Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2013 | 22:00
Ko í 4. sæti Rolex-heimslistans

Hin 16 ára Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi vann í gær the Swinging Skirts World Ladies Masters í Taíwan, en þetta var fimmti sigur hennar á einni af risamótaröðum kvennagolfsins og 1. sigur hennar sem atvinnumanns. Fyrir sigurinn hlaut Ko 150,000 (u.þ.b. 18 milljónir íslenkra króna). Fyrir mótið var Ko í 6. sæti Rolex-heimslistans yfir bestu kvenkylfinga heim en eftir sigurinn fer hún upp um 2 sæti og er nú kominn í 4. sæti Rolex-heimslistans. Ko er með 7.78 stig á Rolex-heimslistanum og er nokkuð á nr. 1 á, Inbee Park, sem er með 11.47 stig. Norska frænka okkar, Suzann Pettersen, er í 2. sæti með 10.83 stig og hin bandaríska Stacy Lewis Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2013 | 21:45
Golfsvipmynd dagsins: Kylfukast Tiger

Tiger tapaði fyrir Zach Johnson í gær eins og allir kylfingar vita á lokaholunum á Northwestern Mutual World Challenge. Ljósmyndari nokkur náði þesari mynd af Tiger með aðdráttarlinsu og þar sést vel sársaukinn og vonbrigðin með misheppnað teighögg á lokahring mótsins. Reyndar kastaði Tiger kylfunni frá sér eftir teighöggið! Kylfukast er aldrei til fyrirmyndar né eftirbreytni. En þetta sýnir bara hversu pirrandi golfið getur stundum verið….. jafnvel hjá nr. 1 á heimslistanum!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2013 | 21:00
Afmæliskylfingur dagsins: Kinga Korpak —— 9. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Kinga Korpak. Kinga er fædd 9. desember 2003 og því 10 ára stórafmæli í dag. Hún er þrátt fyrir ungan aldur einn af afrekskylfingum GS og hefir spilað og staðið sig framúrskarandi vel á Íslandsbankamótaröðinni s.l. sumar. Þannig var Kinga oft á sigurpalli þó hún hafi, eins og svo oft áður, verið að spila við sér miklu eldri stelpur. Þar ber eflaust hæst að Kinga varð í 2. sæti á heimavelli sínum, Hólmsvelli í Leiru, á Íslandsmótinu í höggleik, í flokki stelpna 14 ára og yngri. Elsku Kinga, innilega til hamingju með daginn þinn!!! Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru: Pauline «Polly» Whittier (fædd 9. desember Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2013 | 20:00
Tiger hefur engan áhuga á að slá met Palmer

Tiger sagðist ekki hafa áhuga á að slá met Arnold Palmer um að spila í 50 Masters risamótum í röð. Spurningu þess efnis var beint til Tiger, sem leikið hefir í 18 Masters mótum, eftir bráðabana hans við Zach Johnson á Northwestern Mutual World Challenge í gær. Þegar hann var spurður að því hversu lengi hann hyggðist leika á Masters á grundvelli lífstíðar undanþágu sinnar, sagði nr. 1 á heimslistanum:„Við skulum segja að ég ætli mér ekkert að slá við meti Arnold. Ég ætla ekki að spila svo lengi. Það er víst.“ Palmer vann mótið 4 sinnum á árunum 1955-2004. En hins vegar hefir Arnie ekki tekst að komast á efri Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2013 | 12:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Patrik Sjöland (12/27)

Í dag verður byrjað á því að kynna þá 5 stráka, sem urðu í 12.-16. sæti í Q-school Evrópumótarðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir Patrik Sjöland, Brinson Paolini, Jens Dantrop, Simon Wakefield og James Heath. Byrjað verður á því að kynna þann sem varð í 16. sæti – Patrik Sjöland, sem var einn af 3 Svíum sem komust í gegnum Q-school að þessu sinni. Af þeim 27 „strákum“ sem komust í gegnum Q-school var Patrik jafnframt elstur eða 42 ára, en hann er fæddur í Borås í Svíþjóð, 13. maí 1971. Patrik hefir farið í Q-school Evrópumótaraðarinnar 10 sinnum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2013 | 10:30
Golfvellir í Sviss (5/102): Vuissens

