Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2013 | 09:00

Milljón dollara fyrir ás!

Jeff nokkur Barton tíaði upp 9. holu á Corley’s Albuquerque Lincoln Volvo Golf mótinu s.l. fimmtudag í New Mexico, Bandaríkjunum  í von um að fá ás og hljóta þar með hvorki meira né minna en 1 milljón dollara.

Líkurnar á að þetta tækist voru 1 á móti 12500.

Það var East Mountain menntaskólinn in Sandia Park, N.M., sem stóð fyrir mótinu, en mótið  fór fram í  Paa-ko Ridgegolfklúbbnum.

Þátttökugjaldið í mótið  var fremur hátt eða  $125 (eða u.þ.b. 15.000 íslenskar krónur) en á móti kom að þátttakendur áttu færi á að hljóta annað hvort Lincoln MKZ Hybrid eða 1 milljón bandaríkjadollara (þ.e. 125 milljónir íslenskra króna), sem mótshaldarar höfðu tryggingu fyrir.

Og það sem hafði líkurnar móti sér, gerðist; Barton fór holu í höggi, fullt af áhorfendur urðu vitni að afreki hans og það var m.a. tekið upp á innbyggt myndbandsupptökutæki farsíma og má sjá afraksturinn með því að SMELLA HÉR: