Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2013 | 16:30

GK: Strákarnir hófu ekki leik á EM klúbbliða vegna veðurs

Keilisstrákarnir gátu ekki hafið leik á EM klúbbliða vegna slæms veðurs í Lissabon, Portúgal í dag.

Þeir  Rúnar Arnórsson, Gísli Sveinbergsson og Birgir Björn Magnússon ásamt Björgvini Sigurbergssyni, yfirþjálfara Keilis komu á mótssvæðið í Lissabon á Evrópumót klúbbliða síðastliðinn mánudag.

Hafa strákarnir verið við æfingar  á vellinum síðastliðna tvo daga og er vonandi að það takist að hefja leik á morgun – en óvíst er á þessari stundu hvort spilaðir verða 2 hringir á morgun eða hvort mótið verður stytt í 2. hringja mót.

Fylgjast má með gengi strákanna á morgun með því að SMELLA HÉR: