Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2013 | 17:45

Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Sæmundsdóttir – 28. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er  Steinunn Sæmundsdóttir, GR, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi í flokki 50+ 2010 og 2011 sem og Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ s.l. 3 ár með sveit eldri kvenna í GR, þ.e. 2011, 2012 og nú í ár 2013.

Sigursveitir GR í 1. flokki eldri kylfinga - Steinunn er í fremri röð lengst til vinstri

Sigursveitir GR í 1. flokki eldri kylfinga – Steinunn er í fremri röð lengst til vinstri

Steinunn fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1960. Hún byrjaði í golfi 14 ára og gekk í GR 1974. Aðaldriffjöðurin í golfleiknum var bróðir Steinunnar, Óskar en hún dró oft fyrir hann. Jafnhliða fjölda Íslandsmeistaratitla í golfi og klúbbmeistaratitla hjá GR er afmæliskylfingurinn okkar  12-faldur Íslandsmeistari á skíðum. Í dag er Steinunn með 5,5 í forgjöf.

Steinunn er 4 barna móðir þeirra Sæunnar Ágústu 31 árs; Hlyns Heiðars, 31 árs; Söndru Rós, 18 ára og Sigrúnar Ásu 14 ára. Eins á Steinunn 4 barnabörn: þá Hlyn Viðar 5 ára og Henrik Viðar 4 ára, Jóhannes Viðar 7 ára og Steinunni Lilju 5 ára.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Steinunni með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Steinunn Sæmundsdóttir · 53 ára (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Dick Rhyan, 28. nóvember 1934 (79 ára); David Ecob, 28. nóvember 1965 (48 ára);  Anna Rún Sigurrósardóttir, GO, 28. nóvember 1968 (45 ára); Evan Droop, 28. nóvember 1970 (43 ára); Vaughn Groenewald, 28. nóvember 1974 (spilar á Sólskinstúrnum, 39 ára) og  Angela Stanford f. 28. nóvember 1977 (36 ára); Sveinn Orri Snæland, GR, 28. nóvember 1981 (32 ára)  …. og ….. 

Atli Þór Þorvaldsson (51 árs)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is