Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 23:00
Afmæliskylfingur dagsins: Marina Arruti – 23. maí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er spænski kylfingurinn Marina Arruti. Marina fæddist í San Sebastian, 23. maí 1972 og á því 41 ára afmæli í dag. Marina gerðist atvinnukylfingur 5. janúar 1995. Hún átti mjög góðan áhugamannaferil vann m.a. Portuguese International Champion 1993 og British U-23 Amateur Champion 1994. Sem atvinnumaður hefir hún m.a. sigrað Austrian Open, 1999. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gary Dennis McCord, 23. maí 1948 (65 ára); Jamie Elson, 23. maí 1981 (32 ára) ….. og …… Hulda Birna Baldursdóttir (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!) Ellert Unnar Sigtryggsson (43 ára) Guðmundur Ingibergsson (48 ára) Lars Søndergaard Olga Gunnarsdottir (45 ára) Árni Páll Árnason (47 ára) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 18:25
Evróputúrinn: Kingston efstur eftir 1. dag

Það er James Kingston frá Suður-Afríku, sem leiðir eftir 1. dag á BMW PGA Championship í Wentworth á Englandi. Kingston lék á samtals 6 undir pari, 66 höggum. Í 2. sæti 1 höggi á eftir Kingston er Mikko Ilonen frá Finnlandi, s.s. á 5 undir pari, 67 höggum. Í 3. sæti enn öðru höggi á eftir er Scott Henry frá Skotlandi á 4 undir pari, 68 höggum. Nokkrir eiga eftir að ljúka leik, en leik var frestað í dag til morguns vegna eldinga. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 18:00
Evróputúrinn: Rory byrjar illa á Wentworth

Rory McIlroy var að vonast eftir góðri byrjun á BMW PGA Championship, sem hófst í dag á Wentworth golfvellinum í Englandi, en 5 skollar á síðustu 6 holunum gerðu þær vonir hans að engu. Það leit í fyrstu vel út hjá hinum 24 ára Rory, en hann spilaði fyrstu 12 holurnar á 3 undir pari. En í köldum aðstæðum á Wentworth gerði Rory fullt af mistökum og 74 högg staðreynd þegar upp var staðið og er hann 8 höggum á eftir forystumanni 1. dags, James Kingston frá Suður-Afríku. „Þetta var einn af þessum hringjum, sem bara rann úr greipum mér,“ sagði McIlroy við blaðamenn eftir að hann lauk keppni á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 13:45
Viðtal við Sharmilu Nicolette

Sharmila Nicollet náði besta árangri sínum, þ.e. 17. sætinu á Evrópumótaröð kvenna á the Turkish Airlines Ladies Open. Nicollet, sem var í 38. sæti hífði sig upp með lokahringnum upp á 1 undir pari, 72 höggum þrátt fyrir að hafa fengið skolla og skramba um miðbik hringsins. Þetta var í fyrsta sinn sem Nicollet náði niðurskurði í ár og það mun eflaust gefa henni mikið sjálfstraust í næstu keppnum. Blaðafulltrúi LET lagði 18 spurningar fyrir þennan indverska kylfing Hver veitir þér mestan innblástur? Mamma. Hvaða kylfing lítur þú mest upp til ? Tiger Woods og Adam Scott! Hver er mesta breytingin sem þú hefir orðið vör við í golfi s.l. 10 ár: Þegar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 13:30
Birgir Leifur á glæsilegum 67 höggum á 2. degi í Svíþjóð

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, átti glæsilegan 2. hring á Landskrona Masters í Svíþjóð en mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Hann lék á 4 undir pari, 67 höggum og er því samtals búinn að spila á 1 undir pari, 141 höggi (74 67). Mótið fer fram í Landskrona í Svíþjóð. Þáttakendur eru 156. Telja verður mjög líklegt að Birgir Leifur sé kominn í gegnum niðurskurð eins og skortaflan lítur út nú – þó margir eigi eftir að ljúka keppni – niðurskurðarlínan er nú við parið. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag í Landskrona Masters SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 13:15
Ólafur Björn á 76 í N-Karólínu

