Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2013 | 14:00
Jason Dufner í augum Amöndu – frábær Skyline Chili uppskrift

Jason Dufner er alltaf að verða þekktari kylfingur, en það er ekkert allt of langt síðan að ekki nokkur maður vissi hver Dufner er. Áhuginn á Dufner, sem áður var bara þekktur fyrir að vera með hár sem stóð út í allar áttir, var með skrítið vagg út á velli sem hægt og stöðugt leiddi í pottþétta sveiflu jókst hægt og rólega og hefir aukist sérstaklega eftir sigur hans á PGA Championship. Áður var hann bara þekktur fyrir að giftast Amöndu 5. maí 2012, sem mörgum þótti alltof flott fyrir þennan „nörd“ sem Dufner þótti. Dufner var m.a. inntur eftir þessu i sjónvarpsþætti Howard Stern og er fyrstur manna til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Auður Kjartansdóttir – 23. ágúst 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Auður Kjartansdóttir. Auður er fædd 23. ágúst 1991 og er því 22 ára í dag. Hún er klúbbmeistari Golfklúbbsins Mostra í Stykkishólmi 2013. Unnusti Auðar er Pétur Pétursson. Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Auði með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu Auðar til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Auður Kjartansdóttirovic (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Peter Thomson, 23. ágúst 1929 (84 ára); Mo Joong-kyung, 23. ágúst 1971 ( 42 ára frá Suður-Kóreu) ….. og …… Örn Bergmann (24 ára) Guðrún Sesselja Arnardóttir (47 ára) Skylmingafélag Reykjavíkur (65 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2013 | 10:00
PGA: Stadler leiðir á Barclays

Það er bandaríski kylfingurinn Kevin Stadler sem leiðir á The Barclays á Liberty National golfvellinum í New Jersey, en mótið hófst í gær. Stadler lék á 7 undir pari, 64 höggum. Í 2. sæti eru 3 kylfingar: Camilo Villegas, Henrik Stenson og Ryan Palmer en þeir spiluðu allir á 65 höggum. Enn öðru höggi á eftir eru Jason Day og Matt Kuchar. Tiger er síðan einn af 6 kylfingum sem er deila 6. sæti; allir búnir að spila á 67 höggum. Tiger er að spila vel þrátt fyrir meiðsl í hálsi og baki. Nr. 3 á heimslistanum Rory McIlroy er sem fyrr heillum horfinn – lék á 71 höggi eða Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2013 | 10:00
LPGA: Ko hefur titilvörn sína á að vera í 1. sæti ásamt Stanford og Boeljon

Hin unga Lydia Ko hóf í gær titilvörn sína á CN Canadian Open. Og hún byrjar vel; er í 1. sæti eftir 1. dag ásamt bandaríska kylfingnum Angelu Stanford og hollenska kylfingnum Christel Boeljon. Þær Ko, Stanford og Boeljon léku allar á 5 undir pari, 65 höggum. Aðeins 1. höggi á eftir í 4. sæti eru þær Paula Creamer og Cristie Kerr á 4 undir pari, 66 höggum. Fjórar eru síðan í 6. sæti þ.á.m. nr. 1 á Rolex-heimslista kvenkylfinga, Inbee Park og Karine Icher frá Frakklandi. Hvorki fleiri né færri en 10 kylfingar léku á 2 undir pari, 68 höggum og deila þær 10. sæti, en þ.á.m. er Caroline Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2013 | 20:45
Evróputúrinn: Gonzalez og Wiesberger leiða á Gleneagles

Í dag hófst á Gleneagles golfstaðnum í Skotlandi Johnnie Walker Championship. Eftir 1. dag eru það Austurríkismaðurinn Bernd Wiesberger og Argentínumaðurinn Ricardo Gonzalez sem leiða. Báðir eru þeir Wiesberger og Gonzalez búnir að spila á 7 undir pari, 65 höggum. Þriðja sætinu aðeins 1 höggi á eftir á 6 undir pari, deila hvorki fleiri né færri en 6 kylfingar þ.á.m. Thongchai Jaidee. Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti eftir 1. dag Johnnie Walker mótsins SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2013 | 18:08
Frægir kylfingar: Justin Bieber spilaði golf ber að ofan!

