Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2013 | 15:30
Bandaríska háskólagolfið: Hrafn í 2. sæti á SSAC Championship eftir 1. dag
Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE, og „The Eagles“ golflið Faulkner háskólans taka sem stendur þátt í svæðamótinu, Southern States Athletic Conference (skammst. SSAC) Championships, sem fram fer í Lagoon Park, Montgomery, Alabama, dagana 15.-17. apríl. Þátttakendur eru 54 frá 11 háskólum. Eftir fyrsta dag keppninnar er Hrafn í 2. sæti sem hann deilir með liðsfélaga sínum Daníel Jansen og efsta mann þess liðs sem er í efsta sæti í liðakeppninni, Matt Emery frá Lee University. Hrafn lék fyrsta hringinn í gær á 3 undir pari, 69 glæsihöggum og er aðeins 3 höggum á eftir þeim sem er á besta skorinu eftir fyrsta dag, Chase Miller frá College of Coastal Georgia, en Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2013 | 15:00
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og ETSU í 2. sæti á Wofford Inv. eftir 1. dag

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og the golflið East Tennessee State University, ETSU Bucs hófu leik í dag á Wofford Coca-Cola Invitational í Spartansburg, Suður-Karólínu. Mótið er tveggja daga frá 15.-16. apríl og þátttakendur eru 88 frá 16 háskólum. Golflið ETSU hefir unnið síðustu Coca-Cola Invitational mót á s.l. 2 árum. Guðmundur Ágúst lék 36 holurnar fyrri daginn á samtals 147 höggum (74 73) og er T-41 í einstaklingskeppninni, þ.e. jafn öðrum í 41. sæti. Hann er á lakasta skori af 5 liðsmönnum ETSU Bucs og telur skor hans ekki í glæsiárangri liðsins, en það er í 2. sæti í liðakeppninni. Þetta er síðasta mót Guðmundar Ágústs og ETSU fyrir svæðamótið Atlantic Sun Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2013 | 12:45
Afmæliskylfingur dagsins: Charlotta Sörenstam – 16. apríl 2013

Það er Charlotta Sörenstam sem er afmæliskylfingur dagsins. Charlotta er systir hinnar frægu Anniku Sörenstam, sem var einráð í kvennagolfinu um langt skeið sem nr.1 á Rolex-heimslista kvenna. Charlotta er fædd 16. apríl 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Charlotta starfar sem golfkennari við golfskóla systur sinnar og hefir m.a. verið með golfskýringaþætti á ýmsum golfmiðlum. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mark Haastrup, 16. apríl 1984 (29 ára); Michael Thompson, 16. apríl 1985 (28 ára – hann leiddi m.a. fyrir lokadag McGladreys mótsins í október 2011) …. og …. Bjössi Garðars, GS F. 16. apríl 1962 Oli Magnusson F. 16. apríl 1970 (42 ára) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2013 | 09:00
Guan spilar í Zurich Classic

Kínverski 14 ára strákurinn Guan Tianlang, sem var sá yngsti til að spila í Masters risamótnu og sá yngsti til þess að komast í gegnum niðurskurð hefir þegið boð styrktaraðila um að spila í Zurich Classic í New Orleans í næstu viku, sögðu skipuleggjendur mótsins. Guan komst á Masters eftir að hann sigraði í Asia Pacific Amateur Championship. Hann vann sér inn silfurbikarinn fyrir að vera sá áhugamaður með besta skorið á Masters en hann lék á 12 yfir pari, 300 höggum (73 75 77 75). Kínverski undratáningurinn var með engin þrípútt í mótinu og ekkert verra skor en skolla á skorkortinu sínu. Eini hnökrinn var 1 höggs víti sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2013 | 07:45
GO: Auður Ólafsdóttir krýnd púttdrottning á kántríkvöldi GO kvenna – Cowgirls með besta þemað

