Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2013 | 22:00
Afmæliskylfingur dagsins: Lee Trevino ——— 1. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Lee Trevino, en hann fæddist 1. desember 1939, í Dallas, Texas og því 74 ára í dag. Lee Trevino Hann er oft uppnefndur „Supermex“ eða „The Merry Mex“ vegna mexíkansks uppruna síns, en móðir hans, Juanita, er mexíkönsk og Lee mikið átrúnaðargoð meðal mexíkanskra golfaðdáenda. Lee gerðist atvinnumaður í golfi árið 1960 og hefir því spilað leikinn göfuga í 51 ár á atvinnumannsstigi og á þeim tíma sigrað alls 89 sinnum, þar af 29 sinnum á PGA, 29 sinnum á Champions Tour og 31 sinnum á öðrum mótaröðum. Af helstu afrekum Lee mætti nefna að hann hefir í 6 skipti sigrað á risamótum golfsins, Opna bandaríska árin 1968 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2013 | 16:15
Schwartzel sigraði á Alfred Dunhill

Það var heimamaðurinn og Masters sigurvegarinn 2011 Charl Schwartzel, sem stóð uppi sem sigurvegari á Alfred Dunhill mótinu í Leopard Creek í Suður-Afríku. Schwartzel lék á samtals 17 undir pari, 271 höggi (68 68 67 68) og hlaut að launum € 237.750 (uþb. 45 miljónir íslenskra króna). Í 2. sæti varð Englendingurinn Richard Finch 4 höggum á eftir Schwarzel, á samtals 13 undir pari, 275 höggum. Í 3. sæti urðu þrír kylfingar: púttlínubrotsmaðurinn frá því í Kína, Simon Dyson frá Englandi, Englendingurinn Ross Fisher og Frakkinn Romain Wattel allir á samtals 10 undir pari, 7 höggum á eftir Schwartzel. Danski nýliðinn á Evrópumótaröðinni Morten Örum Madsen, sem búinn er að standa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2013 | 16:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Thomas Pieters (8/27)

Nú verður fram haldið að kynna nýju strákana á Evróputúrnum 2014 þ.e. þá 27 sem fengu kortin sín á Evrópumótaröðina fyrir keppnistímabilið 2014 í gegnum lokaúrtökumót Q-school, sem fram fór á PGA Catalunya golfvellinum í Girona, Spáni. Haldið verður áfram að kynna þá 5 stráka sem urðu í 17.-22. sæti og voru allir á samtals 10 undir pari, 418 höggum. Thomas Pieters frá Belgíu var einn þeirra, (lenti í 20. sæti með hringi upp á 64 73 72 68 68 73). Thomas Pieters fæddist í Geel, Belgíu 27. janúar 1992 og er því 21 árs. Hann býr í Niijen í Belgíu og er þar í golfklúbb sem heitir BeGold/Top Golf Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2013 | 15:00
Nýtt!!! Golfvellir í Sviss (1/102): Golf Club de Genève

Eins og lesendur Golf 1 hafa tekið eftir er Icelandair komið með nýjan áfangastað: Genf í Svíss. Sjá auglýsingu efst í hægra horni Golf 1 síðunnar. Nú er nokkuð víst að golf er ekki það sem fyrst kemur til hugar þegar minnst er á Sviss. Það er fremur að fólk hugsi um Rauða Krossinn, Alþjóðastofnanir, Banka, Skíði, Fjallakofa, Gönguferðir, Fjallaklifur, Heiðu, Spätzle, Súkkulaði, Osta, Fondue, Úr og klukkur o.m.fl. áður en kemur að golfi. Svissneskir golfvellir og svissneskir kylfingar eru ekkert sérlega þekktir hér á landi. Þó Sviss sé lítið land eru þó þegar um 100 golfvellir þar, sem hægt er að velja um og í undirbúningi að byggja fleiri, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2013 | 14:00
Fyrirlestur Pierre Bechmann fv. formanns R&A á málþingi GSÍ (2/5)

Hér verður fram haldið reifun á löngum og ítarlegum fyrirlestri Pierre Bechmann, fyrsta formanns R&A frá meginlandi Evrópu: Bechmann greindi frá því að árið 2004 hefði orðið aðskilnaður milli R&A golfklúbbsins og þess þáttar hans sem sá um ytri málefnin (nefnist The R&A). Bechmann sagði aðskilnaðinn hafa 2 kosti. Í fyrsta lagi að hlífa klúbbmeðlimum við ábyrgð. Ef t.a.m. ákvörðun um stöðlun golfútbúnaðar er mótmælt af framleiðenda golfkylfa eins og þegar PING fór í mál við R&A 1989 þá er engin hætta á því að klúbbmeðlimir verði að selja húsin sín til að eiga fyrir skaðabótum; og í annan stað gerir það okkur kleift að leyfa aðkomu fleiri að ákvarðanatöku, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2013 | 07:00
Fyrsti sigur Rory í ár! Scott náði ekki þrennunni

