Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Þórðarson – 10. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Þórður Þórðarson. Hann er fæddur 10. apríl 1972 og á 41 árs afmæli í dag!  Þórður er knattspyrnuþjálfari ÍA á Akranesi og í Golfklúbbnum Leyni. Hann spilar af og til golf milli þess sem hann þjálfar hjá ÍA.  Þórður er kvæntur Íris Björgu Þorvarðardóttur og á 3 börn: Þórð, Stefán Teit og Katrínu. Hér má komast á heimasíðu afmæliskylfingsins: Þórður Þórðarson Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Þórunn Högna F. 10. apríl 1975 (38 ára) Elín Illugadóttir F. 10. apríl 1967 (46 ára) Sverrir Haraldsson F. 10. apríl 1951 (62 ára) Mjallarföt Íslensk Hönnun F. 10. apríl 1992 (21 árs) Grindavíkurbær – Góður Bær F. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2013 | 10:30

Bubba felldi tár – myndskeið

Bubba Watson sigurvegari the Masters 2012 er tilfinningaríkur kylfingur í meira lagi. Í gær á blaðamannafundi fyrir the Masters risamótið, sem hefst á Augusta National á morgun,  gat hann ekki haldið aftur af tárunum þegar hann rifjaði upp sigurinn á the Masters í fyrra. Reyndar rúlluðu tárin svo ört niður kinnarnar að hann varð að gera hlé til þess að ná stjórn á sjálfum sér. Táraflóðið hófst þegar Bubba var spurður að því hvað hann hefði gert við græna jakkann. Best er að sjá bara myndskeiðið af Bubba á blaðamannafundi fyrir Masters 2013  SMELLIÐ HÉR:  Mönnum er eflaust minnisstætt að Bubba grét eftir sigurinn á the Masters 2012 en sjá má Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2013 | 09:30

GSÍ: Fjölsótt héraðsdómaranámskeið

Í gær, 9. apríl 2013,  var haldinn 1. fyrirlestur af fimm 3 tíma fyrirlestrum, sem eru til undirbúnings prófs héraðsdómara í golfíþróttinni. Fyrirlesarar voru Hörður Geirsson, alþjóðadómari og Sigurður Geirsson, alþjóðadómari og formaður dómaranefndar GSÍ. Farið var ítarlega í 8 valdar golfreglur og þær skýrðar m.a. með skilgreiningum á hugtökum sem þær byggja á  og með myndskeiðum og þ.a.l. raunhæfum tilvikum beitingar þeirra. Fundurinn var fjölsóttur af á 3. tug héraðsdómarakandídata, sem hyggjast þreyta próf, sem haldin verða 20. og  30 apríl n.k. Fyrsti fyrirlesturinn átti að standa frá kl. 19:00-22:00, en margar fyrirspurnir og líflegar umræður um hinar ýmsu golfreglur og einstaka þætti þeirra urðu til þess að fyrsta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2013 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og The Royals í 7. sæti – Stefanía Kristín og Pfeiffer í 15. sæti á Agnes McAmis

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og golflið Queens, „The Royals“ og klúbbmeistari GA 2012 Stefanía Kristín Valgeirsdóttir og  golflið Pfeiffer „The Falcons“ luku í gær leik á Agnes McAmis Memorial mótinu, en það fór fram í Greenville, Tennessee. Mótið var tveggja daga, haldið 8.-9. apríl s.l. og þátttakendur voru 96 frá 17 háskólum. Íris Katla lék hringina 2 á mótinu á samtals 17 yfir pari, 161 höggi (81 80) og varð í 27. sæti í einstaklingskeppninni. Í liðakeppninni urðu „The Royals“ í 7. sæti og taldi skor Írísar Kötlu. Stefanía Kristín var á samtals 23 yfir pari, 167 höggum (82 85) og varð í 50. sæti í einstaklingskeppninni. Í liðakeppninni urðu „The Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2013 | 08:30

