Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2013 | 12:45

Afmæliskylfingur dagsins: Charlotta Sörenstam – 16. apríl 2013

Það er Charlotta Sörenstam sem er afmæliskylfingur dagsins. Charlotta er systir hinnar frægu Anniku Sörenstam, sem var einráð í kvennagolfinu um langt skeið sem nr.1 á Rolex-heimslista kvenna. Charlotta er fædd 16. apríl 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Charlotta starfar sem golfkennari við golfskóla systur sinnar og hefir m.a. verið með golfskýringaþætti á ýmsum golfmiðlum.

Lotta Sörenstam

Lotta Sörenstam

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mark Haastrup, 16. apríl 1984 (29 ára);  Michael Thompson, 16. apríl 1985 (28 ára – hann leiddi m.a. fyrir lokadag McGladreys mótsins í október 2011) …. og ….

F. 16. apríl 1962
F. 16. apríl 1970 (42 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is