Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2013 | 07:00
Ben Crane með nýtt lag „Bubble Boy“

Svo virðist sem Golf Boys-inn Ben Crane sé að hefja sóló-feril en hann hleypti af stokkunum nýju lagi „Bubble Boy“ í gær. Golflega séð hefir Crane ekki gengið jafnvel og félögum hans í Golf Boys þeim Hunter Mahan, Bubba Watson og Rickie Fowler, sem auk þess hafa verið mun meira í fjölmiðlum en Crane; Mahan nú síðast vegna fæðingar fyrsta barns hans og þess að hann hætti í móti, sem hann var í forystu í til að vera viðstaddur fæðingu þess. Crane hefir aðeins náð niðurskurði í 11 tilvikum af 20 í ár og þar af aðeins tvisvar verið meðal efstu 10. Besti árangur hans er T-4 á the Shell Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2013 | 20:30
Fitzpatrick og Ko hlutu Mark H. McCormack viðurkenninguna

Matthew Fitzpatrick frá Englandi og golfstjarnan unga Lydia Ko fengu Mark H. McCormack medalíurnar fyrir að vera fremstu áhugamenn í heimi skv. World Amateur Golf Ranking árið 2013. Fitzpatrick hlaut silfurmedalíuna á British Open og varð fyrsti Englendingurinn til að sigra á U.S. Amateur Championship í The Country Club í Brookline, Massachusetts s.l. sunnudag. „Ég er algerlega frá mér numinn að vinna McCormack medalíuna,“ sagði hinn 18 ára Fitzpatrick í fréttatilkynningu. „Að hljóta þessa viðurkenningu á sama tíma og að sigra í U.S. Amateur Championship er virkilega sérstakt. Ko er að vinna sér inn McCormack medalíuna 3. árið í röð vegna frábærrar frammistöðu enn eitt árið, þar sem hún tók m.a. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2013 | 18:37
Tiger stífur í baki og háls

Tiger Woods var stífur í baki og háls á Liberty National nú í morgun. Hann spilaði aðeins 9 holur af pro-am mótinu. „Ég var ansi stífur vegna þess að rúmið var svo mjúkt,“ sagði Tiger til skyringar. „Þetta fylgir því bara að sofa á hótelum og ég vildi ekki taka neina áhættu þannig að ég tók því bara rólega.“ Tiger var líka með stíft bak á PGA Championship fyrir tveimur vikum en bætti við að það væri ekkert til að hafa áhyggjur af. Aðspurður hvort hann hefði fengið sér nýtt rúm svaraði Tiger: „Hvað heldur þú?“ Tiger, sem leiðir í FedEx Cup stigum varð í 2. sæti á The Barclays árið 2009 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2013 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jarrod Lyle ———- 21. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er ástralski kylfingurinn Jarrod Lyle. Hann fæddist 21. ágúst 1981 og er því 32 ára. Hann spilaði á PGA Tour SMELLA HÉR: og komst í fréttirnar 2011 vegna þess að þá átti hann eitt fallegasta höggið á PGA túrnum (ás í keppni); Sjá um það með þvi að SMELLA HÉR: Hann gifti sig jólin 2011. Sjá grein Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR: Snemma á árinu 2012 eignaðist hann síðan sitt fyrsta barn, en stuttu síðar greindist hann með hvítblæði, sem hann hafði verið að berjast við frá því hann var unglingur. Það kom aftur í veg fyrir að hann gæti spilað á PGA Tour sem hann var þá nýfarinn að spila Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2013 | 12:30
Sveitakeppni eldri kylfinga (karla) hefst n.k. föstudag

Næstkomandi föstudag, 23. ágúst hefst sveitakeppni eldri kylfinga í 1. og 2. deild í karlaflokki. Sveitakeppni eldri kylfinga í 1. deild karla fer fram á Jaðrinum á Akureyri, enda var það Golfklúbbur Akureyrar, sem varð Íslandsmeistari í sveitakeppni 1. flokks eldri kylfinga í karlaflokki 2012! Í gull-sveit Íslandsmeistara GA-inga í sveitakeppni GSÍ 2012 – 1. flokki eldri karla voru þeir: Bjarni Ásmundsson, Björgvin Þorsteinsson, Hafberg Svansson, Haraldur Júlíusson, Sigurður H. Ringsted, Viðar Þorsteinsson, Þórhallur Pálsson og Þórir V. Þórisson. Silfur-sveit GR var skipuð þeim: Garðari Eyland, Herði Sigurðssyni, Jóni Hauki Guðlaugssyni, Óskari Sæmundssyni, Rúnari S. Gíslasyni, Sigurði Hafsteinssyni, Skarphéðni Skarphéðinssyni og Sæmundi Pálssyni. Í baráttunni um 3. sætið hafði Nesklúbburinn betur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2013 | 12:00
Solheim Cup aftur í Evrópu

