Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 13:30
Bandaríska háskólagolfið: Sunna efst á SoCon Championship eftir 1. dag
Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG og Sunna Víðisdóttir, GR og Elon hófu í gær leik á Southern Conference Championship, í Hilton Head, Suður-Karólínu. Mótið stendur dagana 14.-16. apríl 2013. Þátttakendur eru 50 frá 10 háskólum Sunna deilir 1. sætinu eftir 1. dag með Emily McLennan frá Chattanooga háskólanum, en báðar léku 1. hring á 72 höggum eða sléttu pari. Á hringnum fékk Sunna 1 örn, 1 fugl, 13 pör og 3 skolla. Berglind lék á 80 höggum í einstaklingskeppninni og er T-25 þ.e. deilir 25. sætinu með 4 öðrum. Golflið Sunnu þ.e. Elon háskóla og golflið Berglindar þ.e. UNGC deila 6. sætinu í liðakeppninni eftir 1. dag. Til þess að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Finnbogi Haukur Axelsson – 15. apríl 2013

Það er Finnbogi Haukur Axelsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Finnbogi Haukur er fæddur 15. apríl 1983 og á því 30 ára stórafmæli í dag!!! Hann er í GOB. Sjá má viðtal sem Golf1 tók við Finnboga Hauk með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Finnbogi Haukur Axelsson F. 15. apríl 1983 (30 ára merkisafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Barbara Barrow, spilaði á LPGA, 15. apríl 1955 (58 ára); Michelle Redman, spilaði á LPGA, 15. apríl 1965 (48 ára); Suzy Green, spilaði á LPGA, 15. apríl 1967 (46 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 09:25
Græna jakka serimónían-Myndskeið
Eftir að Adam Scott sigraði á Masters 2013 í gærkvöldi fór fram hin hefðbundna serimónía þar sem sigurvegari síðasta árs (á þessu ári Bubba Watson, sigurvegari 2012) afhenti Adam Scott græna jakkann eftirsótta. Það var því eitt nýtt fatarkyns, grænn jakki, sem bættist við í fataskáp Adam Scott seint í gærkvöldi!!! Áður en Bubba klæddi Adam Scott í græna jakkann – var Tianlang Guan, 14 ára strákurinn heiðraður, en hann er sá yngsti til þess nokkru sinni að keppa í Masters mótinu og jafnframt sá yngsti til þess að komast í gegnum niðurskurð. Hann var spurður um hvaða áhrif þátttaka hans í Masternum myndi hafa á ungmenni heima fyrir í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 09:00
Sigurpútt Adam Scott-Myndskeið

Sigur Adam Scott var á the Masters var langþráð stund fyrir hann persónulega, en einnig Ástrala sem beðið hafa í yfir 70 ár eftir að einhver landsmanna þeirra ynni risamótstitilinn á the Masters. Bráðabaninn milli þeirra Adam Scott og Ángel Cabrera var æsispennandi og ekki minnkaði spennan eftir að Cabrera rétt missti púttið sitt á 10. holu – sem var 2. holu bráðabanans. Þeir voru áður búnir að spila 18. holu, sem báðir fengu par á. En svona vann Adam Scott the Masters 2013: Hér er til upprifjunar sigurpútt Adam Scott á the Masters 2013 SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 08:30
Hvað var í sigurpokanum?

Adam Scott notaði Titleist 913D dræver í fyrsta sinn í móti … og sigraði með honum the Masters. Reyndar var pokinn hjá honum fullur af Titleist kylfum og Titleist Pro V1 bolta og þannig útbúinn vann hann Ángel Cabrera í bráðabana eftir að hafa komið inn á 3 undir pari, 69 höggum, lokahringinn. Í sigurpoka Adam Scott voru eftirfarandi kylfur: Dræver: Titleist 913D3 (Graphite Design Tour AD DI-8 skaft), 9.5° 3-tré: Titleist 910F.d (Rombax Pro 95 skaft), 15° Járn (2-iron): Titleist 712U (KBS Tour skaft) Járn (3-9): Titleist 710 MB (KBS Tour sköft) Fleygjárn: Titleist Vokey Design SM4 (48°, 54°; KBS Tour sköft), Titleist Vokey Design TVD (60°; KBS Tour skaft) Pútter: Scotty Cameron fyrir Titleist Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2013 | 08:00
Scott:„Er stoltur Ástrali“-Myndskeið