Icelandair býður nú upp á beint flug til Genfar í Sviss og nú opnast frábært tækifæri fyrir íslenska kylfinga að spila einhvern hinna frábæru 102 golfvalla í Sviss. Þess ber að geta að sé beint strik dregið í gegnum Sviss frá norðri til suðurs mælist landið einungis 220,1 km og frá austri til vesturs einungis 348, 4 km. Það er því fremur stutt að keyra á alla golfvellina frá Genf. Í dag verður kynntur Vuissens golfvöllurinn, en keyrsla frá Genfarflugvelli til Vuissens tekur 1 klst og 20 mínútur í gegnum fallegt svissneskt landsvæði að mestu meðfram Genfarvatni. Vuissens golfvöllurinn er hannaður af golfvallararkítektinum Jerémy Pern. Hann er í litlum svissneskum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2013 | 08:30
LPGA: Jaye Marie Green sigraði í Q-school – 20 nýjar á LPGA

Bandaríski kylfingurinn Jaye Marie Green sigraði í gær í Q-school LPGA, sem fram fór á Rees Jones golfvellinum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída, dagana 4.-8. desember 2013. Hún spilaði 5. hringinn í röð á undir 70 og átti 10 högg á næsta keppanda. Lokahringurinn var upp á 4 undir pari, 68 högg og samtals var Jaye á 29 undir pari, 331 höggum og sló þar með við meti Stacy Lewis frá árinu 2008 upp á lægsta heildarskor sem var samtals 342 högg. Á lokahringnum fékk Green, 19 ára, skolla á 3. holu, en náði því aftur með fuglum á 5. og 6. holu. Á seinni 9 fékk Green Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2013 | 23:20
Zach Johnson vann Tiger í bráðabana á World Challenge

Masters sigurvegarinn (2007) Zach Johnson bar nú rétt í þessu sigur úr býtum á Northwestern Mutual World Challenge. Mótið fór fram 5.-8. desember í Sherwood GC í Thousand Oaks, Kaliforníu og var aðalkeppninautur hans Tiger Woods, gestgjafi í mótinu, þar sem 18 af einhverjum bestu kylfingum heims tóku þátt. Zach Johnson lék á samtals 13 undir pari 275 höggum (67 68 72 68) Keppnin var æsispennandi en Tiger var enn með 1 höggs forystu á 16. holu en það breyttist þegar Zach fékk fugl á 17. en Tiger „bara“ par. Allt sem sagt jafnt. Báðir fengu síðan par á par-4 lokaholuna og því báðir jafnir eftir leik á 72 holum. Það varð því Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2013 | 20:00
Viðtalið: Áslaug Einarsdóttir, NK

Viðtalið í kvöld er við einn klúbbmeðlima í Nesklúbbnum. Fullt nafn: Áslaug Einarsdóttir. Klúbbur: NK. Hvar og hvenær fæddistu? Í Reykjavík, 14. júní 1963. Hvar ertu alin upp? Í Vogahverfinu, í Reykjavík. Í hvaða starfi/námi ertu? Ég er verkefnastjóri í fjármáladeildar ÞG Verktaka. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég er gift golfara af lífi og sál sem heitir Gunnlaugur Jóhannsson og svo er ég með tvo krakka, strák og stelpu 21 og 18 ára, sem báðir spila golf. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég byrjaði haustið 1991 svo eignaðist ég strákinn ´92 – ég er þrjóskuhundur – fyrstu árin eftir að ég átti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2013 | 19:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ágústa Sveinsdóttir – 8. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ágústa Sveinsdóttir. Ágústa er fædd 8. desember 1954. Hún er í Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði og hefir tekið þátt í ýmsum opnum mótum s.l. sumar og er yfirleitt meðal efstu keppenda. Sjá má viðtal við Ágústu sem birtist hér á Golf 1 SMELLIÐ HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ágústu til hamingju með daginn hér að neðan: Ágústa Sveinsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið Ágústa!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Laurie Auchterlonie, f. 8. desember 1868 – d. 20. janúar 1948; Edward Harvie Ward Jr., (f.8. desember 1925 – d.4. september 2004 – Einn af söguhetjum „The Match“); Ragnar Guðmundsson, rakari, Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

