Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2013 | 18:00
Nokkrar ögrandi golfmyndir

Golf Digest hefir sett saman myndaseríu 13 mynda sem þeir nefna „Provocative golfimages“ eða þýtt lauslega yfir á okkar ilhýra „Ögrandi golfmyndir.“ Tilefni birtingar myndanna var að fréttst hafði að golfgoðsögnin 78 ára Gary Player ætlaði að sitja nakinn fyrir en ein myndin er eitt stórt spurningamerki, en þegar myndaserían var sett saman var Body Issue blað SI ekki komið út. Hér má bæta úr því og rifja upp hvernig myndin af Player leit út: Þarna gefur að finna nokkrar skemmtilegar golfmyndir frá ýmsum tímum af kylfingum, sem yngstu kylfingar, dagsins í dag kannast e.t.v. ekki við. Þarna er m.a. mjög „kynæsandi“ eða „ögrandi“ mynd af Tom Kite 🙂 Til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2013 | 13:30
Mikill vill meira

Jason Dufner talar í líkingamáli þegar hann talar um PGA Tour: „Það er svona 1-2 prósent sólskin á Túrnum en afganginn rignir.“ „Það er hægt að eiga algera lágpunkta hér (á Túrnum). En ef litið er á hina strákana þá gerir maður sér grein fyrir að allir ganga í gegnum slæma tíma.“ En það eru einmitt slæmu tímarnir sem gera þá góðu þeim mun sérstakari og það er ekki langt síðan að Dufner átti einn slíkan hápunkt ferils síns – sigur á PGA Championship í Oak Hill CC. Aðeins viku eftir að Dufner sneri aftur heim til sín í Auburn, Alabama var hann aftur farinn að keppa þ.e. á Liberty Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2013 | 12:00
Blumenherst hættir á LPGA til að geta verið með eiginmanni sínum

Amanda Blumenherst hefir verið í tilfinningalegu ójafnvægi mikinn hluta keppnistímabilsins. Amanda, sem sigraði á US Amateur Championship árið 2008, elskar golf og er að lifa draum, sem stúlkur um allan heim dreymir; hún spilar á LPGA, mótaröð bestu kvenkylfinga heims. Golfið hefir verið stærsti hluti lífs hennar, allt hennar líf …. en nú ætlar hún að hætta. Hún var farin að segja vinkonum sínum á Safeway Classic, sem fram fer í Portland, Oregon, Bandaríkjunum nú um helgina að hún ætli að hætta í lok keppnistímabilis. Hætta á LPGA, sem allar dreynir að spila á? Draum sem Amanda sjálf hefir átt frá blautu barnsbeini og er að rætast nú þegar hún Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2013 | 00:30
LPGA: Inbee Park ekki með í Safeway Classic – Paula Creamer dró sig úr mótinu

Athygli vekur að nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Inbee Park spilar ekki á Safeway Classic. Hún dró sig úr mótinu s.l. þriðjudag og sagði ástæðuna vera veikindi. Inbee sem hefir unnið 6 sinnum á keppnistímabilinu þ.á.m. fyrstu 3 risamót ársins sagði m.a. eftirfarandi í fréttatilkynningu eftir að hún dró sig úr Safeway Classic: „Ég er vonsvikin að mér sé ekki kleift að spila í Portland í þessari viku vegna veikinda. Safeway er svo sterkur stuðningsaðili mótaraðarinnar okkar og ég hlakka alltaf til að spila fyrir framan áhorfendur í Oregon.“ Önnur sem dregið hefir sig úr mótinu er Paula Creamer sem nú nýlega var valin kynþokkafyllsti kvenkylfingurinn á LPGA mótaröðinni af 3000 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2013 | 23:59
Afmæliskylfingar dagsins: Francisco Abreu og Beth Bader – 30. ágúst 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru spænski kylfingurinn Francisco Abreu og bandaríski kylfingurinn Beth Bader. Francisco fæddist 30. ágúst 1943 og á því 70 ára merkisfamæli í dag. Hann vann tvívegis á Evrópumótaröðinni. Beth Bader hins vegar fæddist í Davenport, Iowa 30 ágúst 1973 og á því 40 ára stórfafmæli í dag. Hún hefir spilað á LPGA frá árinu 2000 og þó að besti árangur hennar í móti sé aðeins T-4 árangur í Corning Classic mótinu 2007 þá hefir hún unnið sér inn yfir $1 milljón bandaríkjadollara í verðlaunafé. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: danski kylfingurinn Amanda Moltke-Leth, 30. ágúst 1976 (37 ára) ….. og ….. Ingibjörg Snorradóttir (62 ára) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2013 | 19:55
LPGA: Pornanong leiðir enn á Safeway

