Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2013 | 19:00
Catriona Matthew byggir í Skotlandi

Hvað eiga Donald Trump og Catriona Matthew sameiginlegt? Bæði eru að byggja í Skotlandi; Trump golfstað og Catriona, hús… þ.e.a.s ef samþykkt verður. Catriona Matthew, sigurvegari á Opna breska kvenrisamótinu 2009 vonast til þess að fara að geta hafist handa við byggingu húss á sögulega golfsvæðinu North Berwick í Skotlandi. Catriona og eiginmaður hennar, Graeme, vonast til þess að fá samþykki skipulagsyfirvalda East Lothian til þess að brjóta niður Links Lodge á Links Road til þess að byggja sér nútímalegra hús. Skipulagsyfirvöld hafa þegar mælt með að hún hljóti vilyrði til þessa. Bæjarráðsmaðurinn David Berry bað um umræður fyrir bygginganefnd vegna þess að það að fjarlægja og byggja nýtt hús á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2013 | 18:30
Rose og Stenson tilnefndir til verðlauna

Justin Rose hefir verið tilnefndur til verðlaunanna íþróttamans ársins á BBC (ens. BBC Sports Personality of the Year award), vegna sigurs hans á Opna bandaríska í júní. Rose, sem fyrst komst á golfradarinn 1998 þegar hann varð í 4. sæti á Opna breska, náði að krækja sér í fyrsta risamótstitil sinn nú í sumar í Merion golfklúbbnum, en þar tókst honum að gera betur en aumingja Phil Mickelson og Jason Day, en Rose átti 2 högg á þá báða. Hann ánafnaði sigur sinn föður sínum heitnum (sem var á pokanum hjá honum 1998 á Opna breska). Rose fetar þar með í fótspor Rory McIlory, sem var tilnefndur á síðasta ári Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2013 | 15:30
Elle Nichols valin Miss Golf

Okemos efstibekkingurinn Elle Nichols var valin Miss Golf í Michigan á fundi hjá golfþjálfarasambandi Michigan s.l. sunnudag í Eagle Eye golfklúbbnum í East Lansing, Michigan. „Ég vissi að þetta yrði erfitt val vegna þess að það er mikið af góðum kylfingum og margar stúlkur áttu tækifæri,“ sagði Nichols. „Þetta var takmark mitt að sigra Miss Golf á þessu ári og þannig vissi ég að ég varð að verja miklum tíma og einbeitingu í hvert mót vegna þess að hver mál skipti máli til þess að vinna þessi verðlaun.“ Nichols vann 2. deildarmeistaramótið með 3 höggum á næsta keppanda í Forest Akers East á þessu keppnistímabili og það nægði næstum því til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2013 | 14:00
Margmennt þegar Oliver Horovitz las upp úr, seldi og áritaði bók sína „An American Caddie in St. Andrews“

Margmenni var á fyrirlestri Oliver Horovitz á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, en hann var hér kominn til að selja, árita og lesa upp úr bók sinni „An American Caddie in St. Andrews.“ Athygli vakti hversu margir fundargesta höfðu spilað velli Skotlands, en þarna voru mættir aðdáendur linksarana og auk þess félagsmenn í „The Golfing Society of Iceland“, sem stóðu fyrir komu Horowitz til landsins. Allir sem sóttu fyrirlestur Horowitz fengu að gjöf árituð rauð tí frá honum, sem eru til kynningar á bók hans. Samhliða áritun hans á bók sinni, fór fram púttkeppni. Horowitz hefir m.a. dregið fyrir David Lema, son Tony Lema , sem lést langt um aldur fram í flugslysi(Sjá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2013 | 13:30
Afmæliskylfingur dagsins: Stephanie Kono – 27. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Stephanie Kono. Hún er fædd 27. nóvember 1989 og því 24 ára í dag. Hún var ein af nýju stúlkunum á LPGA árið 2012. Golf 1 var með kynningu á henni sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Hisayuki Sasaki, 27. nóvember 1964 (49 ára); Danielle Ammaccapane 27. nóvember 1965 (48 ára); Adrienne Bernadet, 27. nóvember 1984 (29 ára); Stephanie Kono, 27. nóvember 1989 (24 ára) …… og …… Ferðafélag Siglufjarðar (86 ára) Ragnheidur Arngrímsdóttir Þráinn Bj Farestveit (49 ára) Helgi Steinar Johannsson Helmut Müller (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!) Neglur Og Fegurð Eva (29 ára) Golf 1 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2013 | 08:00
Daly spilar á Alfred Dunhill

