Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2013 | 06:45
Streelman dregur sig úr Australian Open

Niðurbrotinn Kevin Streelman varð að draga sig úr Australian Open nú fyrr í morgun þegar farið var með hann á spítala vegna augnsýkingar. Streelman var með tárin í augum þegar hann neyddist til þess að draga sig úr mótinu eftir að hafa einungis spilað 4 holur af 2. hring. En því miður voru verkirnir í auganu orðnir svo miklir auk þess sem Streelman var farið að svima að hann varð að sætta sig við að draga sig úr mótinu. Streelman er nr. 43 á heimslistanum og átti að spila með golfstjörnunum Adam Scott og Jason Day, nokkuð sem hann vildi ekki missa af en hann sagðist hafa fundið á sér Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2013 | 21:00
Evróputúrinn: Madsen efstur á Alfred Dunhill eftir 1. dag

Daninn Morten Örum Madsen leiðir eftir 1. dag Alfred Dunhill mótsins, sem hófst í dag á Leopard Creek golfvellinum í Suður-Afríku. Madsen lék á 7 undir pari, 65 höggum. Hann hefir þó aðeins 1 höggs forystu á Portugalann Ricardo Santos og heimamanninn Allan Versfeld, sem báðir léku á 6 undir pari, hvor. Fjórir deila 4. sætinu á 4 undir pari, þ.á.m. Mastersmeistarinn Charl Schwartzel. John Daly lék á sléttu pari og er deilir 48. sætinu, af 152 keppendum og góður sjéns á að hann komist í gegnum niðurskurð og færi sig síðan jafnvel ofar upp skortöfluna. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Alfred Dunhill SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2013 | 17:45
Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Sæmundsdóttir – 28. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Sæmundsdóttir, GR, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi í flokki 50+ 2010 og 2011 sem og Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ s.l. 3 ár með sveit eldri kvenna í GR, þ.e. 2011, 2012 og nú í ár 2013. Steinunn fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1960. Hún byrjaði í golfi 14 ára og gekk í GR 1974. Aðaldriffjöðurin í golfleiknum var bróðir Steinunnar, Óskar en hún dró oft fyrir hann. Jafnhliða fjölda Íslandsmeistaratitla í golfi og klúbbmeistaratitla hjá GR er afmæliskylfingurinn okkar 12-faldur Íslandsmeistari á skíðum. Í dag er Steinunn með 5,5 í forgjöf. Steinunn er 4 barna móðir þeirra Sæunnar Ágústu 31 árs; Hlyns Heiðars, 31 árs; Söndru Rós, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2013 | 12:00
Daly brá vegna Cobra slöngu

John Daly er nú í Suður-Afríku þar sem hann tekur þátt í Alfred Dunhill mótinu á Leopard Creeek golfvellinum. Honum brá ekkert smá þegar hann mætti cobra slöngu (nefnist Mozambique spitting cobra á ensku) og er baneitruð. Daly setti eftirfarandi mynd af sér á instragram: Með myndinni var eftirfarandi texti: „Lions Den to Snake Den not way to get greeted this morn!“ Best að þýða þetta ekkert – en Daly var víst ekkert skemmt að vakna við þessa cobra slöngu í Suður-Afríku – ekki á það bætandi hjá honum – hann er rétt farinn að geta spilað aftur eftir uppskurð á olnboga og ekki gott á láta næst bíta sig Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2013 | 11:00
GOS: Ásta kosin formaður

Aðalfundur Golfklúbbs Selfoss var haldinn í gærkvöldi þann 27.nóvember. Bárður Guðmundarson formaður GOS var búin að tilkynna það fyrir fundinn að hann hugðist ekki gefa kost á sér í áframhaldandi setu í stjórn GOS. Bárður var búin að vera í stjórn GOS í 17.ár. En lengst af sem formaður, Bárður fékk blóm og nokkrar skemmtilegar ræður á fundinum í gær og getur Golfklúbbur Selfoss þakkað Bárði fyrir frábær störf fyrir klúbbinn síðustu árin. Ný stjórn var því kosinn í gær. Ásta M. Sigurðardóttir var kosinn formaður GOS, en Ásta er fyrsti kvennkyns formaður GOS, Ásta var kosinn til eins árs. Helena Guðmundsdóttir var kosinn ritari, en það er gaman að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2013 | 10:00
Satíruþáttur á BBC varpar kastljósi á kynjamismunun í golfi

