Kristinn Reyr Sigurðsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2013 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kristinn Reyr Sigurðsson – 22. október 2013

Í gær fór því miður fram viðgerð á Golf 1 golffréttavefnum og því voru engar fréttir skrifaðar í rúman sólarhring.  Ekki var skrifuð afmælisgrein og birtist hún því í dag.

Afmæliskylfingur gærdagsins, 22. október 2013 er Kristinn Reyr Sigurðsson. Kristinn Reyr er fæddur 22. október 1996 og varð því 17 ára í gær. Kristinn Reyr er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann spilaði m.a. á Íslandsbankaröðinni s.l. sumar með góðum árangri. Þannig varð Kristinn Reyr í 8. sæti í piltaflokki  á 1. mótinu uppi í Þórlákshöfn; hann varð í 10. sæti á 2. mótinu á Strandarvelli;  Kristinn Reyr varð síðan í 3. sæti á Íslandsmótinu í holukeppni – vann leikinn um 3. sætið 2&0.  Kristinn Reyr varð síðan í 2. sæti á 5. móti Íslandsbankamótaraðarinnar á Jaðrinum; hann varð í 7. sæti í Íslandsmótinu í höggleik og í 7. og síðasta mótinu á Íslandsbankamótaröðinni  í Grafarholtinu varð Kristinn Reyr í 3. sæti.

Kristinn Reyr varð í 4. sæti á stigalista GSÍ 2013 í piltaflokki.

Eins tók Kristinn Reyr þátt í nokkrum mótum Eimskipsmótaraðarinnar, í KPMG bikarnum í liði höfuðborgarinnar og í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ.

Kristinn Reyr er í afreksmannahóp GSÍ völdum af landsliðsþjálfaranum, Úlfari Jónssyni. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Kristinn Reyr Sigurðsson (17 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Adam Gee, 22. október 1980 (33 ára);  Peter Tomasulo, 22. október 1981 (32 ára);  Þórður Ingi Jónsson, 22. október 1988 (25 ára) ….. og …..

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem áttu afmæli í gær innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is