Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 20:00

Viðtalið: Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri GL.

Viðtalið í kvöld er við nýráðinn framkvæmdastjóra Golfklúbbsins Leynis á Akranesi: Fullt nafn:  Guðmundur Sigvaldason. Klúbbur:  GL. Hvar og hvenær fæddistu?  Á Akranesi, 11.ágúst 1971. Hvar ertu alinn upp?   Á Akranesi. Hvenær byrjaðir þú í golfi?   Ég hef verið félagi í GL frá árinu 2006 en hafði prófað að spila eitt eða tvö sumur sem barn/unglingur og fékk einhverra hluta vegna ekki áhugan þá sem til þurfti. Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi?  Félagsskapurinn og meiri frítími aflögu. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf?   Ég er giftur Jónu Líndal hársnyrtimeistara og á tvö börn, Leó Snæ 15 ára og Ólöf Rún 12 ára.  Konan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 18:30

GK: Vinna hafin við nýja 13. holu

Fimmtudaginn 4. apríl s.l. hófst vinna við mótun á nýju 13. holunni á Hvaleyrinni, golfvelli Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði.  Holan mun liggja syðst á umráðasvæði golfklúbbsins Keilis á Hvaleyri.  Brautin mun liggja meðfram Miklaholti, frá vestri til austurs, að bátaskýlum við Hvaleyrarlón. Holan á að vera stutt par-4 hola, sem á að leyfa högglengri kylfingum að taka áhættu, og leika á flöt í upphafshöggi.  Markmiðið er þó að gera mönnum lífið leitt sem áhættuna taka, sé upphafshöggið ekki að lenda á réttum stað.  Fyrir meðal kylfingin verður opin leið að flöt, en hættur sem taka á móti séu menn illa staðsettir.  Holan á því að vera hola þar sem menn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LET 2013: Louise Larsson – (40. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 16:00

Nýju strákarnir á PGA 2013: Kris Blanks – (23. grein af 26)

Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA, sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012 í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt þ.e. þátttökurétt á PGA Tour, 2013 Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 7.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1. Nú er komið að 3 strákum sem deildu 4. sætinu: Billy Horschel, Richard H. Lee og Kris Blanks.  Tveir fyrrnefndu hafa þegar verið kynntir og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 14:00

Bestu höggin á Masters (2. af 5)

The Masters 2013 hefst í þessari viku og því kominn sá tími þegar skyggnst er um öxl og afrek fyrri Masters móta rifjuð upp. Þau eru fá höggin á Masters risamótinu sem jafnast á við trjáhögg Phil Mickelson á 13. braut á Masters 2010.  Hann átti val um að vera djarfur eða varfærinn, en seinni kosturinn er yfirleitt sá ákjósanlegasti á risamótunum, sérstaklega the Masters, sem þykir þolinmæðismót frá upphafi til enda. Höggið er allt annað en varfærið… og það tókst…..  og er því eitt af eftirminnilegri höggum the Masters. Til þess að sjá 2. högg Phil Mickelson á 13. holu Augusta National á the Masters 2010 SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Margrét Sigmundsdóttir – 8. apríl 2013

Það er Margrét Sigmundsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Margrét er fædd 8. apríl 1964 og er félagi í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Margrét hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum með góðum árangri t.a.m. Art Deco 2011, þar sem hún var meðal efstu á 31 punkti hún var með 28 pkt. í Nurse Open 2011, en 9. júní 2006 sigraði hún það mót, sem þá var haldið á Bakkakotsvelli. Eins varð  Margrét fyrst kvenna til þess að vinna Rauða Jakkann eftirsótta á Haukamótinu í ágúst 2009, en metþátttaka var í mótinu eða um 119 keppendur. Margrét varð í 1. sæti í punktakeppninni með 42 glæsilega punkta. Margrét er gift Helga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 10:00

Vala Torfadóttir fór holu í höggi!!!

Vala Torfadóttir, GO og GKB,  fór holu í höggi á 13. flöt Strandarvallar á Hellu, nú á Páskunum.  Golf 1 spurði Völu nánar út í draumahöggið, en ítarlegra viðtal birtist við þennan nýjasta félaga Einherjaklúbbsins hér á Golf 1 á morgun. Nú fórstu holu í höggi á Strandarvelli, mannstu á hvaða degi það var og af hvaða tilefni þú varst að spila völlinn (var mót eða bara verið að spila ánægjunnar vegna?) Þetta var á Skírdag 28.mars sl., ég var nýkomin í páskafrí og ætlaði svo sannarlega að njóta þess að spila í góða veðrinu á Íslandi með vinum mínum. Hverjir voru í holli með þér? Eiginmaðurinn og vinir okkar Ásthildur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 08:00

GKJ: Þórhallur og Helgi sigruðu í Vetrarmóti 20

Þó Esjan væri hvít niður í fjallsrætur, stífur vindur og ferkar svalt í morgunsárið, laugardaginn 6. apríl 2013,  létu 47 kylfingar það ekki hafa áhrif á sig þegar spilað var við fínar aðstæður í vetrarmóti 20 á Hlíðarvelli.  Mótið var innanfélagsmót í GKJ. Höggleikur: 1. Þórhallur Kristvinsson 66 högg 2. Lárus Sigvaldason 66 högg 3. Guðjón Þorvaldsson 67 högg Punktakeppni: 1. Helgi Gunnarsson 30 punktar 2. Kristinn G Ólafsson 25 punktar 3. Birgir Sigurjónsson 24 Næsta laugardag, 13. apríl 2013, verður opið mót og  má skrá sig í það hér á GOLF.IS


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 04:30

LPGA: Inbee vann á Kraft Nabisco

Það var nokkuð öruggur sigurinn hjá Inbee Park frá Suður-Kóreu á 1. risamótinu í kvennagolfinu í ár: Kraft Nabisco Championship. Inbee var á samtals 15 undir pari, 273 höggum (70 67 67 69) og fékk $ 300.000 fyrir sigurinn!  Það var því Inbee sem stökk í Poppy Pond árið 2013, en hefð er fyrir því að sigurvegarinn taki dýfu í tjörninni á Rancho Mirage að sigri loknum. Með sigrinum fer Inbee í 2. sæti Rolex-heimslistans. Í 2. sæti á Kraft Nabisco varð landa Park, So Yeon Ryu á samtals 11 höggum undir pari, eða heilum 4 höggum á eftir Park.  Ryu lék á samtals 277 höggum (73 71 68 65). Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2013 | 04:00

PGA: Laird sigraði – Rory í 2. sæti

Texas Valero Open lauk í gær með sigri Skotans Martin Laird.  Laird lék samtals á 14 undir pari, 274 höggum (70 71 70 63). Hann setti nýtt vallarmet með glæsilegum lokahring sínum upp á 63 högg, þar sem hann fékk 9 fugla og 9 pör! Laird átti 2 högg á nr. 2 á heimslistanum, Rory McIlroy, sem hafnaði í 2. sæti á 12 undir pari, 276 höggum (72 67 71 66). Í þriðja sæti urðu forystumaður fyrstu daganna Billy Horschel, Jim Furyk og Charley Hoffman allir á 11 undir pari, 277 höggum, hver. Einn í 6. sæti varð svo KJ Choi á samtals 9 undir pari. Til þess að sjá Lesa meira