Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2013 | 15:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og ETSU í 2. sæti á Wofford Inv. eftir 1. dag

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og the golflið East Tennessee State University, ETSU Bucs hófu leik í dag á Wofford Coca-Cola Invitational í Spartansburg, Suður-Karólínu.

Mótið er tveggja daga frá 15.-16. apríl og þátttakendur eru 88 frá 16 háskólum.  Golflið ETSU hefir unnið síðustu Coca-Cola Invitational mót á s.l. 2 árum.

Guðmundur Ágúst lék 36 holurnar fyrri daginn á samtals 147 höggum (74 73) og er T-41 í einstaklingskeppninni, þ.e. jafn öðrum í 41. sæti. Hann er á lakasta skori af 5 liðsmönnum ETSU Bucs og telur skor hans ekki í glæsiárangri liðsins, en það er í 2. sæti í liðakeppninni.

Þetta er síðasta mót Guðmundar Ágústs og ETSU fyrir svæðamótið Atlantic Sun Championship, sem stendur dagana 21.-23. apríl n.k  og fer fram á The Legends golfvellinum í Braselton, Georgíu.

Til þess að sjá stöðuna á Wofford Inv. eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: