Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2013 | 10:00
Viðtal við þann kynþokkafyllsta

Hér á eftir má sjá viðtalsbrot við Adam Scott, sem nú nýlega var kjörinn kynþokkafyllsti kylfingurinn í 3000 manna skoðanakönnun. Scott sigraði í 1. móti FedExCup mótaraðarinnar The Barclays síðustu helgi og hefur í dag leik í 2. mótinu Deutsche Bank Championship, sem fram fer í Norton, Massachusetts á TPC Boston golfvellinum. Í viðtalinu við Scott kemur m.a. fram að hann sé fullur sjálfstrausts eftir sigurinn s.l. helgi og viti betur heldur en fyrir 10 árum hvað þurfti til sigurs í stórmóti sem The Barclays og Deutsche Bank Championship. Til þess að sjá myndskeið af viðtalinu við Scott SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2013 | 08:00
Asía g. Evrópu í nýrri liðakeppni

Í byrjun vikunnar þ.e. mánudaginn s.l. fór sú frétt eins og eldur í sinu um golfheimspressuna að verið væri að stofna til nýrrar keppni byggð að öllu leyti á Ryder Cup fyrirkomulaginu nema hvað liðin sem keppa myndu, myndu vera frá Asíu og Evrópu. Mótið mun verða haldið 2. hvert ár í Malasíu. Keppt verður um $ 4 milljónir (þ.e. um 1/2 milljarð íslenskra króna) og verða 10 kylfingar hvorrar heimsálfu sem mætast í fyrsta sinn 28. mars n.k. Mótið fer fram í Glenmarie Golf and Country Club nálægt Kuala Lumpur. Forsvarsmenn vona að keppnin verði jafn vinsæl og Ryder Cup. Þannig sagði formaður Asian Tour Kyi Hla Han: „Ég Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2013 | 06:30
Evróputúrinn: Kofstad efstur

Norski „frændi okkar“ Espen Kofstad er eftir 1. dag á ISPS Handa Wales Open. Hann lauk opnunarhring sínum á fugli, fugli, fugli og erni og lokaskorið hans var 7 undir pari, 64 högg. Hann hefir 2 högga forystu á Englendinginn Chris Wood og Ástralann Richard Green, sem deila 2. sætinu á 5 undir pari 66 höggum. Fyrirliði liðs Evrópu í Ryder Cup 2014, Paul McGinley átti varla til orð: „Þvílíkur endasprettur – fugl, fugl, fugl og síðan örn það er frábært sagði McGinley m.a. um frammistöðu Kofstad, en hann var í ráshóp með Norðmanninum. „Espen sló boltann milljón mílna, hitti fullt af brautum og spilaði vel og á skorið skilið.“ McGinley Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2013 | 15:00
LPGA: Safeway Classic hefst í dag

Stórmótið Safeway Classic sem styrkt er af Coca Cola hefst í dag í Pumkin Ridge í Oregon. Margir helstu kvenkylfinga heims taka þátt í mótinu, m.a. Lexi Thompson, Michelle Wie, Ai Miyazato, Yani Tseng, Suzann Pettersen, Beatriz Recari, Cristie Kerr, Laura Davies, Paula Creamer, Anna Nordqvist og Caroline Masson o.fl. Jafnvel Stacy Lewis hefir tilkynnt að hún snúi aftur til keppni en hún hætti við þátttöku í CN Canadian Open vegna vonbrigða og þreytu eftir Solheim Cup. Sú sem á titil að verja er hin japanska Mika Miyazato. Til þess að fylgjast með gegni kylfinganna á skortöflu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Kristjánsdóttir – 29. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Jónína Kristjánsdóttir. Jónína er fædd 29. ágúst 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Jónína er lágforgjafarkylfingur í Golfklúbbnum Keili og stendur sig vel á öllum mótum, sem hún tekur þátt í! Jónína er gift Magnúsi E. Kristjánssyni og á eina dóttur, Svanhvíti Helgu. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan: Jónína Kristjánsdóttir GK (50 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Albert Þorkelsson, 29. ágúst 1922-12. febrúar 2008 (Hefði orðið 91 árs í dag); Carl Pettersson, 29. ágúst 1977 (36 ára); Peter Uihlein, 29. ágúst 1989 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2013 | 10:30
Amerisleep gefur Tiger nýja dýnu!

