Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2013 | 13:30
Wayne Rooney og Rory McIlroy spila saman – Myndskeið

Manchester United stjarnan Wayne Rooney og nr. 6 (Rory McIlroy) komu saman og spiluðu saman á golfvelli. Það var styrktaraðili beggja, Nike, sem stóð fyrir uppákomunni í Cheshire, fyrr á árinu. Meðan að Rory lék með Nike kylfum sínum, sem hann hefir verið að venjast allt árið, lék Rooney með Nike Ordem fótbolta. Brasilíanska fótboltahetjan, Ronaldo, kemur einnig stuttlega við sögu í lok, myndskeiðsins og kemur Rory til bjargar! Til þess að sjá myndskeið af leik Rory og Rooney SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2013 | 13:00
Brandarakarlinn Steve Elkington

Champions Tour kylfingurinn Steve Elkington frá Ástralíu hefir verið tekinn í karphúsið af skosku dagblaði eftir að Elkington tvítaði brandara um þyrlu sem hrapaði á pöbb í Glasgow, Skotlandi s.l. föstudag með þeim afleiðingum að 8 manns dóu. Elkington er nú ekki oft í fréttum núorðið en hann vann engu að síður PGA Championship risamótið 1995. Elkington er í dag einkum þekktur fyrir að vera mjög aktífur á Twitter og fyrir að fara stundum yfir strikið þar. Maður spyr sig er maðurinn bara að með þessum örvæntingarfulla hætti að reyna að vekja athygli á sér? Þegar fréttir um slysið hörmulega tóku að berast tvítaði Elkington: „Þyrla hrapar á skoska krá…. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2013 | 10:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Daníel Brooks (9/27)

Nú verður fram haldið að kynna nýju strákana á Evróputúrnum 2014 þ.e. þá 27 sem fengu kortin sín á Evrópumótaröðina fyrir keppnistímabilið 2014 í gegnum lokaúrtökumót Q-school, sem fram fór á PGA Catalunya golfvellinum í Girona, Spáni, 10.-15. nóvember s.l. Haldið verður áfram að kynna þá 5 stráka sem urðu í 17.-22. sæti og voru allir á samtals 10 undir pari, 418 höggum. Daníel Brooks frá Englandi var einn þeirra, (lenti í 19. sæti með hringi upp á 65 71 69 66 76 71). Daníel Brooks fæddist 5. janúar 1987 í Basildon á Englandi en býr í London þar sem hann er félagi í Mill Hill golfklúbbnum. Hann er því að verða Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2013 | 08:00
Golfvellir í Sviss (2/102): Golf Club Villars

Villars golfklúbburinn er í litla bænum Villars-sur-Ollon. Hann er ekki langt frá Genf, aðeins í 123 km fjarlægð og trónir 1300 metra yfir sjávarmáli. Sé bílaleigubíll tekinn ætti með auðveldum hætti að vera hægt að keyra frá Genf til Villars á 1 1/2 klst. (þ.e. einni og hálfri klukkustund), meðfram Genfarvatni, en leiðin er gullfalleg. Nú hefir aldrei verið auðveldara að spila golf í Sviss, en Icelandair flýgur beinustu leið til Genfar og þar má leigja sér bíl og spila golf hvar sem er á einum af 102 golfvöllum Sviss. (Sjá auglýsingu Icelandair um nýja golfáfangastaðinn Genf, efst í hægra horni Golf 1 vefsíðunnar.) Kannski svolítið undarlegt að byrja kynningu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2013 | 23:30
Afmæliskylfingur dagsins: Bjarki Pétursson — 2. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Bjarki Pétursson. Bjarki er fæddur 2. desember 1994 og því 19 ára í dag. Hann er afrekskylfingur í Golfklúbbi Borgarness (GB) og m.a. klúbbmeistari GB, 5. árið í röð á þessu ári. Bjarki var m.a. valinn efnilegasti kylfingur Íslands á lokahófi GSÍ, 10. september 2011. Árið 2011 tók Bjarki þátt í Duke of York mótinu á Hoylake vellinum hjá Royal Liverpool klúbbnum og náði 16. sæti, sem er góður árangur í ljósi þess að veðrið var að leika keppendur grátt alla dagana. Árið 2011 var Bjarka gott en hann varð Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára pilta bæði í holukeppni og höggleik og m.a. kjörinn Íþróttamaður Borgarfjarðar á Íþróttahátíð UMSB í kjölfarið; Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2013 | 18:00
Fyrirlestur Pierre Bechmann fv. formanns R&A á málþingi GSÍ (3/5)