Margir sem búið hafa í Englandi kannast við háðfuglana Jolyon Rubinstein og Heydon Prowse, sem stýra Satírusjónvarpsþættinum „The Revolution Will Be Televised“ á BBC. Etv. einnig þeir sem eru geta fylgst með og fylgjast með BBC hér á landi. Í hverjum þætti er ákveðið málefni tekið fyrir og háðfuglarnir gera írónískt grín að því, en þessir þættir þar em horft er á samtímann gegnum háðsgleraugu hefir m.a. unnið til BAFTA-verðlaunanna. Í nýlegum þætti var kynjamismunun í golfi tekið fyrir. Sérstakt efni þáttanna voru golfklúbbar, þar sem einungis körlum er heimilt að gerast félagar í og neita konum um aðild. Jolyon Rubinstein og Heydon Prowse, þóttust vera hollenskir kvikmyndagerðarmenn og gáfu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2013 | 08:30
Augusta National byggir bílastæði á landi sem kostaði milljarð

Það eru bara 4 mánuðir þar til Masters risamótið hefst í Augusta National, með sínum alparósum, ostasamlokum, hvítum kaddý-búningum og …. frábæru heimsklassa golfi. Flestir kylfingar geta varla beðið. Árið 2002 keypti Augusta National íbúðablokkina „The Greens“ á Washington Road, sem var byggð árið 1972. Þetta var 9,7 ekru eign sem fékkst fyrir $8.3 miljón (þ.e. rúman 1 milljarð íslenskra króna). Nú eru forstöðumenn Augusta að rífa bygginguna til þess að byggja bílastæði, þ.e. bæta við bílastæðum fyrir allan þann mikla fjölda sem búist er við að muni fylgjast með The Masters risamótinu á næsta ári, 2014. Talsmaður Augusta, Steve Ethun, sagði a.m.k. að verið væri að rífa bygginguna til þess Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2013 | 08:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Lucas Bjerregaard (7/27)

Nú verður hafist við að kynna þá 5 stráka sem urðu í 17.-21. sæti í lokamóti Q-school Evróputúrsins, sem fram fór 10.-15. nóvember s.l.. Þetta eru þeir Lucas Bjerregaard frá Danmörku, Thomas Pieters frá Belgíu, Daniel Brooks frá Englandi, Andreas Hartö frá Danmörku og Kevin Phelan frá Írlandi. Allir léku þeir hringina 6 á PGA Catalunya golfvellinum í Girona á Spáni, á samtals 10 undir pari, 420 höggum. Við byrjum á Dananum Lucas Bjerregaard en tveir, þ.e. hann og Andreas Hartö voru einu Danirnir af stákunum 27 sem hlutu kortin sín á Evróputúrinn fyrir keppnistímabilið 2014. Lucas Bjerregarrd fæddist í Fredrikshavn, Danmörku 14. ágúst 1991 og er því aðeins 21 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2013 | 07:00
Adam Scott á 62 og með vallarmet á 1. hring Australian Open

Adam Scott hefur baráttu sína fyrir því að vinna öll 3 stærstu mótin í Ástralíu vel. Hann hefir þegar sigrað á PGA Australia og Australian Masters mótunum og á nú raunhæfan möguleika á að sigra á öllum 3 stærstu mótunum í Ástralíu. Hann setti vallarmet í morgun á golfvelli Royal Syndney golfklúbbsins á Australian Open þegar hann spilaði 1. hring á frábærum 10 undir pari, 62 höggum. Hann fékk 10 fugla í röð á holum 6-15 á hring þar sem hann missti ekki högg! Í 2. sæti eftir 1. dag er Kanadamaðurinn Ryan Yip á 7 undir pari, 65 höggum og í 3. sæti er Ástralinn David McKenzie á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2013 | 19:15
Golf Iceland á stærstu golfferðasýningu heims

Golf Iceland tók nú í nóvember þátt í stærstu golfferðasýningu heims sem haldinn er árlega, IGTM. Sýningin var að þessu sinni haldin 11.-14. nóvember í Barcelona, á Spáni. Um 1200 manns frá um 60 löndum tóku þátt í ár, seljendur golferða , kaupendur golfferða svo og fjölmiðlamenn,sem fjalla um golf. Golf Iceland tók nú þátt í sýningunni í fjórða sinn. Við komum þarna á framfæri við kaupendur á fjölmörgum fundum upplýsingum um meðlimi samtakanna Golf Iceland svo og almennum upplýsingum um Ísland og golf almennt á Íslandi. Þá var dreift efni til fjölmiðlafólks og þeim veittar upplýsingar á fundum. Þá voru á sýningunni haldnir fyrirlestar um ýmislegt sem tengist golfferðamennsku Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