Solheim bikarinn sneri aftur til Evrópu, en farið var með hann til Colorado í Bandaríkjunum, þar sem hann var meðan lið Bandaríkjanna og Evrópu kepptust um hann. Lið Evrópu hafði betur s.s. allir vita, 2. árið í röð og því er bikarinn aftur í Evrópu. Hann er varðveittur í Buckinghamshire golfklúbbnum í Englandi, þar sem höfuðstöðvar Ladies European Tour (skammst.: LET) eru. Flestir leikmenn beggja Solheim Cup liða keppa nú í vikunni á CN Canadian Women’s Open. Sú sem á titil að verja er hin 16 ára unga Lydia Ko, frá Nýja-Sjálandi, en hún mun spila í ráshóp með Solheim Cup stjörnu Evrópu, Charley Hull, 17 ára, fyrstu tvo dagana í Royal Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2013 | 11:45
Harrington í stað Mickelson á Grand Slam

Þrír af 4 risamótsmeisturum ársins 2013 hafa tilkynnt að þeir muni taka þátt í PGA Grand Slam of Golf sem fer fram dagana 14.-16. október á Port Royal golfvellinum á Bermúda. Þessir 3 eru: Adam Scott, sigurvegari The Masters, Justin Rose, sigurvegari Opna bandaríska og Jason Dufner, sem sigraði nú í mánuðnum á PGA Championship. Þetta er í 1. skipti fyrir alla 3 að þeir taka þátt í Grand Slam. Sigurvegari Opna breska, Phil Mickelson hefir hins vegar tilkynnnt að hann muni ekki taka þátt vegna „þess að mótið reksist á við aðra þætti í dagskrá hans (ens.: „End-of seson scheduling conflict“) og er þetta nú í 3. sinn að hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2013 | 11:00
Sadlowski skemmdi aftur golfhermi Golf Channel

Bandaríski golffréttaþátturinn Golf Channel hefir verið að fá þekkta kylfinga til sín og fá þá til þess að slá högg í golfhermi, sem er á settinu. Í fyrra eyðilagt einn högglengsti kylfingur heims Jamie Sadlowski golfhermi Golf Channel… og í ár endurtók hann leikinn og skemmdi að nýju golfhermi Golf Channel. Athyglisvert er í þessu sambandi að Sadlowski notaði 7-járn við verknaðinn en með þeirri kylfu sló hann um 300 yarda eða 250 metra… og það var meira en golfhermirinn þoldi!!! Lengst hefir Sadlowski slegið 450 yarda eða 375 metra með dræver og það athyglisverða er gripið hans en hann slær með krossgrip (ens. cross-handed). Sjá má uppákomuna í meðfylgjandi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2013 | 10:30
Undankeppni EM pilta 18 ára og yngri
Úlfar Jónsson landsliðþjálfari hefur valið sex kylfinga sem keppa fyrir Íslands hönd í Undankeppni Evópumóts pilta 18 ára og yngri sem fram fer í Skalica Golf Club í Slóvakíu, dagana 19.-21. september. Undankeppnin eða European Boys´Challenge Trophy er fyrir þær þjóðir sem ekki náðu að tryggja sér þátttökurétt á Ervópumóti pilta 18 ára og yngri sem fram fer á næsta ári. Eftirtaldir kylfingar keppa fyrir Ísland. Aron Snær Júlíusson Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar Birgir Björn Magnússon Klúbbmeistari Golfklúbbsins Keilis 2013 C Vantar bara C og D 🙂 D Egill Ragnar Gunnarsson Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2013 | 23:59
Afmæliskylfingur dagsins: Garrett Phillipps – 20. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Garrett Whitney Phillips. Hún fæddist í Houston, Texas 20. ágúst 1986 og er því 27 ára í dag. Garrett hefir spilað bæði á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour) og LPGA Futures Tour (nú Symetra Tour). Hún gerðist atvinnumaður í golfi eftir að hún útskrifaðist frá University of Georgia, þar sem hún spilaði golf með háskólaliðinu. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Góðir Landsmenn Álsey Ve (26 ára) Ólafur Bjarnason Sh (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