Hér má sjá frá blaðamannafundi með sigurvegara the Masters 2013 – Ástralanum Adam Scott. Scott hóf ræðu sína á að segja að dagurinn hefði verið ótrúlegur þar sem allt hefði fallið með sér. Hann væri stoltur Ástrali sem vonaði að sigurinn félli í góðan jarðveg heima fyrir…. (í Ástralíu) ….. en einnig í Nýja-Sjálandi (þaðan sem kylfuberinn hans frægi Steve Williams er). Scott hældi Ángel Cabrera sagði að hann hefði kynnst honum nokkuð í gegnum Forsetabikars-keppnir … hann væri sannur herramaður og þeir báðir vinir. Scott sagði að hann mæti það mikils að Ángel hefði eitt sinn sagt við sig þegar sér gekk illa í Forsetabikarnum að hann væri frábær kylfingur. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2013 | 23:39
Adam Scott sigurvegari Masters!!!

Adam Scott varð í kvöld fyrsti ástralski kylfingurinn sem tekst að sigra Mastersmótið, á Augusta National. Landi Scott, Greg Norman, varð t.a.m. 3 sinnum í 2. sæti: 1986, 1987 og 1996, þegar hann jafnaði glæsilegt vallarmet Nick Price upp á 63 högg á Augusta National, en jafnvel það dugði ekki! Adam Scott er 32 ára, fæddur 16. júlí 1980 í Adelaide, Ástralíu. Hann vann Ángel Cabrera, 43 ára, frá Argentínu í bráðabana. Fyrst var 18. holan spiluð en þar fengu báðir par. Næst var farið á 10. holu og þar hafði Scott sigur!!! Þessi sigur bætir fyrir óhappalokaholur Scott á Opna breska 2012, þar sem hann lét sigurinn ganga sér Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2013 | 23:17
Bráðabani milli Cabrera og Scott

Ángel Cabrera og Adam Scott luku báðir leik eftir 72 holur á 77. Mastersmótinu á 9 undir pari, 279 höggum og nú verður að fara fram bráðabani milli þeirra. Adam Scott á færi á að vinna fyrsta Masters titil fyrir Ástrali – Ángel Cabrera gerir allt til þess að heiðra 90 ára afmælisdag „El Maestro“, sem er kallaður faðir golfíþróttarinnar í Argentínu. Annarhvor þeirra kemur til með að klæðast græna jakkanum eftir smá stund…. en fyrst æsispennandi bráðabani á 18. holu Augusta National.
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2013 | 23:00
Guan með lægsta skor áhugamanna

Tianlang Guan lauk lokahring sínum á Masters nú í dag sunnudaginn 14. apríl 2013. Hann var á 3 yfir pari, 75 höggum, fékk 15 pör og 3 skolla og var á samtals skori upp á 12 yfir pari. Þetta er alveg ótrúlegur árangur 14 ára stráks, sem enn er í 8. bekk í Kína. Hann varð yngstur til að taka þátt í Masters og er yngstur til að komast í gegnum niðurskurð. Hann var á besta skori þeirra 6 áhugamanna sem þátt tóku í 77. Masters mótinu og hlýtur því silfurbikarinn, sem Guan fær afhentan um leið og sigurvegari mótsins er klæddur í græna jakkann. „Ég held að ég hafi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2013 | 22:45
Tiger lauk Masters á 70

Tiger Woods var nú rétt í þessu að ljúka leik á 77. Mastersmótinu. Hann var á 2 undir pari, 70 höggum á lokahringnum. Samtals lék Tiger á 5 undir pari, 283 höggum (70 73 70 70), sem er stórglæsilegt miðað við að 3 högganna voru víti sem hann fékk á 15. holu á 2. hring og fór í gegnum taugatrekkjandi umræðu um frávísun úr mótinu. Í viðtali eftir lokahringinn sagði Tiger m.a. að erfitt hefði verið að slá aðhögginn, þau hefðu runnið lengra en venjulega, en erfitt hefði verið að lesa flatirnar, því þær hefðu verið hægari. Aðspurður hvað hann hefði sleppt að gera á lokahringnum, sem hann hefði þurft Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

