Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 08:00

GR: Golfkveðjur til GL

Á heimasíðu GR gefur að finna eftirfarandi kveðju formanns GR, til Leynismanna: „Undanfarin fimm ár hefur Golfklúbbur Reykjavíkur verið rekstraraðili Garðavallar á Akranesi. Nú er sá samningur á enda og vil ég fá að nota þetta tækifæri til að senda þakklæti til þeirra Leynismanna sem þessi fimm ár hafa þolað okkur GR-inga á sínum glæsilega velli sem rekstraraðila. Endanlegt uppgjör og viðskilnaður okkar hefur farið fram og einnig hefur verið gengið frá vinavallar samning við þá Leynismenn þannig að GR-ingar fá áfram að leika Garðavöll gegn hóflegu gjaldi sem og bóka rástíma eins og áður var. Sendum okkar bestu golfkveðjur til Golfklúbbsins Leynis með þökk fyrir frábært samstarf á liðnum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 02:00

LPGA: Amma Paulu Creamer dó

Bleiki pardusinn, Paula Creamer tekur þátt í Kraft Nabisco mótinu, þó hún hafi það ekki gott hvorki andlega né líkamlega. Þrátt fyrir allt lék hún á 4 undir pari, 68 höggum og er komin meðal fremstu keppenda. Amma Paulu, Florence Stanton, dó á Páskadag og Paula sagði það hafa tekið sinn toll af henni. „Mér finnst ég vera veik,“ sagði Paula, en hún og amman voru mjög nánar, „amma mín dó og ég sef ekki, það er eins og líkamsstarfsemi mín hafi stöðvast. Síðasta nótt var erfið en að öðru leyti líður mér svolítið betur.“ Amma Paulu var með Parkinsons veiki. Dauði hennar kemur aðeins ári eftir að Paula missti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 01:45

LPGA: Park leiðir á Kraft Nabisco

Það er Inbee Park frá Suður-Kóreu sem er í forystu þegar 1. risamót ársins í kvennagolfinu er hálfnað. Inbee er búin að spila á samtals 7 undir pari, 137 höggum (70 67). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Park er bandarísk/mexíkanski nýliðinn frá síðasta ári, Lizette Salas og í 3. sæti 2 höggum á eftir Park eru hin sænska Caroline Hedwall fyrrum skólafélagi Eyglóar Myrru Óskarsdóttur, GO og hin ítalska Giulia Sergas.  Í 5. sæti á samtals 4 undir pari (3 höggum á eftir Inbee Park) eru 3 kylfingar m.a. Jodi Ewart Shadoff, sem var í 1. sæti eftir 1. dag og  8. sætinu deila 4 kylfingar m.a. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 01:15

PGA: Horschel leiðir í Texas

Þegar mót vikunnar á PGA Tour, Texas Valero Open er hálfnað er Bandaríkjamaðurinn Billy Horschel í forystu. Horschel er samtals búinn að spila á 8 undir pari, 136 höggum og hefir 2 högga forskot á þá 3 sem deila 2. sætinu: Daniel Summerhayes, Charley Hoffman og Steven Bowditch. Fimmta sætinu deila þeir Brendon de Jonge frá Zimbabwe, Jim Furyk, KJ Choi, Retief Goosen, Ben Kohles, Lee Janzen ….. og viti menn nr. 2 á heimslistanum Rory McIlroy en þeir eru allir búnir að spila á samtals 5 undir pari, 139 höggum og eru aðeins 3 högg frá forystumanninum Horschel. Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð eru John Daly, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2013 | 20:30

Fótbolti eða golf?

Hér á Íslandi er alveg kristaltært hverjar eru vinsælustu íþróttagreinarnar: fótbolti er í 1. sæti – golf í 2. sæti. En hvernig skyldi staðan vera í Þýskalandi?  Í Þýskalandi eru vinsælustu íþróttagreinarnar þær sömu og fyrir 20 árum: Fótbolti, fimleikar og tennis. Í dag er golfið í 10. sæti og félagar í þýskum golfklúbbum innan þýska golfsambandsins (Der Deutsche Golf Verband (DGV) ) um 635.000.  Þetta þykir mikil framför frá því fyrir 20 árum en þá var golf 18. vinsælasta íþróttagreinin í Þýskalandi og aðeins 206.500 félagar í þýskum golfklúbbum, en golf í Þýskalandi þykir því miður enn vera forréttindaíþróttagrein hinna ríku,  líkt og víða í Mið-Evrópu, þó hægt og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2013 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LET 2013: Malene Jörgensen – (37. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2013 | 16:00

Nýju strákarnir á PGA 2013: Erik Compton – (20. grein af 26)

Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA , sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012, í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt, þ.e. þátttökurétt á PGA Tour 2013. Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 17.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1. Nú er komið að 3 strákum sem deildu 7. sætinu: Erik Compton, Brad Fritsch og Jin Park.  Búið er að kynna Jin Park og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2013 | 13:00

Steinberg ver nýju Tiger auglýsinguna

Enginn þekkir Tiger Woods eins vel og umboðsmaður hans Mark Steinberg. Steinberg hefir séð um mál Woods allt frá því Tiger gerðist atvinnumaður 1996. Hann hefir verið við hlið Tiger í öll 14 skiptin sem Tiger hefir unnið á risamóti og var til staðar fyrir hann þegar Tiger skrapaði botninn á lægsta punkti ferilsins. Nýjasta Nike auglýsingin með Tiger „Winning takes care of everything“ hefir hlotið mikla gagnrýni. Steinberg svarar þeirri gagnrýni í grein eftir Diane Brady í Business Week „Það er mjög óheppilegt það, sem tekið hefir verið úr samhengi,“ sagði Steinberg. „Í yfir 3 ár hefir fólk verið að spyrja: „Hvernig fer hann að því að verða aftur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingar dagsins: Halldór X Halldórsson – 5. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Halldór X Halldórsson, GKB. Halldór er fæddur 5. apríl 1976 og er því 37 ára í dag. Þess mætti geta að Halldór á nákvæmlega sama afmælisdag og sænski kylfingurinn Henrik Stenson, sem tryggði sér miðann sinn á the Masters s.l. helgi með frækilegri frammistöðu á Shell Houston Open. Báðir eru þeir Halldor og Henrik fæddir 5. apríl 1976 og eru því 37 ára í dag. Halldór X er frá Sauðárkróki og byrjaði í golfi 1987. Hann er í Golfklúbbi Kiðjabergs, GKB og með 2,3 í forgjöf. Halldór var mjög sigursæll í opnum mótum sumarið 2011, sigraði m.a. á Opna Carlsberg mótinu 30. júlí 2011 á Svarfhólsvelli á Selfossi (71 högg); Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2013 | 08:30

Sörenstam biður Wie afsökunar

Í maíhefti Golf Magazine segir Annika Sörenstam Michelle Wie hæfileikalausa á golfvellinum.  Wie sagði að Sörenstam hefði beðið sig afsökunar og sagt að ummæli hennar hefðu verið rifin úr samhengi. „Hún hafði samband í gær og sagði að nokkrir hlutir hefðu ekki skilað sér rétt,“ sagði Wie, sem hóf leik á Kraft Nabisco í gær á sléttu pari, 72 höggum. „Mér fannst það virkilega almennilegt að hún skyldi hafa samband. Hún afsakaði sig og það er endir máls.“ Meðal þess sem fram kom í viðtali Golf Magazine við Sörenstam voru nokkrar beittar athugasemdir um vangetu Wie á vellinum, m.a.: „Það sem ég sé nú er að hæfileikarnir sem við héldum Lesa meira