Skv. fréttamanninum Mike Vulpo á E! notaði kanadíska poppstjarnan Justin Bieber tímann milli tónleika á alþjóðlega „Believe“ túrnum sínum til þess að spila golfhring ber að ofan! … til mikillar gleði fyrir þá fulltrúa ungu kvenkynslóðarinnar sem til sáu og nokkurra annarra. Í frétt E! segir m.a.: „Þegar sólin fór að setjast leitaði hinn 19 ára Bieber á vit síðdegis golfævintýrins. Jafnvel þó hann hafi ekki haldið sig að golffatnaðarforskriftum, en hann var ber að ofan og í skærrauðum stuttbuxum með der í stíl, þá var hann alveg til í smá æfingu. Með kylfu í hendi vann Biebs í baksveiflu sinni og sló þó nokkra bolta út í buskann.“ Ef Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2013 | 14:00
Risamótsstjörnur ánægðar með breytingar á Liberty National

FedExCup umspilið hefst í dag og fyrsta mótið, The Barclays snýr aftur á Liberty National í New Jersey. Miklar breytingar hafa verið gerðar á vellinum og svo virðist sem risamótsstjörnur golfsins leggi blessun sína yfir þær, en nú er spilað í fyrsta sinn á The Barclays á vellinum frá árinu 2009. Þegar mótið var haldið 2009 voru leikmenn ekkert of hrifinir af allt of bylgjóttum, illlesanlegum flötum og háum karga. Nú hefir 15 af 18 holum vallarins verið breytt. „Þeir hafa gert nokkrar góðar breytingar á vellinum,“ sagði Tiger eftir 9 holu Pro-Am hring sinn í gær. „Nú eru ný lendingarsvæði …. breytingar hafa verið gerðar á flötunum …. og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Brittany Lang ——- 22. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Brittany Lang. Brittany fæddist í Richmond, Virginia, 22. ágúst 1985 og á því 28 árs afmæli í dag!!! Brittany var í Solheim Cup liði Evrópu og m.a. aðeins önnur af 2 til þess að vinna leik sinn í tvímenningsleikum sunnudagins f.h. liðs Bandaríkjanna, en Brittany vann leik sinn gegn Azahara Muñoz 2&1. Brittany var 2 ár í háskóla, Duke University og spilaði golf með háskólaliðinu. Hún hætti samt í háskóla og gerðist atvinnumaður í golfi 2005 eftir gott gengi á US Women´s Open þar sem hún náði 2. sætinu (T-2) (sem er næstbesti árangur hennar til dagsins í dag í risamóti; besti árangurinn er að verða ein í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2013 | 09:00
Brúðkaupsathöfn Dufner – myndskeið

Þetta er nokkuð sem virðist hafa farið fram hjá flestum golffréttamiðlum a.m.k. hérlendis. PGA Championship risamótsmeistari ársins 2013 kvæntist í fyrra sinni heittelskuðu Amöndu s.s. flestir vita. Af athöfninni var gerð meðfylgjandi myndbandsupptaka sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2013 | 08:00
Sveitakeppnir unglinga hefjast á morgun

Á morgun, 23. ágúst 2013 hefjast sveitakeppnir unglinga. Á Selsvelli á Flúðum er keppt í einum flokki stúlkna. Núverandi Íslandsmeistarar í flokki 18 ára og yngri stúlkna er A-sveit Keilis. Í sigursveit Íslandsmeistara Golfklúbbsins Keilis í flokki stúlkna 18 ára og yngri 2012 voru þær: Anna Sólveig Snorradóttir, Högna Kristbjörg Knútsdóttir, Saga Ísafold Arnarsdóttir og Sara Margrét Hinriksdóttir. Íslandsmeistarar í sveitakeppni GSÍ í flokki 15 ára og yngri telpna 2012 voru þær: Eva Karen Björnsdóttir, Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, Karen Ósk Kristjánsdóttir og Saga Traustadóttir. Piltar 18 ára og yngri keppa á Hellu. Sigursveit GKG í flokki 18 ára og yngri pilta 2012 skipuðu þeir Sverrir Ólafur Torfason, Egill Ragnar Gunnarsson, Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