Það var ekki fjölmennur hópur kvenna sem mætti s.l. föstudagskvöld á kántríkvennakvöld GO þ.e. 12. apríl 2013 s.l. en skemmtunin var engu að síður stórgóð og mikil stemming var í húsinu. Það var þema í húsinu og allar konurnar lögðu sig að sjálfsögðu fram við uppfylla þemað sem var kántrí „working 9 to 5“, valið var besta þemaborðið og þar sigruðu „naumlega“ með yfirburðum borðið Cowgirls sem mættu á sérhönnuðum golfkylfuhestum og með skreytingar og hvaðeina og fyrir utan að í þeim heyrðist ágætlega þannig að ekki var hjá því komist að veita þeim verðlaun sem þær stóðu samt vel undir. Krýnd var púttdrottning kvöldsins og það var Auður Ólafsdóttir. Golf Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2013 | 07:00
„… fáðu fugl á síðustu holuna“
Adam Scott var 32 ára þegar hann vann fyrsta risamót sitt í golfinu á Augusta National … en þegar betur er að gáð var hann bara að fylgja sama uppáhaldsfrasa og hann hefir haft a.m.k. síðan í menntaskóla. Eftir að Scott sökkti fuglapúttinu gegn Ángel Cabrera og íklæddist græna jakkanum eftirsótta, tvítaði fyrrum sveifluþjálfi hans, Claude Harmon III mynd af Adam Scott frá árbók Kooralbyn International School nálægt Brisbane, í Ástralíu. Scott sem fékk fugl á 18. holu og síðan á lokaholu bráðabanans (10. holu) gegn Cabrera hélt sig bara við uppáhaldsfrasa sinn í golfinu, sem hann hafði þegar í menntaskóla. Í árbók Adam Scott úr menntaskóla (ens.: yearbook) stendur: Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 17:00
Adam Scott í 3. sæti heimslistans

Adam Scott fór upp í 3. sæti heimslistans (7.92 stig) fyrir sigur sinn á The Masters risamótinu í gær. Þetta er besti árangur Scott á heimslistanum, en þar áður hafði hann hæst verið í 5. sæti listans, eftir góða frammistöðu á BMW Championship í fyrra (Scott varð T-6 í því móti). Ángel Cabrera tekur líka gott stökk upp listann, var í 269. sæti hans, en er nú í 64. sæti kominn langt á topp 100 og nálgast topp 50 á heimslistanum. Tiger er sem fyrr efstur í 1.sæti heimslistans (12.17 stig) og Rory er nr. 2.(10.88 stig) Í 4. sæti er Justin Rose (6.91 stig) ; í 5. sæti (6.48 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 14:45
Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra hefur leik á WCC Championship í dag

Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og golflið University of San Francisco hefja í dag leik á West Coast Conference Championship, en mótið fer fram í the Gold Coast GC í Bremerton í Washington. Þátttakendur eru 30 frá 6 háskólum. Eygló Myrra á rástíma kl. 8:40 að staðartíma (sem er kl.15;40 að okkar tíma hér heima á Íslandi). Fylgjast má með gengi Eygló Myrru og golfliði USF með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 14:30
Scott vottar Kel Nagle virðingu – er búinn að ákveða hvað verður í Champions Dinner næsta ár!!!

Adam Scott nýbakaður Masters meistari vottaði hinum 91 ára Ástrala Kel Nagle virðingu sína, en Nagle er elsti núlifandi meistari risamóta. Nagle varð 91 árs s.l. desember og fylgdist líkt og mestöll ástralska þjóðin spennt með hvort Áströlum tækist nú loks að sigra á the Masters og binda þar með endi á 73 ára eyðimerkurgöngu sigurleysis Ástrala, allt frá því Jim Ferrier tók fyrst þátt í the Masters 1940 og hafnaði í 2. sæti árið 1950. Nagle keppti fyrst á the Masters 1960; aðeins nokkrum mánuðum áður en hann keppti fyrir Ástralíu hönd á Opna breska á St. Andrews og sigraði. Eftir að búið var að klæða Adam Scott í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 14:15
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst hefur leik á Wofford Inv. í dag

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og the ETSU Bucs hefja leik í dag á Wofford Coca-Cola Invitational í Spartansburg, Suður-Karólínu. Mótið er tveggja daga frá 15.-16. apríl. Golflið ETSU hefir unnið síðustu tvö Coca-Cola Invitational mótinu á s.l. 2 árum. Þátttakendur eru um 88 frá 16 háskólum: Golflið ETSU, The Terriers, Appalachian State, Charleston Southern, Elon, Furman, Gardner-Webb, High Point, James Madison, Longwood, Presbyterian, Radford, Stetson, USC Upstate, Western Carolina, and Winthrop. Þetta er síðasta mót Guðmundar Ágústs og ETSU fyrir svæðamótið Atlantic Sun Championship, sem stendur dagana 21.-23. apríl n.k og fer fram á The Legends golfvellinum í Braselton, Georgíu. Ekki er hægt að vera með tengil inn á skortöflu í mótinu, en Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

