Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2013 | 20:30
Birgir Leifur á 74 í Svíþjóð

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tekur þátt í Landskrona Masters mótinu, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Mótið fer fram í Landskrona í Svíþjóð. Þáttakendur eru 156. Birgir Leifur lék 1. hringinn á 3 yfir pari, 74 höggum og er í 87. sæti eftir 1. dag. Hann fékk 4 fugla, 10 pör, 2 skolla og 2 skramba á hringnum í dag. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag í Landskrona Masters SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2013 | 20:30
Guan spilar á St. Jude Classic

Styrktaraðilar keppast við um að bjóða hinum 14 ára Guan Tianlang undanþágur um að spila í mótum sínum. Það nýjasta er að hann hefir þegið boð styrktaraðila um að spila í Fedex St. Jude Classic mótinu, sem fram fer 6.-9. júní á TPC Southwind í Memphis, Tennessee. Þetta þýðir að Guan spilar í 2 PGA Tour mótum í röð, en tilkynnt var fyrr í vikunni um að hann hefði fengið sérstakt boð frá sjálfum Jack Nicklaus um að spila í móti þess síðarnefnda, The Memorial, í Ohio í næstu viku. „Að bjóða Guan var „no-brainer“ (þ.e. það þurfti ekki mikla umhugsun að bjóða Guan í mótið),” sagði mótsstjóri St. Jude Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2013 | 17:30
GR: Berglind á besta skori kvenna á TaylorMade Adidas mótinu

Fyrsta opna mót sumarsins, Opna TaylorMade/Adidas mótið í samvinnu við Örninn golfverslun, fór fram annan í Hvítasunnu, mánudaginn 20. maí 2013. Alls tóku þátt 134 keppendur og léku í sólríku en vindasömu veðri á Korpunni. Leikin var punktakeppni sem og höggleikur í þremur flokkum: Almennur flokkur karla, almennur flokkur kvenna og höggleikur karla með forgjöf 4,4 og lægri. Verðlaun voru einnig veitt fyrir besta skor kvenna sem og þeim sem næstir voru holu á öllum par 3 holum vallarins. Úrslitin voru eftirfarandi: Höggleikur karla 4,4 og lægra í forgjöf: 1. Sturla Ómarsson GR – 74 högg (betri á síðustu 3 holum skv. keppnisskilmálum) 2. Kristján Þór Einarsson GKJ – 74 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2013 | 17:30
Uihlein vann fyrsta atvinnumannstitilinn

Sunnudaginn s.l., 19. maí 2013, vann Peter Uihlein fyrsta sigur sinn sem atvinnumaður í golfi, á Evrópumótaröðinni. Peter sem er sonur Walter Uihlein, forstjóra Acushnet, sem á m.a. Titleist og Footjoy vörumerkin tryggði sér sigurinn á Madeira Island Open með glæsilokahring upp á 68 högg. Samtals var Uihlein á 15 undir pari, 273 höggum. Mótið fór fram á Golf do Santo de Serra. „Ég er einfaldlega yfir mig ánægður,“ sagði hinn 23 ára Uihlein, þegar hann tók við sigurtékkanum upp á € 100.000,- Daninn Morten Örum Madsen varð í 2. sæti 2 höggum á eftir Uihlein (lmeð lokahring upp á 5 undir pari, 67 höggum) og sömuleiðis Mark Tullo frá Chile Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2013 | 17:00
Afmæliskylfingur dagsins: Elías Björgvin Sigurðsson – 22. maí 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Elías Björgvin Sigurðsson. Elías Björgvin er fæddur 22. maí 1997 og því 16 ára í dag. Hann er í Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Elías Björgvin varð m.a. í 1. sæti fyrir 2 árum í Golfmóti UMFÍ í flokki 11-13 ára stráka. Áhugamál Elísasar Björgvins auk golfsins eru handbolti og körfubolti. Foreldrar Elíasar Björgvins eru Ragnheiður Elíasdóttir og Sigurður Egill Þorvaldsson. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér fyrir neðan: Elías Björgvin Sigurðsson (16 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Horton Smith, f. 22. maí 1908- d. 15. október 1963) ; Gwladys Nocera, 22. maí 1975 (38 ára) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2013 | 16:45
Eimskipsmótaröðin hefst næstu helgi