Bandaríska háskólagolfið: Axel og félagar luku leik í 1. sæti á Old Waverly

Axel Bóasson, GK,  og golflið Mississippi State tóku þátt í Old Waverly Collegiate Championship, en mótið fór fram á West Point í Mississippi dagana 8.-9. apríl og lauk því í gær. Þátttakendur voru 78 frá 14 háskólum. Skemmst er frá því að segja að golflið Mississippi State varð í 1. sæti í mótinu, en þetta er í 4. sinn frá því í október á síðasta ári sem golflið Mississippi State hafnar í 1. sæti. Axel var á 2. besta skorinu og taldi það því í glæsiárangri liðsins! Axel varð í 10. sæti í einstaklingskeppninni; lék á samtals 217 höggum (72 70 75). Næsta mót Axels og félaga er SEC, sem fram fer Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2013 | 08:00

Frábært vídeó með Eygló Myrru

Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO er við nám og leikur með golfliði University of San Francisco (USF). Hún útskrifast 18. maí n.k. frá USF og er að taka þátt í síðustu mótum sínum í bandaríska háskólagolfinu nú 15.-17. apríl n.k. þegar hún leikur í West Coast Conference Championship í Gold Mountain golfklúbbnum í Bremerton í Washington ríki. Eygló lék nú nýlega í frábæru kynningarmyndbandi fyrir golfdeild háskóla síns og má sjá það með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 9. 2013 | 19:00

Viðtalið: Vala Torfadóttir, GO og GKB.

Hún Vala Torfadóttir, GO og GKB, var í golfi ásamt eiginmanni sínum, Ragnari Gíslasyni og vinafólki, Ásthildi Ragnarsdóttur og Jóni Rúnari Halldórssyni, Skírdag, 28. mars 2013, þegar hún sló draumahöggið á par-3 13. braut Strandarvallar á Hellu. Þetta er í fyrsta sinn sem Vala nær að fara holu í höggi og við höggið góða notaði hún 3-tré vegna mikils mótsvinds. Viðtalið í kvöld er við nýjasta Einherja Íslands: Fullt nafn: Valgerður Torfadóttir. Klúbbur:  Oddur og Kiðjaberg. Hvar og hvenær fæddistu? Í Reykjavík,  7. desember 1955. Hvar ertu alin upp?  Í Vogahverfinu í Reykjavík. Í hvaða starfi ertu? Ég er hönnuður og eigandi verslunarinnar Spaksmannsspjarir. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 9. 2013 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA 2013: Steve LeBrun – (24. grein af 26)

Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA, sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012 í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt þ.e. þátttökurétt á PGA Tour, 2013 Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 4.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1. Nú er komið að 2 strákum sem deildu 2. sætinu: Ross Fisher og Steve LeBrun  Byrjað verður á Steve. Steve LeBrun fæddist í West Palm Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 9. 2013 | 17:00

Ráshópar á Masters 2013

Búið er að tilkynna um ráshópa á fyrstu tveimur dögum  The Masters risamótsins og þ.á.m. eru ýmis spennandi holl. Fyrst ber e.t.v. að nefna að með Tiger Woods í holli eru Luke Donald og Scott Piercy en þeir fara út kl. 10:45 á staðartíma (kl. 14:45 á okkar tíma hér á Íslandi) á fimmtudag og kl. 1:41 á staðartíma (kl. 17:41 á okkar tíma hér á Íslandi) á föstudag. Phil Mickelson spilar með nr. 2 frá 2012 Louis Oosthuizen og fyrrum risamótssigurvegaranum Martin Kaymer kl. 1:30 á fimmtudag (kl. 17;30 á okkar tíma) og kl. 10:23 (kl. 14:23 á okkar tíma) á föstudag. Nr. 2 á heimslistanum Rory McIlroy, sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 9. 2013 | 16:00

Nýju stúlkurnar á LET 2013: Emily Taylor – (41. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Lesa meira