Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 14:00
Bestu höggin á Masters (5. af 5.)

The Masters (aðalmótið) hófst í dag. Hér verður því snarlega lokið við upprifjun á einhverjum fallegust höggum í sögu mótsins. Eitt er það högg sem ávallt mun standa upp úr en það er vipp Larry Mize á the Masters 1987. Höggið varð til þess að Greg Norman varð af enn einum sigrinum á Masters. Sjá má undravipp Mize með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Ágúst Elí Björgvinsson. Ágúst Elí er fæddur 11. apríl 1995 og því 17 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og mikill FH-ingur s.s. hann á ættir til og er jafnvel talað um hann sem framtíðar landsliðs-markvörð okkar í handbolta. Auk krefjandi æfinga í handboltanum hefir Ágúst Elí staðið sig vel í ýmsum opnum mótum í golfinu; var m.a. í vinningssæti á Gamlársdagspúttmóti Hraunkots 31. desember 2008 (3. sæti); 1. sæti á Unglingamótaröð GSÍ , 21. júní 2009; í vinningssæti á Opna Teigsmótinu í Þorlákshafnarvelli 8. maí 2010 (3. sæti + nándarverðlaun á 3. braut); 2. sæti í drengjaflokk (15-16 ára) á Arionbankamótaröð unglinga í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 11:00
Alan Dunbar á Masters

Meðal áhugamannanna 6 sem taka þátt á the Masters er sigurvegari British Amateur Open, Alan Dunbar. Það er næsta öruggt að hann muni gerast atvinnumaður nú á næstnni og verður Ballantine´s Championship í Suður-Kóreu fyrsta mótið sem hann spilar í sem atvinnumaður. Honum hefir þegar verið boðið að taka þátt í Volvo China Open og hann hefir þegið boð golfgoðsagnarinnar Jack Nicklaus um að spila í Memorial móti hans, sem hefst 30. maí n.k. Aðspurður um hvert markmiðið væri á Masters sagði Dunbar: „Bara að spila vel.“ Dunbar mætti snemma á Augusta National á sunnudaginn og keyrði viljandi hægt niður Magnolia Lane. „Ég kom hingað á sunnudaginn og keyrði viljandi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 10:00
5 kylfingar sem unnu óvænt á Masters

Allir búast við að Tiger Woods sigri á Masters mótinu, sem hefst í dag. Einu vandræðin við allar svona spár er að þær standast ekki alltaf, því stundum eru það þeir sem enginn á von á að vinni, sem stendur uppi sem sigurvegari. Það þættu heldur betur fréttir til næsta bæjar ef Alan Weaver, Steven Fox eða hinn 14 ára kínverski strákur Guan Tianlang stæðu uppi sem sigurvegarar á mótinu í ár. Hér verða rifjuð upp 5 tilvik um óvænta sigurveagara á Masters: 5. Art Wall Á árunum 1958-1966 voru Arnold Palmer, Jack Nicklaus og Gary Palmer allsráðandi og sigruðu milli sín á öllum Masters mótum þessara ára nema 1… Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 09:00
Evróputúrinn: Siem kylfingur marsmánaðar

Marcel Siem var valinn kylfingur mars mánaðar á Evróputúrnum. Aðeins 0.03 stigum munaði að hann kæmist á the Masters eftir glæstan sigur á Trophée Hassan II í Marokkó fyrir 2 vikum og næði 50. sætinu á heimslistanum. Með útnefningunni hlýtur Siem tækifæri á að verða valinn sem kylfingur ársins í loks árs, en þá heiðursnafnbót hlaut Rory McIlroy á síðasta ári. Þetta er í fyrsta skipti sem hinn 32 ára kylfingur frá Mettmann í Þýskalandi (Siem) hlýtur útnefninguna um kylfing mánaðarins á Evrópumótaröðinni. Og Siem var stoltur: „Ég er mjög ánægður að hafa verið valinn. Það voru náttúrulega stór vonbrigði að ég hafi þrátt fyrir sigur minn í Marokko ekki Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 08:00
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór, Pétur og félagar í 12. sæti á Wallace Jones Inv.
Andri Þór Björnsson, GR og Pétur Pétursson, GR og „Geaux Colonels“ golflið Nicholls State tóku þátt í ULM Wallace Jones Invitational dagana 8.-9. apríl s.l. Leikið var á Calvert Crossing golfvellinu í Southern Pines Golf Club í Calhoun, Louisiana. Þátttakendur voru 80 frá 14 háskólum. Andri Þór lauk keppni á samtals 232 höggum (80 75 77) og var á besta skori í liði sínu Geaux Colonels sem höfnuði í 12. sæti í liðakeppninni. Andri Þór varð í 27. sætinu í einstaklingskeppninni. Pétur Pétursson tók einnig þátt og var á samtals 252 höggum (88 76 88) og deildi 75. sætinu í einstaklingskeppninni. Hann var á 4. besta skori liðsins og taldi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 07:00
Ted Potter Jr. vann par-3 mótið

