Birgir Björn Magnússon, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2013 | 22:00

Þau 10 sem komast áfram í Unglingaeinvígið

Í dag fór fram forkeppni í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ.  Nú liggur fyrir hverjir þeir 10 unglingar eru sem heyja einvígið en það eru þau 3 sem komust áfram í sínum aldursflokki og síðan sigurvegari síðasta árs, 2012,  Aron Snær Júlíusson, GKG.

Arnór Snær Guðmundsson, GHD, Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki - 15. júní 2013 á Leirdalsvelli. Mynd: Golf 1

Arnór Snær Guðmundsson, GHD, Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki – 15. júní 2013 á Leirdalsvelli er kominn áfram í Unglingaeinvíginu.  Mynd: Golf 1

Þau sem sem komust áfram í flokki 14 ára og yngri eru Ingvar Andri Magnússon, GR; Arnór Snær Guðmundsson, GHD og Kristófer Karl Karlsson, GKJ.

Í flokki 15-16 ára komust eftirfarandi áfram: Birgir Björn Magnússon, GK; Kristófer Orri Þórðarson, GKG og Saga Traustadóttir, GR.

Í flokki 17-18 ára komust eftirfarandi áfram: Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG; Stefán Þór Bogason, GR og Benedikt Árni Harðarson, GK.

Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG. Mynd: GÚ

Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG, komst áfram í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ. Mynd: GÚ

Úrslit dagsins í undankeppni Samsung Unglingaeinvígisins eru lið fyrir lið eftirfarandi:

 

14 ára og yngri
Hekla Sóley Arnarsdóttir GK – datt út á 1. holu (2. braut Hlíðavallar)
Valur Þorsteinsson GKj – datt út á 2. holu (3. braut Hlíðavallar)
Ragnar Már Ríkarðsson GKj – datt út á 3. holu (4. braut Hlíðavallar)
Sunna Björk Karlsdóttir GR – datt út á 4. holu (5. braut Hlíðavallar)
Sigurður Arnar Garðarsson GKG – datt út á 5. holu (10. braut Hlíðavallar)
Kristján Benedikt Sveinsson GHD – datt út á 6. holu (11. braut Hlíðavallar)
Ólöf María Einarsdóttir GHD – datt út á 7. holu (12. braut Hlíðavallar)
Kristófer Karl Karlsson GKj- komst áfram í úrslit
Arnór Snær Guðmundsson GHD – komst áfram í úrslit
Ingvar Andri Magnússon GR – komst áfram í úrslit

Saga Traustadóttir, GR,  önnur af tveimur kvenkylfingum sem komust áfram í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ.

Saga Traustadóttir, GR, önnur af tveimur kvenkylfingum sem komust áfram í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ. Mynd: Golf 1

15-16 ára
Elís Rúnar Elísson GKj -datt út á 1. holu (2. braut Hlíðavallar)
Arna Rún Kristjánsdóttir GKj – datt út á 2. holu (3. braut Hlíðavallar)
Ragnhildur Kristinsdóttir GR – datt út á 3. holu (4. braut Hlíðavallar)
Henning Darri Þórðarson GK – datt út á 4. holu (5. braut Hlíðavallar)
Eva Karen Björnsdóttir GR – datt út á 5. holu (10. braut Hlíðavallar)
Björn Óskar Guðjónson GKj – datt út á 6. holu (11. braut Hlíðavallar)
Gísli Sveinbergsson GK – datt út á 7. holu (12. braut Hliðavallar)
Birgir Björn Magnússon GK – komst áfram í úrslit
Kristófer Orri Þórðarson GKG – komst áfram í úrslit
Saga Traustadóttir GR – komst áfram í úrslit

 

17-18 ára
Daníel Andri Karlsson GKj – datt út á 1. holu (2. braut Hlíðavallar)
Særós Eva Óskarsdóttir GKG – datt út á 2. holu (3. braut Hlíðavallar)
Egill Ragnar Gunnarsson GKG – datt út á 3. holu (4. braut Hlíðavallar)
Guðni Valur Guðnason GKj – datt út á 4. holu (5. braut Hlíðavallar)
Ísak Jasonarson GK – datt út á 5. holu (10. braut Hlíðavallar)
Helga Kristín Einarsdóttir NK – datt út á 6. holu (11. braut Hlíðavallar)
Kristinn Reyr Sigurðsson GR – datt út á 7. holu (12. braut Hliðavallar)
Benedikt Árni Harðarson GK – komst áfram í úrslit
Stefán Þór Bogason GR – komst áfram í úrslit
Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG – komst áfram í úrslit

 

Sigurvegarar mótsins frá upphafi eru:
2005 – Sveinn Ísleifsson
2006 – Guðni Fannar Carrico
2007 – Andri Þór Björnsson
2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson
2009 – Andri Már Óskarsson
2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir
2011 – Ragnar Már Garðarson
2012 – Aron Snær Júlíusson