Þann 22. nóvember s.l. hélt GSÍ málþing þar sem fyrsti formaður R&A frá meginlandinu, franski lögmaðurinn Pierre Bechmann hélt ítarlega, langa og góða ræðu um starfsemi R&A í 260 ár. Golf 1 hefir þegar birt hér fyrstu 2 af 5 hlutum ræðu hans og hér fer þriðji hluti ræðu hans, sem var býsna löng í flutningi eins og segir eða tæpar 50 mínútur og e.t.v. ekki allir sem hafa náð öllu sem Bechmann vildi koma á framfæri og því farin sú leið að birta ræðuna hans í lauslegri íslenskri þýðingu en hana má líka sjá á vef GSÍ golf.is Hér fer 3. hluti af ræðu Bechmann: Bechmann setur á nýja Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2013 | 11:45
Jaidee og Jiménez fyrirliðar í EvrAsíuliðakeppni

Það eru Thongchai Jaidee frá Thaílandi og Miguel Angel Jiménez sem eru fyrirliðar í EvrAsíu Cup sem fram fer á næsta ári. EvrAsíu Cup er keppni milli liða úrvalskylfinga frá Asíu og Evrópu þar sem byggt er á Ryder Cup fyrirkomulaginu. Mótið fer fram í Glenmarie Golf and Country Club í Kuala Lumpur, Malasíu, dagana 27.- 29. mars 2014. Thongchai hefir þrívegis verið efstur á peningalista Asíutúrsins og hefir sigrað á 16 atvinnumótum, þ.á.m. hefir hann sigrað 5 sinnum á Evrópumótaröðinni og tvisvar á Malaysian Open. Hann er fyrrum hermaður í tælenska hernum. Hann sagði m.a. um útnefningu sína sem fyrirliði: „Þetta er mér heiður og ég er ánægður að vera fyrirliði Team Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2013 | 11:15
Hvað er í pokanum hjá Charl Schwartzel?

Masters sigurvegarinn 2011 Charl Schwartzel, sigraði nú um helgina á Alfred Dunhill Championship, sem fram fór í heimalandi hans, Suður-Afríku nánar tiltekið á Leopard Creek golfvellinum í Malelane við Kruger þjóðgarðinn. Líkt og alltaf leikur forvitni á að vita hvað sigurvegarar móta eru með í pokanum. Eitt er a.m.k. víst að þeir hjá Nike eru ánægðir eftir þessa helgi því tveir sigurvegarar stærstu móta heims unnu með Nike kylfum og var Schwartzel annar þeirra. Hér er myndskeið um það sem er í poka Schwartzel 2013 SMELLIÐ HÉR: Það má líka skoða hverja kylfu hjá Schwartzel myndrænt með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2013 | 11:00
Evróputúrinn: Stenson 3 sinnum kylfingur mánaðarins á sama árinu

Henrik Stenson heldur áfram að slá og nú jafna met, en hann hefir jafnað met um að vera valinn kylfingur mánaðarins þrívegis á sama árinu, en hann var valinn kylfingur nóvember mánaðar á Evróputúrnum eftir sigur sinn á DP World Tour Championship. Fyrir vikið vann Stenson áritaðan disk og risaflösku af Moët & Chandon kampavíni, en hann er eins og segir aðeins 2. kylfingurinn í 29 ára sögu Evrópumótaraðarinnar til þess að vera valinn kylfingur mánaðarins 3 sinnum á sama ári. Hinum kylfingnum sem þetta tókst fyrstum allra er Ian Woosnam árið 1987 eftir að hann hafði unnið 5 mót á árinu og þar að auki unnið heimsbikarinn ásamt David Llewellyn, fyrir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2013 | 10:00
Hver er kylfingurinn: Thidapa Suwannapura?

Thaílenski kylfingurinn Thidapa Suwannapura sigraði nú um helgina í Women´s Hero Indian Open mótinu, sem fram fór á Delhi golfvellinum á Indlandi og var mót vikunnar á Evrópumótaröð kvenna. Þetta er 1. sigur Suwannapuru í mótinu og eins á Evrópumótaröðinni. Hins vegar var þetta 4. sigur thaílensks kylfings í þessu móti á Indlandi, því Pornanong Phatlum vann mótið 2008, 2009 og 2012. „Ég er mjög ánægð, ég hélt aldrei að ég myndi vinna þetta mót. Þetta er stærsta mótið sem ég hef unnið og það er hluti draums míns,“ sagði Suwannapura ánægð eftir sigurinn á Hero Women´s Indian Open mótinu, en stærsti sigur hennar fram að því var sigur á Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