Já, það margborgar sig að vera nr. 1 á heimslistanum. Þegar Tiger hné niður á The Barclays fór sú frétt um allan heiminn. Áður var hann búinn að segja að hann væri að spila meiddur í háls, hnakka og baki vegna of mjúkrar dýnu á hóteli! Nú hefir Amerisleep rúmdýnuframleiðandinn notað tækifærið að auglýsa vöru sína og látið það spyrjast að það hafi gefið nr. 1 söluhæstu og vinsælustu dýnu sína. Eins og Tiger hafi ekki nóg efni á gæðadýnum? En engu að síður sætt af Amerisleep að ætla að hlúa með þessum hætti golfinu og heimsins besta, svo við fáum að sjá nr. 1 spila úthvíldan og ómeiddan!
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2013 | 10:10
Creamer og Scott kynþokkafyllst

Golf Digest stóð fyrir skoðanakönnun bæði meðal karla og kvenna og bað þá að svara þeirri spurningu hver þeim þættu vera kynþokkafyllstu kylfingarnir. Eftir umfangsmikla könnun, lá svarið fyrir: kynþokkafyllsti karlinn er Adam Scott og sú kynþokkafyllsta er Paula Creamer. Hér má sjá úrslitin: Spurning Golf Digest: Hver er kynþokkafyllsti kylfingur LPGA? Svör karla: Paula Creamer – 43% Michelle Wie – 15% Sandra Gal – 14% Suzanne Pettersen – 13% Beatriz Recari – 7% Stacy Lewis – 5% Brooke Pancake – 3% Svör kvenna: Paula Creamer – 56% Beatriz Recari – 17% Michelle Wie – 9% Stacy Lewis – 7% Suzanne Pettersen – 6% Brooke Pancake – 3% Sandra Gal Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2013 | 09:45
Charley Hull ætlar sér á LPGA

Charley Hull segir að það að hún sé hluti af sigurliði Evrópu í Solheim Cup fái sig til að finnast hún eiga heima meðal stóru stelpnanna á LPGA. Hull var yngsti þátttakandinn í Solheim Cup 2013 og halaði m.a. inn 2 vinninga fyrir Evrópu og sló í gegn! Þegar hún lítur tilbaka segir hún m.a. í viðtali við SKY Sports News: „… ég hugsa bara hef ég virkilega gert allt þetta?“ „Þetta er svo undarlegt. Maður er alla mánuðina að byggja sig upp fyrir aðeins 3 daga bæði andlega og líkamlega og svo spilar maður, sem er svo stórkostlegt.“ „Þetta er allt hálf þokukennt núna vegna alls sem gekk á. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2013 | 09:00
Milljón dollara fyrir ás!

Jeff nokkur Barton tíaði upp 9. holu á Corley’s Albuquerque Lincoln Volvo Golf mótinu s.l. fimmtudag í New Mexico, Bandaríkjunum í von um að fá ás og hljóta þar með hvorki meira né minna en 1 milljón dollara. Líkurnar á að þetta tækist voru 1 á móti 12500. Það var East Mountain menntaskólinn in Sandia Park, N.M., sem stóð fyrir mótinu, en mótið fór fram í Paa-ko Ridgegolfklúbbnum. Þátttökugjaldið í mótið var fremur hátt eða $125 (eða u.þ.b. 15.000 íslenskar krónur) en á móti kom að þátttakendur áttu færi á að hljóta annað hvort Lincoln MKZ Hybrid eða 1 milljón bandaríkjadollara (þ.e. 125 milljónir íslenskra króna), sem mótshaldarar höfðu tryggingu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2013 | 08:00
Rickie í hlutverki Dick Fowler PI

Nýjustu auglýsingarnar frá Farmers Insurance hafa vakið það mikla athygli að farið er að skrifa um þær í golffréttamiðlum á Íslandi. Í meðfylgjandi myndskeiði kemur nr. 34 á heimslistanum, stjörnukylfingurinn og Golf Boys-inn Rickie Fowler fram í hlutverki Dick Fowler PI, reglueinkaspæjara- og varðar í golfi. Hann refsar kylfingum, sem eru að tala í símann á golfvellinum eða laga ekki eftir sig kylfuför, eftirminnilega. Farsímar eru sprengdir í loft upp og torfusneplum troðið upp í kylfinga. Hér má sjá myndskeið með golfeinkaspæjaranum Dick Fowler PI alias Rickie Fowler SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

