Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2013 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ian Michael Baker Finch – 24. október 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ian Michael Baker Finch. Hann fæddist 24. október 1960 í Nambour, Queensland í Ástralíu og er því 53 ára í dag. Ian Michael ólst upp í sama nágrenni í Queensland og heimsþekktir ástralskir kylfingar þ.e. Greg Norman og Wayne Grady.  Þekktastur er Ian Michael fyrir að sigra á Opna breska, árið 1991.

Ian Michal gerðist atvinnumaður í golfi 1979. Hann segir Jack Nicklaus hafa haft mest áhrif á feril sinn, þar sem hann segist hafa byggt golfleik sinn á bók Gullna Björnsins (Nicklaus) „Golf My Way”.

Á atvinnumannsferli sínum sigraði Ian Michael 17 sinnum; 2 sinnum á PGA; 2 sinnum á Evróputúrnum; 3 sinnum á japanska PGA; 17 sinnum á Ástralasíutúrnum (sum mótin eru tvítalin hér því sama mótið telur sem mót á 2 eða fleiri mótaröðum).

Eftir að atvinnumannferlinum lauk starfaði Ian Michael bæði við golfvallarhönnun og stjórnun og sem golffréttaskýrandi: fyrst hjá ABC Sports og síðan CBS Sports, en þar er hann þekktur undir nafninu „Finchy.”

Ian Michael Baker-Finch og kona hans, Jennie, eiga tvær dætur Jenny og Laura. Þau búa í North Palm Beach í Flórída.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Margaret Ann „MargieMasters, 24. október 1934 (79 ára);  Ricardo Gonzalez, 24. október 1969 frá Argentínu (44 ára); Christopher Baryla, kanadískur, 24. október 1982 (31 árs);

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is