Pornanong Phatlum frá Thaílandi leiðir á Safeway Classic mótinu nú þegar það er hálfnað. Hún er samtals búin að leika á 14 undir pari, 130 (64 66). Í 2. sæti sem stendur er Suzann Pettersen, sem átti glæsihring í dag upp á 63 högg, eins og Phil Mickelson!!! Samtals er Suzann búin að spila á 13 undir pari, 131 höggi (68 63). Þó nokkrar eiga eftir að ljúka leik þegar þetta er skrifað kl. 19:55 og því getur staðan enn breyst. Til þess að sjá stöðuna á Safeway Classic þegar mótið er hálfnað SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2013 | 19:40
Mickelson með 63 á TPC Boston

Phil Mickelson átti glæsibyrjun á Deutsche Bank Championship á TPC Boston golfvellinum í Norton, Massachusetts. Hann spilaði fyrri 9 á glæsilegum 7 undir pari, 28 höggum en tókst aðeins að bæta við 1 fugli á seinni 9, þannig að töfraskorið 59 náðist ekki í þetta sinn. En engu að síður eru 63 högg stórglæsileg á TPC Boston. Vallarmetið á TPC Boston er 61. Tiger Woods og Adam Scott sem voru í ráshóp með Mickelson voru með 68 ig 73 högg. Til þess að fylgjast með skorinu á Deutsche Bank Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2013 | 19:15
Evróputúrinn: Bond efstur í hálfleik

Heimamaðurinn Liam Bond hefir tekið forystuna á ISPS Wales Open, en hann er samtals búinn að spila á samtals 5 undir pari, 137 höggum (69 68) eftir 2 hringi. Í 2. sæti á 4 undir pari, 1 höggi á eftir Bond eru forystumaður gærdagsins Espen Kofstad frá Noregi og Tjaart Van Der Walt frá Suður-Afríku. Það eru síðan 5 kylfingar sem deila 4 sæti á samtals 3 undir pari en þeirra á meðan er Ryder Cup fyrirliði Evrópu 2014, Paul McGinley. Meðal þeirra sem ekki náðu niðurskurði eru José Maria Olazabal, Thorbjörn Olesen, Francesco Molinari og Miguel Ángel Jiménez. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á ISPS Wales Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2013 | 19:00
Gallacher á gjörgæslu

Fyrrum Ryder Cup fyrirliðinn, Skotinn Bernard Gallacher (1995) er kominn á gjörgæslu eftir hjartaáfall, sem hann fékk í gær í Aberdeen. Frændi Bernhard, sem leikur á Evrópumótaröðinni, Stephen Gallacer, sem varð í 2. sæti á Johnnie Walker mótinu í s.l. viku í dró sig úr Wales Open í gær. Hann sagði m.a. um líðan frænda síns: „Mér skilst að ástand hans sé krítískt en hann sé stöðugur nú.“ Bernhard Gallacher gerðist atvinnumaður í golfi 1967. Tveimur árum síðar varð hann sá yngsti til að sigra á British PGA Championship, þá 20 ára og 97 en það var aldursmet sem stóð þar til Matteo Manassero vann á Wentworth í sumar þá 20 ára, 37 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2013 | 10:45
Golfbrettin það nýjasta!

Það allra nýjasta á golfvöllum eru golfbrettin, sem notuð eru til þess að komast á milli teiga. Reyndar eru brettin það ný af nálinni að þau hafa ekki enn hlotið mikla útbreiðslu enn. Þau eru engu að síður skemmtileg viðbót við golfbíla eða golfsvifnökkva. Golfbrettin eru svipuð snjóbrettum eða sjóbrettum og hafa marga kosti umfram hefðbundna golfbíla. Fyrir utan hvað það er skemmtilegt að þeysa á milli teiga á bretti, þá valda þau m.a. 30% minna þrýstingi og skemmdum á golfvellinum. Ókostur brettanna umfram golfbíla er að þar er enginn standur fyrir drykki og svo er ósköp notalegt koma sér í bílinn ef spilað er í rigningu eða þaðan af Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

