
Afmæliskylfingar dagsins: Halldór X Halldórsson – 5. apríl 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Halldór X Halldórsson, GKB. Halldór er fæddur 5. apríl 1976 og er því 37 ára í dag. Þess mætti geta að Halldór á nákvæmlega sama afmælisdag og sænski kylfingurinn Henrik Stenson, sem tryggði sér miðann sinn á the Masters s.l. helgi með frækilegri frammistöðu á Shell Houston Open. Báðir eru þeir Halldor og Henrik fæddir 5. apríl 1976 og eru því 37 ára í dag.
Halldór X er frá Sauðárkróki og byrjaði í golfi 1987. Hann er í Golfklúbbi Kiðjabergs, GKB og með 2,3 í forgjöf. Halldór var mjög sigursæll í opnum mótum sumarið 2011, sigraði m.a. á Opna Carlsberg mótinu 30. júlí 2011 á Svarfhólsvelli á Selfossi (71 högg); Opna Golfbúðarmótinu á Svarfhólsvelli á Selfossi, 27. ágúst 2011 (71 högg) og Opna Vetrarmótinu í Leirunni 19. nóvember 2011 (70 högg) og þá er aðeins fátt eitt talið af afrekum Halldórs. Í fyrra 2012 spilaði Halldór á Eimskipsmótaröðinni með góðum árangri. Besta skor hans er 69 í Leirunni.
Halldór á eina dóttur, Guðrúnu Ernu, 10 ára, sem er að byrja í golfi.
Komast má á Facebook síðu Halldórs X til þess að óska afmæliskylfingnum til hamingju með daginn hér fyrir neðan:
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Lady Margaret Rachel Scott, f. 5. april 1874 – d. 27. janúar 1938); Bob Burns, 5. apríl 1968; Henrik Stenson, 5. apríl 1976 (36 ára) Brendan Steele, 5. apríl 1983 (29 ára) – leiddi m.a. á PGA Championship 2011 fyrir lokadaginn…. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- maí. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2022
- maí. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Jóhannsson og Mike Souchak – 10. maí 2022
- maí. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir – 9. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jens Gud ———-– 8. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 01:00 PGA: Keegan Bradley efstur f. lokahring Wells Fargo
- maí. 8. 2022 | 00:01 LET: Ana Pelaez í forystu f. lokahring Madrid Open
- maí. 7. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (19/2022)
- maí. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Brenden Pappas – 7. maí 2022
- maí. 7. 2022 | 12:30 Norman neitað um undanþágu til að spila á Opna breska
- maí. 7. 2022 | 06:45 PGA: Day leiðir e. 2. dag Wells Fargo
- maí. 7. 2022 | 06:00 LET: Koivisto efst e. 2. dag Madrid Open
- maí. 6. 2022 | 23:00 NGL: Bjarki bestur íslensku kylfinganna á Barncancerfonden Open
- maí. 6. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Long í forystu e. 2. dag á The Belfry
- maí. 6. 2022 | 18:00 Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur Kristins íþróttakona ársins hjá EKU
- maí. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Dean Larsson – 6. maí 2022