Loksins er farið að glita í sumarið hjá okkur kylfingum eftir frekar napurt vor. Hér á sunnanverðu landinu koma golfvellirnir nokkuð vel undan vetri, þó svo nokkuð sé í land að þeir séu fullgrónir. Á Norðurlandi er staðan verri og ennþá eru nokkrir golfvellir undir snjó og því miður líkur á að eitthvað verði um kalskemmdir á því landsvæði. En kylfingar eru óþreyjufullir eftir að hefja keppnistímabilið og um síðustu helgi hófst Íslandsbankamótaröð unglinga og fjölmörg opin mót hafa nú farið fram. En nú er komið að mótum þeirra bestu. EIMSKIPSMÓTARÖÐIN Mótaröð bestu kylfinga á Íslandi, Eimskipsmótaröðin hefst n.k. föstudag 24. maí á Garðavelli á Akranesi.Öll mótin á Eimskipsmótaröðinni eru Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2013 | 09:30
Sergio biðst afsökunar á kjúklinga kommenti um Tiger

Sergio Garcia var ásamt öðrum úr Ryder Cup liði Evrópu á blaðamannafundi í gær. Þar var hann spurður að því hvort hann myndi bjóða Tiger í mat fyrir Opna bandaríska risamótið sem hefst í næsta mánuði og hvað hann myndi bjóða Tiger í mat. Sergio svaraðI. „Við munum vera innan um hann á hverju kvöldi og við myndum reiða fram steiktan kjúkling“ Kommentið þykir svipa til svipaðrar athugasemdar Fuzzy Zoeller fyrir margt löngu, sem þótti fela í sér kynþáttaníð í garð Tiger. Sergio hefir beðist afsökunar á kommentinu og sagt að hann hefði ekki haft neitt kynþáttaníð í huga þegar orðin voru látin falla.
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2013 | 09:15
LET: Deloitte Ladies Open hefst á morgun

Á morgun hefst á The International golfvellinum í Amsterdam, Deloitte Ladies Open, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Mótið hófst óformlega í gærkvöldi á keppni um hvort keppendur næðu að fara holu í höggi (ens. hole in one challenge). Mótsstaðurinn var heldur óvenjulegur eða torgið í miðborg Amsterdam. Um 20 keppendur mættu í mótið við Stedelijk Museum café í miðborginni og tóku þátt í keppninni. Sigurvegarinn var fyrsti keppandi á LET frá Perú, María Salinas, sem hlaut í verðlaun opinn farmiða með KLM, sem kemur sér eflaust vel fyrir hana!
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2013 | 08:30
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn á 79 höggum í Athens eftir 1. dag

Ólafía Þórunn hóf í gær leik á landsmótinu í bandaríska háskólagolfinu, sem fram fer í Athens Georgíu. Hún lék á 7 yfir pari, 79 höggum og er í 108. sæti eftir 1. dag. Ólafía Þórunn fékk 7 skolla á hringnum og 11 pör. Ólafía Þórunn spilar sem einstaklingur í landsmótinu en lið hennar Wake Forest komst ekki áfram í svæðisúrslitunum. Sú sem er í efsta sæti er Regan de Guzman úr San Jose State háskólanum, en hún spilaði 1. hring á 5 undir pari, 67 höggum og á 2 högg á næsta keppanda. Það er vonandi að betur gangi hjá Ólafíu Þórunni í dag! Til þess að sjá úrslitin eftir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2013 | 21:00
Lee Westwood tjáir sig um Tiger og Sergio – Myndskeið

Sagan endalausa um óvildina milli Tiger og Sergio heldur áfram. Í stuttu viðtali við Lee Westwood sem taka mun þátt á flaggskipsmóti Evrópumótaraðarinnar, BMW PGA Championship, sem fram fer á Wentworth vellinum í Englandi nú í vikunni sagði hann m.a. að á sérhverjum vinnustað væri fólk sem ekki kæmi vel saman. Það væri því ekkert að því að Tiger og Garcia væru ekki bestu vinir. Lee sagði að sér líkaði við báða og vildi ekki blandast í þessar deilur. Varðandi löngu pútterana sagði Lee að hann notaði ekki slíkan og því snerti bannið sig ekki. Hann gladdist yfir að allir 12 í Ryder Cup liði Evrópu myndu spila á mótinu. Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