Rory McIlroy krækti sér í fyrsta sigur sinn á árinu á Australian Open nú í nótt. Fyrir lokahringinn var Rory 4 höggum á eftir Adam Scott og virtist sem ástralska þrennan myndi falla í skaut Masters sigurvegara ársins og aðal stolts heimamanna, Ástrala, í golfinu um þessar mundir. En Rory setti þar strik í reikninginn – Hann átti frábæran lokahring upp á 66 högg, sem Scott átti ekkert svar við, en Scott lék á 71 höggi og því vann Rory með 1 höggs mun. Reyndar var það þannig að Rory var búinn að vinna upp 4 högga forskot Adam Scott á 8. holu, en Scott setti niður 3 metra pútt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 30. 2013 | 17:45
Afmæliskylfingur dagsins: Alessandro Tadini – 30. nóvember 2013

Það er Alessandro Tadini sem er afmæliskylfingur dagsins, en hann fæddist 30. nóvember í Borgomanero á Ítalíu 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Tadini gerðist atvinnumaður í golfi 1994. Hann komst á Evróputúrinn 2003, eftir að hafa gert 6 tilraunir til þess að komast í gegn í Q-school. Hann vann sér ekki inn nægilega mikið verðlaunafé á nýliðaári sínu þannig að hann spilaði næsta keppnistímabil á Áskorendamótaröðinni (ens. Challenge Tour). Árið 2004 varð hann í 2. sæti á Challenge Tour þannig að hann komst aftur á Evrópumótaröðina og hélt korti sínu þar til loka árs 2007, þegar hann féll aftur niður í Áskorendamótaröðina. Hann kom sér upp Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 30. 2013 | 17:30
Golfkylfur sem morðvopn?

Næstum 5 og 1/2 ári eftir tvöfalt morð á Indlandi, sem hlaut mikla umfjöllun fjölmiðla þar í landi, hefir verið komist að niðurstöðu. Og það var golf sem átti þátt í þeirri niðurstöðu. Í The Times of India kom fram að tannlæknirinn Rajesh Talwar og eiginkona hans Nupar Talwar hafi verið fundin sek um dráp á 14 ára dóttur þeirra, Aarushi, og þjóninum, Hemraj Banjade á heimili þeirra í Jalvayu Vihar árið 2008. Dómurinn byggði á kenningu settri fram af rannsóknarmiðstöð Indlands (ens. Central Bureau of Investigation (CBI) ) um að golfkylfur hr. Talwar hefðu verið notaðar til þess að fremja morðin. Með hliðsjón af ákomum hinna myrtu þótti líklegt að golfkylfurnar hefðu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 30. 2013 | 15:00
Bræður í golfsögubækur

Meðan Adam Scott er að eltast við að komast í golfsögubækurnar með því að verða einn teljandi á fingrum annarrar handar til þess að ná áströlsku þrennunni þá er annar Scott á golfvelli Royal Sidney golfklúbbsins þegar búinn að skrifa sig í golfsögubækurnar. Áströlsku bræðurnir Scott og Jamie Arnold urðu fyrstu bræðurnir til þess að verða paraðir saman í Australian Open. „Það væri ekki hægt að skrifa betra handrit,“ sagði Scott eftir að hann spilaði 2. hringinn á 3 undir pari og var samtals á 7 undir pari. „Við spiluðum mikið saman golf sem krakkar en við höfum ekki spilað saman árum saman. Hann er búinn að vera í Bandaríkjunum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 30. 2013 | 14:00
Fyrirlestur Pierre Bechmann fv. formanns R&A á málþingi GSÍ (1/5)

Franski lögmaðurinn Pierre Bechmann, sem er fyrsti formaður R&A frá meginlandi Evrópu, hélt geysigóðan fyrirlestur á málþingi GSÍ, 22. nóvember s.l. þar sem hann kynnti starfsemi R&A í 260 ár. Bar fyrirlestur hans yfirskriftina „Lífstíll í 260 ár“ og gerði Bechmann þar hlutverki R&A góð skil. Golf 1 var á málþinginu og hér verður fyrirlesturinn, sem var u.þ.b. 50 mínútna birtur og fer hér fyrsti hluti af 5 á þessum góða og ítarlega fyrirlestri Bechmann. Hann er hér í þýðingu Golf 1 og eru allar villur á ábyrgð vefsins. Hér er fyrirlestur Bechmann í íslenskri þýðingu: „Hr. forseti, herrar mínir og frúr, Ég er þakklátur fyrir boð ykkar um að Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

