Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 20:30
GG: Ólafur og Pétur Már sigruðu í Opna vormótinu

Um 40 kylfingar tóku þátt í Opnu vormóti sem fram fór á Húsatóftavelli í dag. Heldur kalt var í veðri og vindur. Aðstæður voru því erfiðar. Aðeins 2 konur luku keppni, Gerða Hammer, GG og Rut Sigurvinsdóttir, GSE. Af þeim báðum stóð heimakonan sig betur var með 96 högg og 27 punkta). Ólafur Sigurjónsson (Zico) úr GR sigraði í höggleiknum en hann lék á 77 höggum eða sjö höggum yfir pari. Í punktakeppninni var það Pétur Már Finnson úr GR sem sigraði en hann fékk 29 punkta. Fannar Jónsson úr GG varð annar og Árni Bergur Sigurjónsson úr GKG varð þriðji. Efstu menn í höggleik: 1. Ólafur Sigurjónsson GR 77 +7 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 20:00
GS: Arnar Freyr og Svavar Geir unnu í 4. móti Egils Gullmótaraðar GS

Í dag fór fram 4. mótið í Egils Gull mótaröð GS. 87 voru skráðir í mótið og 80 luku keppni, þar af 4 konur og stóð Steinunn Jónsdóttir, GSG, sig best af þeim, bæði í höggleiks- og punktakeppninni (var á 113 höggum, alveg eins og Elísabet Böðvarsdóttir, GKG, en var betri á seinni 9) og eins var Steinunn efst í punktakeppninni með 23 punkta. Það var Arnar Freyr Jónsson, úr Golfklúbbi Neskaupsstaðar (GN) sem kom, sá og sigraði. Hann spilaði Leiruna á glæsilegum 3 undir pari, eða 69 höggum!!! Hann var á besta skorinu og í 2. sæti í höggleiknum var heimamaðurinn Sigurður Jónsson, GS, á 74 höggum, eða 5 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 19:38
GÞ: Ástríkur og Steinríkur sigruðu í Texas Scramble-inu í dag

Í dag fór fram á Þorláksvelli Opið Texas Scramble Vormót. Ágætis aðstæður voru á Þorláksvelli og dagurinn góður, því þó snjóaði til fjalla var alveg autt við ströndina. Þátttakendur voru 52 eða 26 lið. Úrslit urðu eftirfarandi: 1. sæti Ástríkur og Steinríkur (Ingvar og Svanur GÞ) 67 brúttó, forgjöf 3 = 64 betri á seinni 9 (-3) 2. sæti Stricker og Els (Jón Þorkell og Guðni Vignir GVS og GS )67 brúttó, forgjöf 3 = 64 (-2 á seinni) 3. sæti Hinir feðgarnir (Björgvin og Helgi Snær GK) 64 brúttó, forgjöf -2 = 66
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 17:00
Nýju strákarnir á PGA 2013: Billy Horschel – (21. grein af 26)

Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA, sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012 í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt þ.e. þátttökurétt á PGA Tour, 2013 Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 7.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1. Nú er komið að 3 strákum sem deildu 4. sætinu: Billy Horschel, Richard H. Lee og Kris Blanks. Byrjað verður á Billy Horschel, sem er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 15:00
Nýju stúlkurnar á LET 2013: Camilla Lennarth – (38. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Robert Rock – 6. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Robert Rock. Rock fæddist 6. apríl 1977 og er því 36 ára í dag. Sjá má nýlega grein Golf 1 um afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mike Schuchart, 6. apríl 1962 (51 árs); Tanya Dergal, 6. apríl 1984 (29 ára), Victor Riu, 6. apríl 1985 (28 ára)…. og …. Bogi Agustsson F. 6. apríl 1952 (61 árs) Dora Henriksdottir F. 6. apríl 1966 (47 ára) Árni Björn Guðjónsson F. 6. apríl 1949 (64 ára) Golf 1 óskar öllum kylfingum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 11:00
Caroline verður kaddý hjá Rory á par-3 holu mótinu á Masters

Við munum sjá Caroline Wozniacki í einum af þessum herfilega ólekkeru hvítu kaddýsamfestingum á Masters 2013, en hún hefir samþykkt að vera kylfuberi kæresta síns Rory McIlroy á par-3 holu mótinu, sem er undanfari aðalmótsins. Það er ekki heillavænlegt fyrir Rory að reyna að heilla hana Caroline sína með sigri í par-3 mótinu, því það hefir aldrei gerst að sigurvegari þess móts hafi síðan unnið aðalmótið. Þrátt fyrir slæmt gengi á undanförnum mánuðum er Rory bara hress. Hann var á 67 höggum á Texas Valero Open í gær og skaust upp um 40 sæti á skortöflunni í 5. sætið. Síðan sagði hann á blaðamannafundi í Texas um þátttöku sína í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 09:45
Bandaríska háskólagolfið: Berglind, Sunna, Hrafn, Theodór og Ari hefja leik í mótum í dag

Berglind Björnsdóttir, GR og golflið UNCG og Sunna Víðisdóttir, GR og golflið Elon taka þátt í Lady Seahawk Classic mótinu sem hefst í Wilmington, Norður-Karólínu í dag. Þetta er tveggja daga mót. Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og golflið Faulkner háskólans og Theodór Karlsson, klúbbmeistari GKJ 2012 og Ari Magnússon, GKG og golflið University of Arkansas at Monticello hefja leik í dag á Natural State Golf Classic mótinu, sem fram fer í Heber Springs, Arkansas. Þetta er 2 daga mót. Golf 1 mun verða með úrslit úr mótunum eins skjótt og mögulegt er en því miður er ekki hægt að vera með linka inn á mótin til að fylgjast með gangi mála.
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 09:00
GKG: Ragnar Már tók þátt í Trophée Michel Carlhian
Ragnar Már Garðarsson, GKG, tók þátt í sterku unglingamóti í Frakklandi, dagana 27.-31. mars s.l. Þetta er mót sem upp á ensku nefnist French International Boys´Amateur Championship; og á frönsku Trophée Michel Carlhian. Spilað var á Golf du Touquet golfvellinum í norð-vesturhluta Frakklands. Þátttakendur voru 108, fæddir 1995 eða yngri. Þetta var 5 daga mót og spilaður höggleikur fyrstu 2 dagana og komust 32 efstu áfram í holukeppnishluta mótsins, sem fram fór næstu 3 dagana. Því miður var Ragnar Már ekki meðal efstu 32 – hann landaði 83. sætinu á samtals 161 höggi (82 79) og komst því ekki áfram í holukeppnishlutann. Eftir höggleikshlutann var Svíinn Adam Eineving í efsta sæti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2013 | 08:30
220 skráðir í 3 opin mót í dag

Í dag hafa kylfingar úr 3 opnum golfmótum að velja: 1. Fjórða mótið í Egils Gullmótaröð GS. 82 eru skráðir í mótið, þar af 5 konur. 2. Opna Vormót 1 hjá GG. Í mótið eru skráðir 78, þar af 5 konur. 3. Opið Vormót hjá GÞ. Í það eru skráð 30 lið, m.a. Gög og Gokke, þ.e. 60 kylfingar, en leikfyrirkomulag er Texas Scramble. Auk þess er haldið tuttugasta vetrarmótið hjá GKJ, en mótið er ekki opið heldur innanfélagsmót.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