Það var Bandaríkjamaðurinn Ted Potter Jr. sem sigraði í par-3 keppninni, sem fram fór í gær á Augusta National, en mótið hefir verið undanfari aðalmótsins og leikið deginum fyrir það, allt frá árinu 1960. Tveimur kylfingum tókst jafnframt að fara holu í höggi: Ben Crenshaw á 7. holu og Nick Watney á 9. holu. Það voru 5 kylfingar sem voru efstir og jafnir á par-3 mótinu: Ted Potter Jr., Ernie Els, Matt Kuchar, Nick Watney og Phil Mickelson, allir á 4 undir pari, 23 höggum og því varð að fara fram bráðabani, þar sem Potter hafði sigur á 2. holu í viðureign við Kuch og Phil, en Ernie Els og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2013 | 14:00
Bestu höggin á Masters (4. af 5)

The Masters hefst á morgun. Hér fer enn eitt höggið í upprifjun á einhverjum bestu höggum sem slegin hafa verið á the Masters risamótinu í gegnum tíðina. Mótið á morgun er það 77. og því mörg glæsihöggin, sem slegin hafa verið, en það sést best þegar saga mótsins í heild er rifjuð upp. Eitt ótrúlegasta högg, sem sést hefur er högg Bubba Watson á 2. holu umspils við Louis Oosthuizen, um græna jakkann í fyrra, 2012. Það þarf gríðarlegan kraft til þess að geta náð fram slíku sveigjuhöggi sem Bubba sló og óvíst hvort rétthentur kylfingur hefði getað náð því. Hér er vert að rifja upp glæsihögg Bubba, sem slegið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2013 | 13:00
Bubba með einfaldan mat

Bubba Watson hélt sér við matarhefðir í Suður-Bandaríkjunum, þegar hann bauð til Masters Champion Dinner í gær, s.s. hefð er fyrir að sigurvegarar fyrri árs á the The Masters gera. Og hann hélt matnum einföldum. Meðan að margir sigurvegarar hafa lagt sig í líma við að vera með marga smáa forrétti, þrjár tegundir af salötum, bouche amuse og Guð má vita hvað, þá réði einfaldleikinn lögum og lofum…. sem mörgum fannst bara alls ekki slæmt…. Á matseðlinum hjá Bubba var Ceasar salat í forrétt. Í aðalrétt voru grillaðar kjúklingabringur með kartöflumús, grænum baunum, maís og makkarónum í osti (ens. Macaroni and Cheese) og kornbrauði. Í desert var confetti kaka með Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2013 | 12:30
Hvernig Elin og Chris Cline kynntust

Þegar Tiger fór að slá sig upp með skíðadrottningunni Lindsey Vonn, var golffjölmiðlum lengi búið að gruna að eitthvað væri í gangi milli þeirra, sem flestum fannst hljóta nokkurrar staðfestingar í því að einkaþota kappans var send frá Bandaríkjunum eftir Vonn eftir að hún datt á skíðum í Schladmig, Austurríki. Síðan var tilkynnt um sambandið á öllum helstu samskiptamiðlum með myndum og tilheyrandi. Miklu minna fór fyrir fréttum af því að fyrrverandi eiginkona Tiger, Elín Nordegren væri byrjuð með billjónamæringnum Chris Cline og fráleitt að það væri auglýst eins og samband Tiger. Svarið við hvernig Elín og Chris Cline kynntust er sáraeinfalt. Elín byggði sér $12 milljón dollara glæsihýsi beint Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

