Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2013 | 08:00

Rickie í hlutverki Dick Fowler PI

Nýjustu auglýsingarnar frá Farmers Insurance hafa vakið það mikla athygli að farið er að skrifa um þær í golffréttamiðlum á Íslandi.

Í meðfylgjandi myndskeiði kemur nr. 34 á heimslistanum, stjörnukylfingurinn og Golf Boys-inn Rickie Fowler fram í hlutverki Dick Fowler PI, reglueinkaspæjara- og varðar í golfi.

Hann refsar kylfingum,  sem eru að tala í símann á golfvellinum eða laga ekki eftir sig kylfuför, eftirminnilega.

Farsímar eru sprengdir í loft upp  og torfusneplum troðið upp í kylfinga.

Hér má sjá myndskeið með golfeinkaspæjaranum Dick Fowler PI alias Rickie Fowler SMELLIÐ HÉR: