Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2013 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Óðinn Þór Ríkharðsson – 23. október 2013

Það er Óðinn Þór Ríkharðsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Óðinn Þór er fæddur 23. október 1997 og er því 16 ára í dag!!! Óðinn Þór er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG).  Hann spilaði með góðum árangri á Íslandsbankamótaröðinni og Eimskipsmótaröðinni s.l. sumar.  M.a. sigraði hann drengjaflokk i á 1. mótinu á Þórláksvelli og í 7.  mótinu í Grafarholtinu, þar sem hann fékk m.a. örn tvo daga í röð á 12. holunni!!!

Óðinn Þór varð í 3. sæti á stigalista GSÍ 2013, í drengjaflokki og er í afrekshóp GSÍ völdum af Úlfari Jónssyni, landsliðsþjálfara.

Hann tók þátt í keppninni um KPMG bikarinn 2013og var einn af fáum í liði höfuðborgarinnar, sem vann sína leiki.

Sjá má viðtal Golf 1 við Óðinn Þór, sem tekið var fyrr á árinu með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Óðinn Þór Ríkharðsson (16 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Harvey Morrison Penick, f. 23. október 1904 – d. 2. apríl 1995;  Chi Chi Rodriguez, 23. október 1935 (78 ára);  James Evangelo Nitties, 23. október 1982 (31 árs afmæli!!!)  Michael Sim, 23. október 1984 (29 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.