Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 19:30
Valero Texas Open í beinni

Þá er komið að úrslita- og lokahringnum í Valero Texas Open. Spilað er á TPC San Antonio, í Texas. Billy Horschel leiðir en skammt undan eru menn á borð við fv. nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy og Jim Furyk. Æsispennandi golfsunnudagskvöld framundan. Bein útsending hefst kl. 20:00 Til þess að sjá lokahringinn á Valero Texas Open í beinni SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 18:00
Nýju strákarnir á PGA 2013: Richard H. Lee – (22. grein af 26)

Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA, sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012 í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt þ.e. þátttökurétt á PGA Tour, 2013 Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 7.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1. Nú er komið að 3 strákum sem deildu 4. sætinu: Billy Horschel, Richard H. Lee og Kris Blanks. Byrjað var með kynningu á Billy Horschel, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 16:00
Nýju stúlkurnar á LET 2013: Xi Yu Lin – (39. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 14:00
Korda á stuðning foreldra sinna

Hin bandarísk/tékkneska Jessica Korda myndi taka stórt skref úr skugga hins fræga tenniskappa, föður síns, Petr Korda sigri hún í kvöld á Kraft Nabisco risamótinu. Sem stendur deilir hún 3. sætinu ásamt nokkrum frábærum kvenkylfingum m.a. Suzann Pettersen. Hún þiggur ráð foreldra sinna sem bæði kepptu í tennis. Petr, pabbi hennar sagði m.a á blaðamannafundi: „Regína (mamma Jessicu) og ég munum gefa henni góð ráð, sem kunna að koma að notum. Við höfum bæði verið í þessum sporum og vitum hvernig stressið getur farið með mann.“ Petr og Regína Korda byrjuðu að deita þegar bæði kepptu fyrir Tékkóslóvakíu, meðan kommúnistar voru enn við völd í landinu. Þau eru bæði grönn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Suzann Pettersen – 7. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Suzann Pettersen, en hún er fædd í Osló 7. apríl 1981 og því 32 ára í dag. Suzann er nr. 3 á Rolex-heimslista kvenna og þekktust fyrir að vera sá kvenkylfingur á LPGA, sem stundar mestu líkamsræktina. Suzann gerðist atvinnumaður í golfi árið 2000 og spilar í dag bæði á LPGA og LET. Hún hefir á ferli sínum unnið 17 titla þ.e.: 10 á LPGA, 6 á LET og síðan vann hún óopinbert mót með Natalie Gulbis og Christie Kerr, Wendy´s 3 Tour Challenge árið 2009. Suzann hefir 6 sinnum (2002, 2003, 2005, 2007, 2009 og 2011) tekið þátt í Solheim Cup liði Evrópu og var lykilkona Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 10:15
GKB 20 ára

Afmælishóf var haldið í golfskálanum að Kiðjabergi í gær, 6. apríl 2013, í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá stofnun Golfkúbbsins Kiðjabergs. Tæplega 100 gestir mættu til veislu og voru klúbbnum færðar veglegar gjafir. Margir af stofnfélögum klúbbsins mættu til að fagna þessum merku tímamótum. Jóhann Friðbjörnsson, formaður og framkvæmdastjóri GKB, flutti ræðu og fór m.a.yfir sögu klúbbsins. Karlakór Hrunamanna kom í heimsókn og tók lagið við góðar undirtektir gesta. Í ræðu sinn í dag sagði Jóhann formaður m.a. að félagafjöldi í Golfklúbbi Kiðjabergs væri nú rúmlega 400 talsins og hefði því tífaldast frá stofnum hans árið 1993. Stefnan er sett á að fjölga félögum umtalsvert á næstu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 08:30
Bestu höggin á Masters (1. af 5)

The Masters 2013 hefst í næstu viku og því kominn sá tími þegar skyggnst er um öxl og afrek fyrri Masters móta rifjuð upp. Þau eru fá höggin á Masters risamótinu sem jafnast á við vipp Tiger Woods við 16. flöt Augusta National 2005. Sjá má myndskeið af þessu ógleymanlega höggi með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 08:00
Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State luku leik í 2. sæti

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2012, Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og golflið Texas State léku nú í vikunni á Challenge mótinu í Onion Creek, í Austin, Texas. Mótið fór fram dagana 1.-2. apríl 2013 (þ.e. s.l. mánudag/þriðjudag – Einhverra hluta vegna fórst fyrir að birta úrslitin fyrr hér á Golf1.is og er beðist afsökunar á því). Þátttakendur vou 68 frá 13 háskólum. Valdís Þóra lauk leik T-28, þ.e. jöfn 3 öðrum kylfingum í 28. sæti í einstaklingskeppninni. Valdís Þóra lék á samtals 15 yfir pari, 225 höggum (77 74 74) og var á 4. besta skori í liði Texas State, sem hafnaði í 2. sæti í liðakeppninni. Skor Valdísar Þóru taldi því Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 04:00
LPGA: Park efst á Kraft Nabisco

Það er Inbee Park frá Suður-Kóreu sem heldur forystu sinni frá því í gær á Kraft Nabisco risamóti kvenna. Hún er samtals búin að spila á 12 undir pari, 204 höggum (70 67 67) og hefir 3 högga forystu á þá sem næst kemur. Í 2. sæti er hin bandarísk/mexíkanska Lizette Salas, sem er á samtals 9 undir pari, 207 höggum (70 68 69). Þriðja sætinu deila síðan afmæliskylfingur dagsins, „norska frænka okkar“ Suzann Pettersen, Pornanong Phattlum, Jessica Korda, Karine Icher, Karrie Webb og Angela Stanford. Allar hafa þær leikið á samtals 6 undir pari, 210 höggum. Níunda sætinu deila Caroline Hedwall og Paula Creamer á samtals 5 undir pari, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2013 | 03:30
PGA: Horschel enn efstur

Fyrir lokahring Texas Valero Open er Billy Horschel enn efstur, en hann er búinn að leiða alla keppnisdagana og spennandi hvort honum takist að klára dæmið í kvöld – en hann er einn af „nýju strákunum“ á PGA Tour, sem vann sér inn kortið sitt á lokaúrtökumóti Q-school LPGA í desember á s.l. ári. Billy er samtals búinn að spila á 10 undir pari, 206 höggum (68 68 70). Öðru sætinu deila Jim Furyk og Charley Hoffman, 2 höggum á eftir Horschel, á samtals 8 undir pari, 208 höggum hvor; Furyk (69 70 69) og Hoffman (71 67 70). Í 4. sæti eru síðan 3 kylfingar: Rory McIlroy, Bob Estes Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

