríkisskattinn (ens. state taxes) og vitið þið, það er bara ekki að gera sig fyrir mig,“ sagði hann. Mickelson hefir boðað til fréttamannafundar á miðvikudaginn, þar sem búist er við að hann skýri sjónarmið sín. „Sú lausn sem liggur næst við er að hann muni tilkynna um brottför sína frá Kaliforníu-ríki,“ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jack Nicklaus – 21. janúar 2013

Það er golfgoðsögnin og Íslandsvinurinn Jack Nicklaus sem á 73 ára afmæli í dag, en Jack er fæddur 21. janúar 1940. Golf 1 birti í fyrra 12 greinar til kynningar á þessum einum besta kylfingi allra tíma og má sjá þær með því að smella hér: Jack Nicklaus 1; Jack Nicklaus 2; Jack Nicklaus 3; Jack Nicklaus 4; Jack Nicklaus 5; Jack Nicklaus 6; Jack Nicklaus 7; Jack Nicklaus 8; Jack Nicklaus 9; Jack Nicklaus 10; Jack Nicklaus 11; Jack Nicklaus 12 Já, Jack William Nicklaus er 73 ára í dag en hann fæddist í Columbus, Ohio 21. janúar 1940. Jack Nicklaus hefir á ferli sínum sigrað Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2013 | 11:30
Justin Rose kominn í 4. sæti heimslistans

Þrátt fyrir að hafa orðið af 1. sætinu á Abu Dhabi HSBC Golf Championship fer Justin Rose upp um 1 sæti á heimslistanum og er nú í 4. sæti, sem er það hæsta sem hann hefir komist á listanum. Rose er 0.01 stigi betri en Louis Oosthuizen sem vermdi 4. sætið í síðustu viku. Sigurvegarinn í Abu Dhabi, Jamie Donaldson frá Wales fer úr 48. sætinu inn á topp-30 og situr nú sem fastast í 29. sætinu. Sigurvegari Humana Challenge á PGA mótaröðinni Brian Gay fór úr 296. sætinu í 116. sætið á heimslistanum og þeir sem deildu 2. sætinu Svíinn David Lingmerth fór úr 227. sætinu í 137. sætið og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2013 | 09:00
GB: Golfklúbbur Borgarness 40 ára í dag!

Í dag á Golfklúbbur Borgarness 40 ára afmæli, en klúbburinn var stofnaður 21. janúar 1973. Það voru 13 Borgnesingar sem komu saman á hótelinu í Borgarnesi 21. janúar 1973 og bundust samtökum um að stofna golfklúbb. Í afmælisriti, sem gefið var út á 20 ára afmæli klúbbsins kemur fram að fyrsta árið hafi félagar í klúbbnum verið 30 talsins, sem hafi talist gott á þessum tíma, miðað við að íbúar á svæðinu voru aðeins 1200. Einnig segir í sama riti að aðeins 4 þrettánmenninganna hafi kunnað eitthvað fyrir sér í íþróttinni….. GB ætlar ekki að minnast dagsins sérstaklega fyrr en í sumar (væntanlega í júni) og þá er á dagskrá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2013 | 02:00
PGA: Brian Gay sigraði í 3 manna bráðabana á Humana Challenge – hápunktar og högg 4. dags

Það var Brian Gay, sem vann upp 6 högga forystu, sem Scott Stallings átti á hann fyrir lokahringinn og komst í 3 manna bráðabana á Humana Challenge í gærkvöldi. Allt var jafnt hjá þeim Brian Gay, Charles Howell III og Svíanum David Lingmerth eftir 72 spilaðar holur. Allir voru þeir búnir að spila á samtals 25 höggum undir pari, 263 höggum. Lingmerth átti ásamt Jamie Hahn (sem varð T-4) og Kevin Chappell lægsta skor 4. hrings á Humana Challenge 62 högg. Gay vann Lingmerth á 1. holu umspils og Howell III á 2. holu en 18. holan (par-5) var fyrsta hola umspils og fengu bæði Gay og Howell III fugla Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2013 | 01:45
PGA: Glæsilegur ás Richard E. Lee á 15. braut PGA West – Myndskeið

Richard E. Lee fékk glæsilegan ás á 15. braut PGA West í La Quinta, Kaliforníu á Humana Challenge mótinu í gær. Golf 1 hefir áður kynnt Richard E. Lee en hann var einn af nýju strákunum á PGA mótaröðinni í fyrra. Til þess að sjá kynninguna SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá myndskeið af flottum ási Richard E. Lee SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2013 | 21:00
Viðtalið: Örn Ævar Hjartarson, GS

Viðtalið í kvöld er við 9. besta kylfing á landsvísu, sem til margra ára var kylfingur nr. 1 forgjafarlega séð. Hér fer viðtalið við einn allra besta kylfing okkar Íslendinga: Fullt nafn: Örn Ævar Hjartarson. Klúbbur: GS. Hvar ertu alinn upp? Ég er uppalinn í Keflavík – er Keflvíkingur. Í hvaða starfi/námi ertu? Ég er grunnskólakennari í Sandgerði. Ertu starfandi í einhverjum stjórnum tengdum golfi? Já , ég er varamaður í stjórn GS. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég er kvæntur Kristínu Þóru Möller og við eigum 2 dætur. Það er enginn byrjaður af alvöru, konan mín fer á fjölskyldumót tvisvar sinnum á ári. Hvenær byrjaðir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2013 | 18:00
Afmæliskylfingur dagsins: Konráð V. Þorsteinsson – 20. janúar 2013
Það er Akureyringurinn Konráð V. Þorsteinsson sem er afmæliskylfingur dagsins. Konráð er fæddur 20. janúar 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!!! Hann er í Golfklúbbi Akureyrar (GA). Konráð er kvæntur Sólrúnu Eyfjörð Torfadóttur og eiga þau 1 barn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan: Konráð V. Þorsteinsson (40 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Tom Carter, 20. janúar 1968 (45 ára); Peter Hedblom, 20. janúar 1970 (43 ára); Fredrik Anderson Hed, 20. janúar 1972 (41 árs); Derek Fathauer, 20. janúar 1986 (26 ára)…. og …… Guðrún Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2013 | 16:30
Evróputúrinn: Nokkrar staðreyndir um sigur Jamie Donaldson

Eftir að hafa unnið glæstan sigur í Abu Dhabi HSBC Golf Championship þá er blaðafulltrúi Evrópumótaraðarinnar fljótur að draga saman nokkrar staðreyndir um sigurvegarann, Jamie Donaldson og sigur hans: • Þetta er 2. sigur Donaldson á Evrópumótaröðinni í 268 mótum sem hann er búinn að taka þátt í. • Hann fer í 2. sætið á peningalista Evrópumótaraðarinnar The Race to Dubai með €373,875 í vinningsfé. • Donaldson fer úr 47. sætinu á topp-30 á heimslistanum. • Þetta er 2. tímabilið hans í röð á Evróputúrnum, sem hann sigrar á; fyrri sigurinn kom á Irish Open 2012. • Hann spilaði í 255 mótum á Evrópumótaröðinni þar til fyrsti sigurinn loksins kom Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

