Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2013 | 23:00

Afmæliskylfingur dagsins: Marina Arruti – 23. maí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er spænski kylfingurinn Marina Arruti. Marina fæddist í San Sebastian, 23. maí 1972 og á því 41 ára afmæli í dag.  Marina gerðist atvinnukylfingur 5. janúar 1995.  Hún átti mjög góðan áhugamannaferil vann m.a. Portuguese International Champion 1993 og British U-23 Amateur Champion 1994.  Sem atvinnumaður hefir hún m.a. sigrað Austrian Open, 1999.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Gary Dennis McCord, 23. maí 1948 (65 ára);  Jamie Elson, 23. maí 1981 (32 ára)

….. og ……

578621_4541927514483_1813304552_a

Hulda Birna Baldursdóttir (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!)

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is