Ólafur Björn Loftsson, NK lék í gær 1. hring sinn á Willow Creek Open, sem er hluti af eGolf-mótaröðinni. Spilað var í High Point Country Club í Willow Creek, Norður-Karólínu. Þátttakendur eru 149. Ólafur Björn lék á 4 yfir pari, 76 höggum og hefði örugglega óskað sér aðra byrjun á mótinu. Á hringnum fékk Ólafur Björn 15 pör, 2 skolla og 1 skramba. Eftir 1. dag er Ólafur Björn í 123. sæti. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. hring Willow Creek Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 13:00
GSÍ og Securitas í samstarf

Golfsamband Íslands og Securitas skrifuðu í dag undir samstarfssamning til þriggja ára. Samstarfið varðar mótaröð þeirrra bestu en Securitas hefur verið styrktaraðili GSÍ og golfíþróttarinnar í landinu til margra ára. Samstarfið er á breiðum grundvelli en samstarfsaðilar verða einnig samkostendur Golfsambandsins á golfþáttum sumarsins sem sýndir verða á RÚV. Að auki verða þeir samkostendur að beinum útsendingum RÚV af Íslandsmótinu sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli dagana 27. til 28. júlí. „Samstarfið við Securitas hefur verið mjög gott og það er mikilvægt fyrir GSÍ að geta tengt sig við öflugt fyrirtæki sem hefur framsækna stefnu og er leiðandi á sínu sviði“ segir Stefán Garðarsson, markaðs- og sölustjóri GSÍ. „Það er okkur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 12:45
Bandaríska háskólagolfið: Hrafn og Faulkner höfnuðu í 8. sæti í landsmótinu í Oregon

Dagana 14.-17. maí s.l. tóku Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE og golflið Faulkner háskólans, „The Eagles“ þátt í landsmóti (ens.: NAIA Men´s Golf Championship) í Salem, Oregon. Spilað var á golfvelli Creekside golfklúbbsins. Þetta var í 1. sinn í sögu skólans sem „The Eagles“ komust áfram í landmótið. Þátttakendur voru 91 frá 17 háskólum. Hrafn varð T-59, á samtals 20 yfir pari, 308 höggum (81 79 70 78) í einstaklingskeppninni. Þriðji hringurinn var sérlega flottur hjá Hrafni!!! Golflið Faulkner hafnaði í 8. sætinu, sem er ansi góður árangur!!! Sjá má úrslitin í einstaklingskeppninni í landsmótinu í Salem, Oregon í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: Sjá má úrslitin í liðakeppninni í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 12:00
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn bætti sig um 4 högg milli hringja!

Ólafía Þórunn lék í gær 2. hringninn á landsmótinu í bandaríska háskólagolfinu, sem fram fer í Athens, Georgíu. Hún er samtals búin að leika á 10 yfir pari, 154 höggum (79 75). Hún bætti sig því um 4 högg milli hringja. Ólafía Þórunn er sem stendur í 104. sæti af 126 keppendum. Hún spilar sem einstaklingur í landsmótinu en lið hennar Wake Forest komst ekki áfram úr svæðisúrslitunum. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag landsmótsins í Athens, Georgíu í bandaríska háskólagolfinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 11:30
Adidas styrktaraðili Sergio Garcia óánægður með kynþáttaníð hans í garð Tiger

Óvild Sergio Garcia og Tiger í garð hvors annars er alltaf að taka nýjar stefnur. Það nýjasta er að íþróttavörurisinn þýski Adidas, sem m.a. á TaylorMade er afar óánægður með meint kynþáttaníð Sergio Garcia í garð Tiger, þegar sá fyrrnefndi sagðist myndu bjóða Tiger í mat og reiða fram djúpsteiktan kjúkling. Sergio iðraðist þá þegar og notaði orðið „sorrý“ 11 sinnum og „afsökun“ (ens. apology) fimm sinnum í gær þegar hann sagði blaðamönnum hversu mjög hann sæi eftir að hafa grínast með að ætla að bjóða Tiger í mat og bjóða honum djúpsteiktan kjúkling. Djúpsteiktur kjúklingur er stereotýpískt komment notað um þeldökka Bandaríkjamenn, sérstaklega í Suðurríkjum Bandaríkjanna en sá matur Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