John Daly mun spila á móti Evrópumótaraðarinnar í þessari viku Alfred Dunhill Championship, en hann snýr nú aftur til leiks eftir uppskurð á olnboga. Tvöfaldi risamótsmeistarinn (Daly) er meðal keppenda í Leopard Creek golfklúbbnum nálægt Kruger þjóðgarðinum í norðurhluta Suður-Afríku og er þetta aðeins 2. mótið sem hann tekur þátt í frá uppskurði sem hann gekkst undir í júlí til að laga sin í hægri olnboga. Daly byrjaði ágætlega í BMW Masters í síðasta mánuði en dalaði síðan um helgina og lauk keppni á samtals 5 yfir pari og deildi 48. sætinu. „Ég er virkilega frískur núna og vil spila,“ sagði Daly s.l. mánudag. „Ég vil ekki eyða árslokunum. Ég myndi gjarnan Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2013 | 07:00
Stefna golfhreyfingarinnar 2013-2020

Á Golfþingi sem fram fór 23. nóvember s.l. var lögð fram stefna golfhreyfingarinnar til næstu 7 ára, eða frá 2013-2020. Skoða má stefnu golfhreyfingarinnar með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2013 | 23:30
Afmæliskylfingur dagsins: Chris Wood – 26. nóvember 2013

Christopher James (alltaf nefndur Chris) Wood fæddist 6. nóvember 1987 í Bristol á Englandi og er því 26 ára í dag. Chris var í Golden Valley Primary School í Nailsea frá 4-11 ára aldurs, áður en hann byrjaði í Backwell skólanum. Hann byrjaði í golfi mjög ungur, en hafði á þeim tíma alveg jafnmikinn áhuga á fótbolta og stefndi alltaf á að spila með Bristol City Football Club. Hann var félagi í the Long Ashton Golf Club nálægt Bristol 9 ára gamall og við 12 ára aldurinn var forgjöf hans orðin eins-stafs. Chris Wood sigraði English Amateur Order of Merit árin 2007 og 2008. Hann gerðist atvinnumaður í golfi um tvítugt, árið 2008. Hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2013 | 20:00
Lee Westwood ræður Foster aftur á pokann hjá sér

Lee Westwood hefir aftur ráðið náinn vin sinn og fyrrum kylfusvein á pokann hjá sér, en hann mun á næsta ári reyna að krækja sér í einn risamótssigur. Foster var á pokanum hjá Westwood í 3 ár, en á þeim tíma vann Westwood 8 mót og varð meðal efstu 3 á 6 risamótum og tókst m.a. að velta sjálfum Tiger Woods úr 1. sæti heimslistans, en Westwood var nr. 1 í 22 vikur. Það skildu leiðir hjá Foster og Westwood, þegar Foster meiddi sig á hné í fótboltaleik og gat ekki dregið lengur. Westwood réði þá Mike Kerr sem tímabundinn afleysingarmann á pokann hjá sér, en það lengdist í því Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2013 | 17:00
Cheyenne Woods í „tunglgöngu“

Hér kemur myndskeið um nýjasta uppátæki Cheyenne Woods, fyrrum skólafélaga Ólafíu „okkar“ Þórunnar Kristinsdóttur í Wake Forest og frænku Tiger Woods. Hún tekur eina „tunglgöngu“ eða „moonwalk“ eins og danssporið heitir sem sérstaklega Michael Jackson gerði frægt. Sjá má Cheyenne Woods taka svo sem eina tunglgöngu með þvi að SMELLA HÉR: Og svona til samanburðar má sjá snillinginn heitna Michael Jackson SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

